Eykur líkur á vaxtalækkun

Seðlabanki Íslands. stækka

Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ernir

Nýtt og hagstæðara Icesave-samkomulag eykur líkur á því að Seðlabankinn muni lækka vexti frekar og færir afnám gjaldeyrishafta framar í tímann. Þetta kemur fram í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

„Enn á Alþingi eftir að leggja blessun sína yfir samkomulagið og síðan forsetinn að undirrita lög um það efni. Nokkur óvissa er því enn um lyktir þessa máls sem litað hefur þróun efnahagsmála og þjóðfélagsumræðuna hér á landi frá því að fjármálakreppan skall á í lok árs 2008. 

Hagstæðari samningur ásamt viðbrögðum bæði aðila stjórnar og stjórnarandstöðu bendir til þess að mun líklegra sé að þessi samningur fái brautargengi Alþingis nú en fyrri samningur. Fyrri samningi vísaði forsetinn eftirminnilega í þjóðaratkvæðagreiðslu í upphafi þessa árs þar sem honum var hafnað. Verði stuðningur Alþingis ótvíræður nú má telja líklegra að forsetinn skrifi undir lögin," segir í Morgunkorni.

Lausn þessa máls og á þeim nótum sem nú er um rætt mun að öllum líkindum hafa jákvæð áhrif á aðgang íslenskra aðila að erlendu fjármagni og lækka áhættuálag á íslenskar fjáreignir.

Reikna má með því að lánshæfismatsfyrirtækin bregðist við því með hækkun á lánshæfi ríkissjóðs og ríkisfyrirtækja, en málið hefur meðal annars haft neikvæð áhrif á lánafyrirgreiðslur Landsvirkjunar erlendis. Lyktir málsins gætu þannig flýtt fyrir því að fjárfesting taki við sér hér á landi sem er ein forsenda aukins hagvaxtar og þess viðsnúnings í efnahagsmálum sem spáð er á næstu misserum, segir í Morgunkorni Íslandsbanka.

Lítil viðbrögð á fjármálamarkaði

Viðbrögð hafa verið lítil á fjármálamarkaði í morgun við fréttum af nýju samkomulagi. Vitað var að samningur á þessum nótum gæti verið á leiðinni og hafa áhrifin því eflaust komið fram þegar að stórum hluta. Einnig hefur áhrif sú óvissa sem enn er um afgreiðslu Alþingis og forsetans.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Þjóðaratkvæði — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 12. apríl

Miðvikudaginn 21. mars

Fimmtudaginn 15. mars

Miðvikudaginn 7. mars

Þriðjudaginn 20. desember

Miðvikudaginn 14. desember

Miðvikudaginn 2. nóvember

Föstudaginn 2. september

Föstudaginn 19. ágúst

Miðvikudaginn 15. júní

Þriðjudaginn 12. apríl

Miðvikudaginn 16. mars

Þriðjudaginn 15. mars

Þriðjudaginn 1. mars

Miðvikudaginn 29. desember

Miðvikudaginn 15. desember

Þriðjudaginn 14. desember

Föstudaginn 10. desember

Fimmtudaginn 9. desember

Miðvikudaginn 8. desember

Þriðjudaginn 7. desember

Mánudaginn 6. desember

Sunnudaginn 5. desember

Föstudaginn 26. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Þriðjudaginn 16. nóvember

Mánudaginn 15. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Föstudaginn 17. september

Mánudaginn 6. september

Fimmtudaginn 2. september

Miðvikudaginn 25. ágúst

Föstudaginn 20. ágúst


finnur.is