Ólíklegt að niðurstaða náist í dag
Ekki er útlit fyrir að lokið verði við gerð samkomulags við Hollendinga og Breta varðandi Icesave reikninga Landsbankans, samkvæmt heimildum mbl.is. Hins vegar miðar vel við samningsgerðina, líkt og fram kom í máli forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, á Alþingi í gær.
„Nei. Það er nú ekki gefið,“ segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, aðspurður hvort samkomulag í Icesave-deilunni muni liggja fyrir í vikunni.
„Það eru ákveðin atriði sem er enn ágreiningur um og framhaldið ræðst því vitanlega af því hvort samkomulag næst um alla hluti.“
Árni Þór segir aðspurður að fundað verði um stöðuna í utanríkismálanefnd á næstu dögum en Bjarni Benediktsson, form. Sjálfstæðisflokksins, hafði óskað eftir umræðum um málið. Var Bjarni ósáttur við að niðurstaðan væri kynnt „úti í bæ“ en ekki í þinginu
Fram kom í ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á Alþingi að samningar myndu vonandi nást í deilunni á næstu dögum.
Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að ekki væri gefið að það tækist að ljúka samningsgerðinni í vikunni.
Á miðnætti rennur út frestur íslenskra stjórnvalda til að svara Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) vegna Icesave og í gær sagði Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, á Alþingi í gær að svarbréfið yrði ekki sent fyrir miðnætti í kvöld. Árni Páll sagðist hafa tilkynnt ESA það og ástæðan sú að samningaviðræður standa yfir. Farið verður aftur yfir málið með ESA á morgun.






