Innlent
|
Þjóðaratkvæði
| mbl
| 16.11.2010
| 11:33
Jákvæð samskipti en ekki samkomulag
Fjármálaráðuneytið segir að ekki liggi fyrir samningsniðurstaða í Icesave-málinu en jákvæð samskipti hafi átt sér stað á undanförnum misserum milli samninganefnda þjóðanna þriggja um málið og ljóst er að árangur hefur náðst í viðræðum milli aðila. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins.
„Vegna fréttaflutnings um stöðu Icesave-viðræðna vill fjármálaráðuneytið
að fram komi að samningsniðurstaða í málinu liggur enn ekki fyrir.
Jákvæð samskipti hafa átt sér stað á undanförnum misserum milli
samninganefnda þjóðanna þriggja um málið og ljóst er að árangur hefur
náðst í viðræðum milli aðila. Vonir standa til þess að hægt verði að
ljúka við gerð samninganna á næstu vikum," segir á vef ráðuneytisins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






