Innlent
|
Þjóðaratkvæði
| mbl
| 7.3.2010
| 10:10
| Uppfært
11:09
Fögnuður Íslendinga á BBC
Fréttamaður breska ríkisútvarpsins, BBC, fór á stúfana seint í gærkvöldi til að fylgast með fögnuði Íslendinga eftir afgerandi niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær.
Á vefmiðli BBC má sjá viðtöl við Íslendinga sem lýstu ánægju með niðurstöðuna í atkvæðagreiðslunni.
Endanleg úrslit í þjóðaratkvæðagreiðslunni liggja ekki fyrir þar sem ekki er búið að telja atkvæði í Norðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi. En þegar talin höfðu verið yfir 130 þúsund atkvæði höfðu 93,3% kjósenda hafnað Icesave-lögunum en 1,7% samþykkt þau. Tæplega 4,7% kjósenda skiluðu auðu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







