Rihanna léttari eftir 18 mánaða meðgöngu

Hvítur nashyrningur. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki …
Hvítur nashyrningur. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. AFP

Dýragarður í Ísrael tilkynnti í dag að fágætur hvítur nashyrningur hefði komið þar í heiminn. Rami, karlkyns, leit dagsins ljós fyrir nokkrum dögum í Ramat Gan-dýragarðinum og verndarsvæðinu, eftir 18 mánaða meðgöngu.

Foreldrar Rami eru hin sjö og hálfs árs gamla Rihanna frá Suður-Afríku og Atari, fjögurra ára.

Rihanna tilheyrir undirtegund sem talin er telja 20.000 einstaklinga. Hvíti nashyrningurinn á undir högg að sækja vegna veiðiþjófnaðar.

Alls hafast 14 nashyrningar við í Ramat Gan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert