Kosið 20. febrúar
Hlynur Sigurðsson, hlynur@mbl.isGert er ráð fyrir að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave verði haldin 20. febrúar og að spurt verði um samþykki eða synjun á lögum sem alþingi samþykkti milli hátíða.
Spurningin sem lögð verður fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslunni og kemur fram í drögum að frumvarpinu verður líklega eftirfarandi:
Eiga lög nr. 1.2010, um breytingu á lögum nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf sem alþingi samþykkti, en forsetinn synjaði staðfestingar, að halda gildi sínu?
Svo verða veittir tveir svarmöguleikar: Já, þau eiga að halda gildi eða Nei, þau eiga að falla úr gildi.






