Telegraph: Getur hækkað lánshæfismat
Talsmaður breska fjármálaráðuneytisins fagnar nýju samkomulagi um Icesave-reikninga Landsbankans. Telur hann að samningurinn marki tímamót í samskiptum Íslendinga og Breta, samkvæmt frétt á vef Daily Telegraph. Þar kemur fram að lánshæfismat íslenska ríkisins geti hækkað í kjölfarið, samkvæmt upplýsingum frá Moody's.
Fjallað er ítarlega um samkomulag Íslendinga við Breta og Hollendinga á vef Telegraph. Þar er farið yfir örlög síðasta samnings sem gerður var á milli ríkjanna í Icesave-deilunni og kemur fram að samkomulagið nú geti jákvæð áhrif á að Ísland fái aðild að Evrópusambandinu.
Blaðið setur hins vegar þann varnagla að ekki sé búið að undirrita samkomulagið og að það sé enn möguleiki á að samkomulagið komist ekki í gegnum pólitíska kerfið á Íslandi.
Jan Cees de Jager, fjármálaráðherra Hollands, segir í samtali við Telegraph að Icesave sögunni sé ekki enn lokið og það verði ekki fyrr en þingið, forsetinn og ríkisstjórn Íslands hafi samþykkt samkomulagið.






