Fordæmalaus fölnun Kóralrifsins mikla

Þegar kóralrif fölna, vegna hækkun sjávarhita, drepast þörungarnir og þar …
Þegar kóralrif fölna, vegna hækkun sjávarhita, drepast þörungarnir og þar með verða rifin líflaus. AFP

Fordæmalaus fölnun Kór­alrifs­ins mikla und­an strönd­um Ástr­al­íu, sem staðið hefur samfleytt í mörg ár, hefur skemmt tvo þriðju hluta þessa mikla náttúruundurs. Þetta má sjá á loftmyndum af svæðinu.

Fölnun kóralanna, sem verður vegna hækkandi hita sjávar, nær yfir 1.500 kílómetra af rifunum að því er vísindamenn segja. Nýjustu skemmdirnar eru á miðju rifinu en á síðasta ári var fölnunin mest á norðurhluta þess. 

Sérfræðingar óttast að þar sem þessir tveir atburðir hafa átt sér stað með stuttu millibili hafi kóralrifið litla möguleika á því að ná sér á strik að nýju.

 Terry Hughes, prófessor við James Cook-háskóla segir að ríkisstjórnir landa heims verði að taka á loftslagsmálum til að koma í veg fyrir frekari skemmdir sem þessar.

„Frá árinu 1998 höfum við séð fjóra svona atburði og bilið á milli þeirra hefur verið breytilegt en við höfum aldrei séð þetta gerast svona ört,“ segir Hughes í samtali við BBC.

„Því fyrr sem við grípum til aðgerða gegn losun gróðurhúsalofttegunda og færum okkur frá því að nota jarðefnaeldsneyti, því betra.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert