Hyggjast beita sér gegn samvinnunni við AGS

stækka

Ómar Óskarsson

„Ef Ísland fer ekki eftir alþjóðlegum skuldbindingum sínum vitum við ekki hvers vegna við ættum að horfa á jákvæðan hátt til Íslands ef landið sækir um aðild að Evrópusambandinu.

Það er fyrra atriðið. Hitt er að við vitum ekki hvers vegna við ættum að líta jákvæðum augum á umsókn Íslands um lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum,“ segir Frans de Nerée tot Babberich, talsmaður þingflokks Kristilegra demókrata (CDA) í efnahagsmálum í Hollandi.

Vart er hægt að skilja orð hans öðruvísi en sem hótun, enda hafa Hollendingar áhrif innan sjóðsins.

Icesave-deilan var tekin til umræðu á hollenska þinginu í gær og gaf Jan Kees de Jager, fjármálaráðherra Hollands, til kynna að næstu skref væru í höndum Íslendinga.

Neðri deild þingsins samþykkti ályktun um stöðuna þar sem farið er fram á skjóta lausn málsins og að þrýstingurinn á Ísland verði aukinn.

Þá var meirihluti þingdeildarinnar sammála um að aðild Íslands að ESB kæmi að óbreyttu ekki til greina.

Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Þjóðaratkvæði — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 20. desember

Miðvikudaginn 14. desember

Miðvikudaginn 2. nóvember

Föstudaginn 2. september

Föstudaginn 19. ágúst

Miðvikudaginn 15. júní

Þriðjudaginn 12. apríl

Miðvikudaginn 16. mars

Þriðjudaginn 15. mars

Þriðjudaginn 1. mars

Miðvikudaginn 29. desember

Miðvikudaginn 15. desember

Þriðjudaginn 14. desember

Föstudaginn 10. desember

Fimmtudaginn 9. desember

Miðvikudaginn 8. desember

Þriðjudaginn 7. desember

Mánudaginn 6. desember

Sunnudaginn 5. desember

Föstudaginn 26. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Þriðjudaginn 16. nóvember

Mánudaginn 15. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Föstudaginn 17. september

Mánudaginn 6. september

Fimmtudaginn 2. september

Miðvikudaginn 25. ágúst

Föstudaginn 20. ágúst

Fimmtudaginn 19. ágúst

Föstudaginn 2. júlí

Föstudaginn 25. júní


finnur.is