Sunna hlýtur fyrsta styrkinn

Gestur Pétursson, forstjóri Elkem Ísland, Ragnheiður Elín Árnadóttir, nýsköpunarráðherra, Sunna …
Gestur Pétursson, forstjóri Elkem Ísland, Ragnheiður Elín Árnadóttir, nýsköpunarráðherra, Sunna Ó. Wallevík og próf. Þorsteinn I. Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands þegar að skrifað var undir samninginn um rannsóknastöðuna. Aðsend mynd

Elkem Ísland og Nýsköpunarmiðstöð Íslands hafa komist að samkomulagi um stofnun rannsóknastöðu Elkem við Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Ungur efnafræðingur, Sunna Ólafsdóttir Wallevik, verður fyrsti styrkþeginn í stöðu sem ráðgert er að verði til þriggja ára. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. 

Þar segir að Sunna muni hafa meginaðstöðu hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands en jafnframt hjá Elkem og jafnframt njóta tækjabúnaðar og aðstöðu hjá Nýsköpunarmiðstöð og Elkem. Framlag Elkem vegna stöðunnar er að verðmæti um 40 milljónir krónur á þremur árum.

„Þetta eru einkar gleðileg tímamót fyrir okkur. Ljóst er að við erum í fararbroddi í heiminum varðandi þekkingu á kísil og kísilmelmum. Þegar tekið er tillit til stefnu okkar og vinnu á sviði endurnýtingar og fullvinnslu í orkuiðnaðinum, verður til þekkingargrunnur sem getur leitt af sér nýsköpun á breiðu sviði.

Okkur er ljóst að Elkem kann að meta þetta og því er komið að þessum tímapunkti. Sunna Wallevík er vel að þessu komin, stóröflug tæknivísindakona sem spennandi verður að fylgjast með í náinni framtíð.“ er haft eftir Þorsteini I. Sigfússyni, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar í fréttatilkynningu. 

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur unnið að ýmsum lausnum í umhverfismálum efnisiðnaðar hérlendis. Í þessu augnamiði hefur stofnunin og sérfræðingar hennar, undir forystu Sunnu, m.a. komið að nýtingu úrgangsefna og betri nýtingu hráefna í kísilmálmiðnaðinum. Stefna Nýsköpunarmiðstöðvar var sett fram í ritinu „Grænkun atvinnulífsins“ frá 2014, rituð af Þorsteini.

Elkem Ísland hefur lagt metnað sinn í að starfsemi fyrirtækisins sé í sem mestri sátt við umhverfið og sitt nánasta samfélag. Markvisst er unnið að því að draga úr áhrifum á ytra umhverfi og það felur í sér að fyrirtækið þróar og fylgir stöðlum um bestu fáanlegu framleiðsluaðferðir, þar sem markmið eru sett og árangur vaktaður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert