Hlé gert á Icesave-viðræðum

Samninganefnd Íslands kemur heim frá London í dag. Ísland er áfram reiðubúið til áframhaldandi viðræðna og standa vonir til þess að þær geti hafist að nýju í næstu viku, að því er segir í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

„Síðustu þrjár vikur hafa farið fram viðræður milli samninganefndar Íslands og stjórnvalda í Bretlandi og Hollandi um lausn Icesave-málsins. Viðræður hafa verið uppbyggilegar og miðað að því að finna lausn sem allir málsaðilar geta sætt sig við. Samninganefnd Íslands kemur heim frá London í dag.

Ísland er áfram reiðubúið til áframhaldandi viðræðna og standa vonir til þess að þær geti hafist að nýju í næstu viku," segir í fréttatilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina