Musk kemur með ódýrustu Tesluna

Model 3 bílnum frá Tesla er ætlað að höfða til …
Model 3 bílnum frá Tesla er ætlað að höfða til hins almenna neytanda. AFP

Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur nú sent frá sér ódýrasta bíl sem fyrirtækið hefur sent frá sér til þessa, Model 3 útgáfuna.

Fyrstu 30 viðskiptavinirnir, sem flestir eru starfsmenn Tesla, fengu bílana afhenta í gær.

Elon Musk, forstjóri Tesla, sagði bílinn vera sá besti fáanlegi í þessum verðflokki, hvort sem um sé að ræða rafmagns- eða bensínbíl.

Grunnverði fyrir Model 3 bílinn í Bretlandi er í kringum 35.000 dollara, eða um 3,7 milljónir króna, og vonar fyrirtækið að hann veki fyrir vikið áhuga hjá fjöldanum.

Model 3 er þó dýrari rafbílar samkeppnisaðilanna, Nissan Leaf sem í Bretlandi kostar í kringum 31.000 og tvinnbíllinn Chevrolet Volt sem kostar 34.000 pund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert