Keppa í Evrópukeppni ungra vísindamanna

Lilja Ýr Guðmundsdóttir og Ingibjörg Sóley Einarsdóttir.
Lilja Ýr Guðmundsdóttir og Ingibjörg Sóley Einarsdóttir.

Lilja Ýr Guðmundsdóttir og Ingibjörg Sóley Einarsdóttir, sem báðar eru nemendur við Menntaskólann í Reykjavík, verða fulltrúar Íslands í Evrópukeppni ungra vísindamanna sem fer fram í Brussel dagana 15.-20. september. Þær báru sigur úr býtum í Landskeppni ungra vísindamanna sem fór fram vorið 2016 en Háskóli Íslands heldur utan um verkefnið á Íslandi.
 
Verkefni Lilju Ýrar og Ingibjargar Sóleyjar ber heitið „Detecting differences among brain waves between thinking and performing an action for use in responsive programming“. Það snýst um að þróa tölvuforrit sem gerir fólki kleift að framkvæma aðgerðir með hugaraflinu einu saman.

Evrópukeppni ungra vísindamanna er nú haldin í tuttugasta og áttunda sinn en um er að ræða verkefni á vegum Evrópusambandsins sem hefur það markmið að efla hæfni ungs fólks til að vinna að rannsóknarverkefnum og stuðla að auknu frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda. Um leið er því ætlað að stuðla að samstarfi ungra vísindamanna þvert á landamæri þátttökuríkjanna, segir í tilkynningu.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert