Rannsóknir á öldruðum styrktar

Ársæll Arnarson, prófessor við Háskólann á Akureyri stækka

Ársæll Arnarson, prófessor við Háskólann á Akureyri

Stjórn Öldrunarráðs Íslands veitti í dag þremur aðilum rannsóknarstyrki úr styrktarsjóði ráðsins vegna rannsókna í öldrunarmálum. Öldrunarráð veitir árlega styrki til rannsókna í málaflokknum.

Dr. Ársæll Arnarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri og Erasmus-prófessor við taugafræðideild Sahlgrenska Háskólasjúkrahússins í Gautaborg, fékk rannsóknastyrk að upphæð 300 hundruð þúsund krónur úr Rannsóknarsjóði Öldrunarráðs Íslands. Styrkir fær Ársæll vegna rannsóknar sinnar tengslum lyfjanotkunar aldraðra við aldursbundna hrörnun í sjónhimnu, sem er algengasta ástæða blindu í hinum vestræna heim.

Elísabet Þórðardóttir sálfræðingur fékk styrk að upphæð 200 þúsund krónur í tengslum við mastersverkefni sitt í öldrunarfræðum við Háskóla Íslands. Verkefni Elísabetar er hluti samnorrænnar rannsóknar, sem hefur að markmiði að kanna meðal aldraðra samband persónuleika og hættu á þunglyndi.

Laufey Jónsdóttir fékk styrk að upphæð 100 þúsund krónur til að framkvæma rannsókn, sem tengist þjónustu við aldraða á Íslandi. Laufey er þroskaþjálfi að mennt og stundar nám í opinberri stjórnsýslu og öldrunarþjónustu við Háskóla Íslands. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á þá strauma og stefnur sem öldrunarheimilin starfa eftir við úrfærslu á einkalífi og virðingu íbúa og hvort samræmdar reglur gildi við útfærsluna. Markmiðið er ennfremur að kortleggja þekkingu starfsfólks öldrunarheimila á þeim aðferðum sem leiða til aukins einkalífs íbúa og að lokum að kanna þörf starfsmanna fyrir fræðslu um þá þætti sem leiða til aukins sjálfræðis og einkalífs íbúanna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Þjóðaratkvæði — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 12. apríl

Miðvikudaginn 21. mars

Fimmtudaginn 15. mars

Miðvikudaginn 7. mars

Þriðjudaginn 20. desember

Miðvikudaginn 14. desember

Föstudaginn 2. september

Föstudaginn 19. ágúst

Miðvikudaginn 15. júní

Þriðjudaginn 12. apríl

Miðvikudaginn 16. mars

Þriðjudaginn 15. mars

Þriðjudaginn 1. mars

Miðvikudaginn 29. desember

Miðvikudaginn 15. desember

Þriðjudaginn 14. desember

Föstudaginn 10. desember

Fimmtudaginn 9. desember

Miðvikudaginn 8. desember

Þriðjudaginn 7. desember

Mánudaginn 6. desember

Sunnudaginn 5. desember

Föstudaginn 26. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Þriðjudaginn 16. nóvember

Mánudaginn 15. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Föstudaginn 17. september

Mánudaginn 6. september

Fimmtudaginn 2. september

Miðvikudaginn 25. ágúst

Föstudaginn 20. ágúst


finnur.is