Ríkisráðsfundur á gamlársdag
Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman á Bessastöðum á gamlársdag, klukkan 9:30. Á hverju ári kemur ríkisráðið saman á Bessastöðum þann dag. Í fyrra tilkynnti forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ríkisstjórninni á þessum fundi að hann myndi taka sér frest áður en hann tæki afstöðu til þess hvort hann staðfesti Icvesave-lögin, sem samþykkt voru á Alþingi.
Það var síðan í byrjun janúar að Ólafur Ragnar tilkynnti að hann myndi ekki skrifa undir lögin líkt og frægt er.
Um áramótin munu tvö ný ráðuneyti taka til starfa innan Stjórnarráðs Íslands. Nýtt innanríkisráðuneyti verður til með sameiningu dómsmála- og mannréttindaráðuneytis og samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytis annarsvegar og nýtt velferðarráðuneyti verður til með sameiningu félags- og tryggingarmálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis.






