Greinar laugardaginn 28. september 2013

Fréttir

28. september 2013 | Innlendar fréttir | 77 orð

124 langreyðar veiddust

Hvalveiðitímabilinu lýkur í dag en það hófst 16. júní í sumar. Tvö skip, Hvalur 8 og Hvalur 9, stunduðu veiðarnar. Síðasta langreyðin barst á land í gær en hitt skipið kemur inn í dag án hvals. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 124 orð | 1 mynd

Alþjóðlegur hjartadagur á morgun

Alþjóðlegur hjartadagur er haldinn 29. september ár hvert en Alþjóðahjartasambandið hvetur aðildarfélög sín um allan heim til að halda upp á Hjartadaginn. Meira
28. september 2013 | Erlendar fréttir | 86 orð | 1 mynd

Amma sem breiðir út ástarfaðminn

Indverskir hindúar þvo fætur gúrúsins Mata Amritanandamayi (Móður eilífrar alsælu) sem hélt upp á sextugsafmæli sitt í gær með fylgismönnum sínum í Amritapuri, nálægt borginni Kollam á Indlandi. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 206 orð | 1 mynd

Átak til eflingar á Akranesi

Íbúðalánasjóður hefur auglýst 22 fasteignir til sölu á Akranesi og er þetta liður í átaki bæjaryfirvalda til að styrkja eldri hluta bæjarins. Óskað er eftir tilboðum í eignirnar og skal þeim skilað til fasteignasala, sem eru með þær í sölumeðferð til... Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 17 orð | 1 mynd

Ber Brátt fara Reyniberin að falla af trjánum, fuglarnir verða að vera...

Ber Brátt fara Reyniberin að falla af trjánum, fuglarnir verða að vera fljótir að ná sér... Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 100 orð | 1 mynd

Borverk á brún hengiflugsins

Starfsmenn Köfunarþjónustunnar unnu í gær við að steypa niður festingar á þverhníptri brún Skoravíkurbjargs á Langanesi. Þar stendur til að setja upp útsýnispall á bjargbrúninni í um 100 metra hæð yfir sjó. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 277 orð | 1 mynd

Búið að eyða réttaróvissunni

Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra, segir mikilvægt að búið sé að eyða enn einni réttaróvissunni um uppgjör gömlu bankanna. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 160 orð | 1 mynd

Börnin fá leiksvæði

Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um leiksvæði fyrir börn í Reynisvatnsási, nýju hverfi við Úlfarsárdal og Grafarholt. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 536 orð | 2 myndir

Er rafbílavæðing á næsta leiti?

Baksvið Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Á síðasta ári voru flutt inn 247 þúsund tonn af eldsneyti fyrir bílaflota Íslendinga samkvæmt upplýsingum frá Orkustofnun. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 67 orð | 1 mynd

Fimm keppa um Matreiðslumann ársins

Ellefu keppendur stóðu í ströngu í Hótel- og matvælaskólanum, MK í Kópavogi í gær í keppninni Matreiðslumaður ársins. Hver keppandi matreiddi þriggja rétta matseðil fyrir átta manns. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 1284 orð | 3 myndir

Fjárfesting í spítala nauðsyn

Viðtal Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl. Meira
28. september 2013 | Erlendar fréttir | 217 orð | 1 mynd

Fleiri árásir rannsakaðar

Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Vopnasérfræðingar Sameinuðu þjóðanna eru að rannsaka hvort þrjár efnavopnaárásir hafi verið gerðar í Sýrlandi eftir saríngasárásina 21. ágúst sem varð til þess að Bandaríkjastjórn hótaði loftárásum á landið. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 190 orð | 1 mynd

Flókinn og erfiður tími

Björn Zoëga tilkynnti í gær að hann hefði látið af störfum sem forstjóri Landspítalans. Björn tók við starfinu 1. Meira
28. september 2013 | Erlendar fréttir | 64 orð | 1 mynd

Flutt á hjúkrunardeild eftir svelti

Fangelsismálayfirvöld í Rússlandi staðfestu í gær að Nadezhda Tolokonníkova, ein af konunum þremur í hljómsveitinni Pussy Riot, hefði verið flutt á hjúkrunardeild fangelsis þar sem hún afplánar tveggja ára fangelsisdóm fyrir mótmæli hljómsveitarinnar í... Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 65 orð | 1 mynd

Hagur Slippsins vænkast eftir þrot

Starfsmenn hjá Slippnum Akureyri eru nú nærri því tvöfalt fleiri en þeir sem störfuðu hjá Slippstöðinni sem varð gjaldþrota haustið 2005. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 329 orð | 4 myndir

Hefur strax sannað gildi sitt

Sviðsljós Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ég tel bátinn nýja og þann möguleika að við siglum upp í Landeyjahöfn strax hafa sannað gildi sitt. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 46 orð | 1 mynd

Hittu framkvæmdastjóra OECD

Áskoranir sem íslensk stjórnvöld standa frammi fyrir varðandi umbætur á skipulagi og stjórnun í ríkiskerfinu voru meginumræðuefni á fundi Angels Gurría, framkvæmdastjóra OECD, og íslenskra ráðherra í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 97 orð | 1 mynd

Hlaup til að vekja athygli á krabbameini í kvenlíffærum

Globeathon, fyrsta alþjóðlega hlaupið sem er haldið til að vekja athygli á krabbameini í kvenlíffærum, fer fram hér á landi á morgun, sunnudag. Ísland er eitt af 80 löndum sem taka þátt í hlaupinu í ár. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 188 orð | 1 mynd

Hótel Hellu breytt og það stækkað

Hjónin Lilja Jakobsdóttir og Steinn J. Ólason hafa keypt Hótel Mosfell og taka við rekstrinum á þriðjudaginn. Þau hafa aldrei unnið við hótelrekstur áður, en eru samhent um að fara af stað í þessa vegferð og láta á það reyna hvernig gengur. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 728 orð | 1 mynd

Hótel Mosfell í hendur nýrra eigenda

Óli Már Aronsson Hellu Tímamót verða á Hellu á Rangárvöllum um mánaðamótin en þá taka nýir eigendur við Hótel Mosfelli, sem hefur verið rekið á Hellu í nærri fjóra áratugi. Þá hefur verslunin Mosfell flutt sig um set í þorpinu. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 135 orð | 1 mynd

Hvati fyrir kröfuhafa að semja

„Dómur Hæstaréttar kemur heim og saman við það sem við sögðum í kosningabaráttunni í vor,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, en í dómi Hæstaréttar segir að slitastjórnum gömlu bankanna beri engin skylda til að greiða... Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 648 orð | 6 myndir

Íslenskt orkufyrirtæki reisir risavirkjun í Eþíópíu

Sviðsljós Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Íslensk-bandaríska orkufyrirtækið Reykjavik Geothermal, RG, gekk í gær frá samkomulagi í New York við ríkisstjórn Eþíópíu um að byggja og reka allt að 1. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 105 orð

Laun fyrir stjórnarsetu aldrei hærri

Laun fyrir stjórnarsetu í lífeyrissjóðum hafa hækkað um allt að 158% á einum áratug. Laun fyrir setu í stjórn fjögurra stærstu lífeyrissjóðanna hafa hækkað um 68% frá árinu 2008. Meira
28. september 2013 | Erlendar fréttir | 193 orð | 1 mynd

Leigðu rými í miðstöðinni fyrir árásina

Hryðjuverkamenn, sem réðust inn í Westgate-verslunarmiðstöðina í Naíróbí, höfðu leigt verslunarrými í miðstöðinni í nokkrar vikur til að undirbúa árásina. Breska ríkisútvarpið hefur þetta eftir heimildarmönnum sínum. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 355 orð | 2 myndir

Leikskólinn lagði undir sig gömlu bæjarskrifstofurnar

ÚR BÆJARLÍFINU Jón Sigurðsson Blönduósi Haustið hefur knúið dyra, um það vitnar allt í umhverfinu og veturinn handan við hornið. Laufin fölna, lömbin þagna, farfuglar á förum eða farnir og ferðamönnum fækkar. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 257 orð | 1 mynd

Leitað sátta milli aðila

„Það verður athugað hvort hægt sé að nýta næstu vikur í að vinna á því svæði sem enginn ágreiningur er um, en ekki verði farið inn í viðkvæmasta hluta hraunsins á meðan málið er á þessu stigi,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir... Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 406 orð | 2 myndir

Lesið í iljar yfir skákinni

Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Fyrir um 50 árum boðaði Gunnar Finnsson nokkra stráka heim til mín á Melhagann og tilkynnti okkur að við værum að fara að stofna Smámeistaraklúbbinn í skák,“ segir Sigtryggur Sigurðsson. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 63 orð | 1 mynd

Lestrarhátíð í Reykjavík í október

Í október verður haldin önnur Lestrarhátíðin í Reykjavík, bókmenntaborg UNESCO. Hátíðin í ár nefnist Ljóð í leiðinni og er tileinkuð borgarljóðum. Jón Gnarr borgarstjóri setur hátíðina á Hlemmi þriðjudaginn 1. október kl. 11. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 49 orð

Lokadagur grænmetismarkaðarins

Lokadagur grænmetismarkaðsins á Mosskógum í Mosfellsdal verður í dag og hefst klukkan 10. Grænmetismarkaðurinn er opinn á sumrin og þar hafa verið á boðstólum ýmsar salattegundir, spergilkál, gulrætur, spínat, svartkál og vorlaukur. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 78 orð | 1 mynd

Matís hvetur til aukinnar fiskneyslu

Átakið „Fisk í dag“ verður sett með formlegum hætti í dag í Smáralind milli klukkan 12 og 16. Það er Matís sem stendur fyrir herferðinni á landsvísu. Meira
28. september 2013 | Erlendar fréttir | 48 orð | 1 mynd

Messi neitar ásökun um skattaundanskot

Fótboltahetjan Lionel Messi (t.v.) heilsar fjölmiðlamönnum eftir að hafa komið fyrir dómara í bænum Gava, nálægt Barcelona, í gær. Messi svaraði spurningum dómara vegna ásakana um að hann hefði skotið fjórum milljónum evra (650 millj. kr. Meira
28. september 2013 | Erlendar fréttir | 88 orð

Rúmur helmingur flugmanna hefur sofnað í stjórnklefa

Um 56% flugmanna breskra flugfélaga hafa sofnað í stjórnklefanum, ef marka má könnun sem gerð var á vegum samtaka breskra flugmanna. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 442 orð | 2 myndir

Segja ráðherra fara með rangt mál

Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta er útúrsnúningur af verstu gerð. Það hlýtur að vera grundvallaratriði að ríkið gæti jafnræðis gagnvart þeim stofnunum sem fjármagnaðar eru af ríkissjóði. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 427 orð | 1 mynd

Sendiherrann í París nú skógarbóndi nyrðra

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Gróðurinn dafnar vel og tré hér eru fljótsprottin. Fyrstu árin gróðursetti ég þétt svo plönturnar hefðu skjól hver af annarri. Næðu þær að komast upp úr sinunni var þeim borgið. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 102 orð | 1 mynd

Skipulagi við höfnina mótmælt

Íbúasamtök Vesturbæjar hafa hrundið að stað undirskriftasöfnun gegn nýju deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið á milli Sjóminjasafnsins og Slippsins. Þarna er áformuð blönduð byggð. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 108 orð | 1 mynd

Spilar til úrslita á HM í brids

Hjördís Eyþórsdóttir spilar til úrslita um heimsmeistaratitil kvenna í brids en heimsmeistaramótið stendur nú yfir á Bali í Indónesíu. Hjördís, sem hefur verið búsett í Bandaríkjunum lengi, spilar í bandaríska kvennalandsliðinu. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 72 orð | 1 mynd

Sprengifim stemning á Vísindavöku háskólans

Vísindavaka Háskóla Íslands var haldin í gær. Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Meira
28. september 2013 | Erlendar fréttir | 254 orð | 1 mynd

Stefna að geimstöð innan tíu ára

Kínverjar stefna að því að koma fyrstu geimstöð sinni á braut um jörðu innan áratugar. Gert er ráð fyrir því að allt að sex geimfarar geti dvalið í stöðinni í stuttum ferðum og þrír í lengri ferðum. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 259 orð | 1 mynd

Stærsta orkufjárfestingin

Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 851 orð | 3 myndir

Telja nú meiri líkur á hlýnun

Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það er „ákaflega líklegt“ að losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum sé meginorsök þeirrar hlýnunar sem orðið hefur á jörðinni á tímabilinu 1951-2010. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 92 orð

Ummælin voru ekki Einars Sveins Í frásögn Morgunblaðsins af...

Ummælin voru ekki Einars Sveins Í frásögn Morgunblaðsins af hringborðsumræðum um málefni Vestfjarða 14. september sl. var ranglega haft eftir Einari Sveini Ólafssyni að ekki væri hjúkrunar- og dvalarheimili fyrir aldraða í Reykhólasveit. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 101 orð

Veiktist af skordýraeitri á Keflavíkurflugvelli

Það óhapp varð nýverið á Keflavíkurflugvelli að starfsmaður sem opnaði farangursrými á flugvél fékk á sig skordýraeitur og veiktist. Maðurinn fékk fljótlega höfuðverk en lauk þó vinnudeginum. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 786 orð | 3 myndir

Veltan sýnir gildi bílbeltanna

Guðni Einarsson gudni@mbl.is Brautin – bindindisfélag ökumanna hefur allt frá stofnun félagsins fyrir 60 árum beint athyglinni að auknu öryggi í umferðinni. Veltibíllinn hefur verið liður í því átaki. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 853 orð | 5 myndir

Viðsnúningurinn sem ekki kom

Sviðsljós Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Aðstandendur átaksverkefnisins Liðsstyrkur lýsa vonbrigðum sínum yfir því ef stór hluti fólks sem fékk vinnu út á verkefnið fær ekki endurráðningu. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 323 orð | 3 myndir

Vinnuaðstæðurnar „svolítið svakalegar“

Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Vinnuaðstæðurnar eru svolítið svakalegar,“ sagði Ómar Hafliðason, atvinnukafari og eigandi Köfunarþjónustunnar. Hann var ekki að lýsa aðstæðum á hafsbotni heldur á blábrún Skoravíkurbjargs á Langanesi. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 157 orð | 1 mynd

Þingmenn og gestir farðaðir

Glöggir sjónvarpsáhorfendur hafa tekið eftir því í útsendingum frá opnum nefndarfundum Alþingis hvað þingmenn og gestir þeirra eru margir hverjir óvenju sléttir og felldir að sjá í framan. Meira
28. september 2013 | Innlendar fréttir | 395 orð | 1 mynd

Þúsundkallinn frá 1984 væri 9.300 kr. á núvirði

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ef 5.000 króna seðill sem gefinn var út í apríl 1971 hefði átt að hafa sama kaupmátt í júlí 2013 þyrfti fjárhæð hans að vera 42.200 krónur. Fjórum árum síðar, í janúar 1981, var gefinn út 500 kr. Meira

Ritstjórnargreinar

28. september 2013 | Staksteinar | 161 orð | 2 myndir

Höfðust ólíkt að

Páll Vilhjálmsson er að vísa óbeint til ummæla Geirs H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra þegar Páll segir: Sænskir stjórnmálamenn sneru bökum saman þegar Svíþjóð lenti í kreppu á níunda áratugnum. Meira
28. september 2013 | Leiðarar | 266 orð

Mismikilvægir hagsmunir

Nú er svo komið að krabbameinssjúklingar óttast að fá annars flokks þjónustu vegna niðurskurðar. Meira
28. september 2013 | Leiðarar | 340 orð

Samkeppni innan og á milli sveitarfélaga

Bættur rekstur þarf að skila sér til útsvarsgreiðenda Meira

Menning

28. september 2013 | Tónlist | 525 orð | 2 myndir

Elsku besta systir mín

Popptónlist samtímans er oft og tíðum rúllað af ísköldu færibandi en systurnar „gera þetta hins vegar sjálfar“ Meira
28. september 2013 | Kvikmyndir | 489 orð | 2 myndir

Er Sanlitun svona?

Leikstjórn: Róbert Ingi Douglas. Handrit: Róbert Ingi Douglas, Carlos Ottery og Christopher Loton. Aðalleikarar: Carlos Ottery, Ai Wan, Hu Gaoxiang, Christopher Loton og Cromwell Cheung. Ísland, Kína, 2013. 94 mín. Flokkur: Ísland í brennidepli. Meira
28. september 2013 | Fjölmiðlar | 188 orð | 1 mynd

Indiana Jones fyrir fjölskylduna

Það er vel til fundið hjá RÚV að sýna vikulega, á laugardagskvöldum, kvikmynd um Indiana Jones. Í kvöld er komið að Indiana Jones og kóngsríki kristallshöfuðkúpunnar. Meira
28. september 2013 | Bókmenntir | 103 orð | 1 mynd

Íslenskar bækur tilnefndar til UKLA

Samtökin UK Literacy Association tilkynntu í gær tilnefningar til barnabókaverðlauna sinna, UKLA Book Award, og eru tvær íslenskar bækur meðal tilnefndra. Meira
28. september 2013 | Kvikmyndir | 81 orð | 1 mynd

Jagten framlag Dana til Óskarsins

Jagten eftir leikstjórann Thomas Vinterberg er framlag Dana til Óskarsverðlauna á næsta ári fyrir bestu kvikmynd á öðru tungumáli en ensku. Myndin hefur einnig veirð tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Meira
28. september 2013 | Tónlist | 546 orð | 1 mynd

Rómantísk ensk lög

Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui halda útgáfutónleika í Salnum í dag kl. 16. Meira
28. september 2013 | Tónlist | 142 orð | 1 mynd

Skilaboðaskjóðan í Hörpu

Heillandi, litrík og fjörug tónlistin úr ævintýrasöngleiknum Skilaboðaskjóðunni verður flutt á upphafstónleikum Litla tónsprotans í Eldborgarsal Hörpu í dag kl. 14 og 16. Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson með tónlist eftir Jóhann G. Meira
28. september 2013 | Fólk í fréttum | 87 orð | 1 mynd

Vildi segja ævisöguna áður en hún yrði rituð

Ómar Ragnarsson hóf í gær að segja ævisögu sína á Sögulofti Landnámsseturs og mun hann halda því áfram í kvöld kl. 20. Næstu sýningar verða 5., 12. og 13. október og 2. og 8. nóvember. Meira
28. september 2013 | Kvikmyndir | 346 orð | 2 myndir

Vilpan undir glansmyndinni

Leikstjóri: Alexandros Avranas. Leikarar: Themis Panou, Eleni Roussinou, Reni Pittaki, Kalliopi Zontanou, Sissy Toumasi og Chloe Bolota. Grikkland, 2013. 99 mínútur. Flokkur: Vitranir. Meira
28. september 2013 | Tónlist | 127 orð | 1 mynd

Þrír kvartettar á upphafstónleikum

Kvartett Sigrúnar Eðvaldsdóttur leikur strengjakvartetta eftir Arriaga, Beethoven og Brahms í Norðurljósasal Hörpu annað kvöld kl. 19.30. Meira

Umræðan

28. september 2013 | Aðsent efni | 524 orð | 2 myndir

Af hverju þarf að hagræða?

Eftir Guðlaug Þór Þórðarson: "Við verðum að spara, hagræða og neita okkur um ýmislegt sem okkur langar til að gera." Meira
28. september 2013 | Aðsent efni | 446 orð | 1 mynd

Aukin neysla á mjólkurvörum

Eftir Guðna Ágústsson: "...margur maðurinn, og ekki síst ungt fólk, þjáist vegna fitu...þá er mikilvægt að taka upp nýjar lífsvenjur og nýjan lífsstíl." Meira
28. september 2013 | Aðsent efni | 434 orð | 1 mynd

Á Vogi er byggt til framtíðar

Björn Logi Þórarinsson: "Ríkuleg ástæða er til að leggja starfsfólki Vogs lið." Meira
28. september 2013 | Aðsent efni | 780 orð | 1 mynd

Framsóknarforysta á villigötum gegn náttúruvernd

Eftir Hjörleif Guttormsson: "Nú gerist umhverfisráðherra beinlínis talsmaður sérkrafna ákveðinna hópa, þegar hann setur fram hótun sína um afnám nýrrar náttúruverndarlöggjafar." Meira
28. september 2013 | Aðsent efni | 456 orð | 1 mynd

Hvernig jóga stundar þú?

Eftir Eygló Egilsdóttur: "Allar tegundir jóga hafa sama markmið; að iðkandinn læri að þekkja sjálfan sig og geti betur beint orku sinni í uppbyggilegar athafnir og orð." Meira
28. september 2013 | Pistlar | 883 orð | 1 mynd

Kannski þeir ættu að ganga í skóla til Franz páfa?

Og byrja á því að skera niður kostnað í kringum sjálfa sig áður en þeir halda áfram að skera niður í heilbrigðiskerfinu. Meira
28. september 2013 | Aðsent efni | 464 orð | 1 mynd

Lausnin

Eftir Kára Stefánsson: "Leið til þess að fjármagna endurreisn heilbrigðiskerfisins" Meira
28. september 2013 | Pistlar | 459 orð | 1 mynd

Tungan á tímum niðurskurðar

Þeirri einfeldningslegu hugmynd hefur skotið upp í sparnaðarumræðunni að íslensk tunga sjái um sig sjálf og engu þurfi að eyða nema orðum í hana. Meira
28. september 2013 | Pistlar | 393 orð | 1 mynd

Uppskerubrestur Samfylkingar

Eflaust ríkir mikil óánægja innan herbúða Samfylkingar með nýjustu skoðanakönnun Gallup um fylgi flokksins í Reykjavík. Meira
28. september 2013 | Aðsent efni | 561 orð | 1 mynd

Vanhugsuð lög

Eftir Matthildi Björnsdóttur: "Það mun vera hægt að fara aftur í tímann og grafa eftir peningum sem voru gefnir afkomendum og líta á þá sem fyrirfram greiddan arf og/eða lán..." Meira
28. september 2013 | Velvakandi | 177 orð

Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is

Alls staðar er innræting Það vantar sjaldan innrætinguna hjá Ríkisútvarpinu. Þó kom mér á óvart, þegar ég horfði þar á barnaþátt í góðum félagsskap, hversu hiklaust menn ganga til verks. Þátturinn var teiknimynd um frosk og vini hans. Meira
28. september 2013 | Aðsent efni | 699 orð | 1 mynd

Verðbólga, launahækkanir og tryggingagjald

Eftir Stefán Einar Stefánsson: "Hins vegar mun fyrrnefnd aðgerð að öllum líkindum leiða til aukins hagvaxtar sem gefur fyrirtækjum í kjölfarið svigrúm til frekari umsvifa." Meira
28. september 2013 | Aðsent efni | 517 orð | 1 mynd

Þjóðarsátt um stöðugleika

Eftir Ólafíu B. Rafnsdóttur: "Félagar í VR vilja þjóðarsátt um stöðugleika og aukinn kaupmátt samkvæmt tveimur könnunum sem VR gerði meðal félagsmanna." Meira
28. september 2013 | Pistlar | 379 orð

Þjóðsögur um bankahrunið (7)

Margar þjóðsögur eru á kreiki um bankahrunið 2008 og aðdraganda þess. Ein er, að íslenskt atvinnulíf hafi löngum verið gerspillt. Meira

Minningargreinar

28. september 2013 | Minningargreinar | 2228 orð | 1 mynd

Brynjar Baldvinsson

Brynjar Baldvinsson fæddist á Gilsbakka á Litla-Árskógssandi 22. júní 1939. Hann lést á Dalbæ 19. september 2013. Brynjar var þriðja barn hjónanna Baldvins Jóhannessonar, f. 6.1. 1904, d. 13.1. 1974, og Jóhönnu Freydísar Þorvaldsdóttur, f. 6.8. 1914, d. Meira  Kaupa minningabók
28. september 2013 | Minningargreinar | 1080 orð | 1 mynd

Finnbogi Einarsson

Finnbogi Einarsson fæddist í Presthúsum 8. maí 1960. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 7. september 2013. Finnbogi var sonur hjónanna Hrefnu Finnbogadóttur, f. 22. apríl 1932, og Einars Kr. Klemenzsonar, f. 4. nóvember 1930, d. 12. janúar 2013. Meira  Kaupa minningabók
28. september 2013 | Minningargreinar | 1554 orð | 1 mynd

Kristín Jóna Guðmundsdóttir

Kristín Jóna Guðmundsdóttir fæddist í Staðarhöfða, Innri-Akraneshreppi 25. júlí 1925. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. september 2013. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson, f. 9. október 1882, d. 13. janúar 1946, og Guðrún K. Meira  Kaupa minningabók
28. september 2013 | Minningargreinar | 1053 orð | 1 mynd

Kristín Ólína Thoroddsen

Kristín Ólína Thoroddsen fæddist í Reykjavík 2. september 1940. Hún lést 18. september 2013 á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Foreldrar hennar voru hjónin Helga Laufey Eyjólfsdóttir Thoroddsen húsmóðir, f. 1905, d. Meira  Kaupa minningabók
28. september 2013 | Minningargrein á mbl.is | 1024 orð | 1 mynd | ókeypis

Þorsteinn Guðjónsson

Þorsteinn Guðjónsson fæddist í Vestmannaeyjum 11. september 1932. Hann lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 20. september 2013. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

28. september 2013 | Viðskiptafréttir | 210 orð | 1 mynd

Ekki samþykktir í núverandi mynd

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að nauðasamningar Kaupþings og Glitnis verði ekki samþykktir í núverandi mynd og bönkunum hafi verið gerð grein fyrir þeim skilyrðum sem uppfylla þurfi, eigi Seðlabankinn að samþykkja fyrir sitt leyti undanþágu frá... Meira
28. september 2013 | Viðskiptafréttir | 39 orð

Framleiðsluverð lækkar

Vísitala framleiðsluverðs hefur lækkað um 3% frá því í ágúst í fyrra og verðvísitala sjávarafurða lækkað um 3,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 5,1% en matvælaverð hefur hækkað um 2,9%, samkvæmt frétt Hagstofu... Meira
28. september 2013 | Viðskiptafréttir | 547 orð | 3 myndir

Samkeppni getur aukið skilvirkni

Fréttaskýring Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Arðsemi íslenskra fyrirtækja er almennt lág þegar tekið er tillit til þess hversu hátt vaxtastigið er á Íslandi. Meira
28. september 2013 | Viðskiptafréttir | 201 orð | 1 mynd

Tal tapaði 197 milljónum króna árið 2012

Tal tapaði 197 milljónum króna á síðasta ári. Helsta skýringin á tapi síðasta árs er sögð mikill kostnaður í tengslum við innleiðingu á nýjum fjarskiptasamningi þar sem allir viðskiptavinir Tals voru fluttir af kerfum Vodafone yfir á kerfi Símans. Meira

Daglegt líf

28. september 2013 | Daglegt líf | 99 orð | 1 mynd

1001 nótt - hver var höfundur þess stórkostlega sagnasafns?

Í dag, laugardag kl. 14, verður ævintýraleg dagskrá í Gerðubergi á vegum Café Lingua. Tveir rithöfundar, Mazen Maarouf, sem er frá Palestínu, og Juan Roman, sem kemur frá Kólumbíu, ætla að spjalla um hið heimsfræga sagnasafn 1001 nótt. Meira
28. september 2013 | Daglegt líf | 96 orð | 1 mynd

Blekking hins sjálfsprottna

Hugmyndir 21. aldarinnar, er röð málþinga á vegum ReykjavíkurAkademíunnar þar sem leitast er við að efna til þverfaglegrar umræðu um strauma og stefnur í mannvísindum samtímans og með hvaða hætti það birtist í verkum íslenskra vísindamanna. Meira
28. september 2013 | Daglegt líf | 77 orð | 1 mynd

...farið á tónleika í Árbæ

Tenórsöngvarinn Egill Árni Pálsson og sópransöngkonan Þóra Gylfadóttir ásamt Jóni Bjarnasyni píanóleikara munu halda tónleika á morgun sunnudag kl. 16 í Árbæjarkirkju. Gestur verður Matthías Nardeau óbóleikari. Meira
28. september 2013 | Daglegt líf | 70 orð | 1 mynd

Glæstar vonir vakna í dag

Samtökin ´78 vilja minna alla á mikilvægi sannrar mannvirðingar, manngæsku og mannréttinda. Með það að leiðarljósi blása þau til hátíðar í dag í Þróttaraheimilinu, Engjavegi 7, Reykjavík. Hátíðin hefst kl. 17 og stendur í u.þ.b. klukkustund. Meira
28. september 2013 | Daglegt líf | 1066 orð | 5 myndir

Hef aldrei fengið stjörnur í augun

Hann myndar stórstjörnurnar, býr bæði í Stokkhólmi og Los Angeles og nýtur þess til fulls að þeysast um á ítölsku eðalvélhjóli þegar hann er ekki á ferðalögum vegna vinnunnar. Meira
28. september 2013 | Daglegt líf | 97 orð | 1 mynd

Hið árlega kjólaball

Hið árlega kjólaball Heimilistóna verður haldið í Iðnó í kvöld. Andrea Jóns þeytir skífum frá klukkan 22 og allir ættu að vera vel upphitaðir þegar Heimilistónar stíga á svið. Meira
28. september 2013 | Daglegt líf | 58 orð | 1 mynd

Söguganga um Árbæjarhverfi

Á morgun, sunnudag, verður söguganga um Árbæinn. Meira

Fastir þættir

28. september 2013 | Fastir þættir | 158 orð | 1 mynd

18 tegundir og 10,5 milljón lítrar af bjór

Árlega eru bruggaðir tíu og hálf milljón lítrar bjórs í brugghúsi Vífilfells á Akureyri. Tegundirnar eru 18 talsins, meðal þeirra eru Víking, Thule og Carlsberg og þeim til viðbótar eru tíu árstíðabundnar tegundir, t.d. jóla- og þorrabjór. Meira
28. september 2013 | Í dag | 165 orð | 1 mynd

1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. e3 a6 5. Bd2 e6 6. Dc2 Rbd7 7. Rc3 dxc4...

1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. e3 a6 5. Bd2 e6 6. Dc2 Rbd7 7. Rc3 dxc4 8. Bxc4 b5 9. Be2 Bb7 10. Re4 Rxe4 11. Dxe4 Db6 12. Re5 Rf6 13. Df4 c5 14. Bh5 Bd6 15. Bxf7+ Ke7 16. Dg5 Bxe5 17. Dxg7 Re8 18. Dxe5 Kxf7 19. dxc5 Dc7 20. Dh5+ Kf8 21. Bc3 Rg7 22. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 263 orð | 1 mynd

3.000 bílar og 150 starfsmenn um allt land

Bílaleiga Akureyrar – Höldur er stærsta bílaleiga landsins, með um 3.000 bíla á sínum snærum yfir sumartímann, 150 starfsmenn og starfsstöðvar á 16 stöðum um allt land, en aðalstöðvarnar eru á Akureyri. Meira
28. september 2013 | Í dag | 1311 orð | 1 mynd

AKUREYRARKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur er sr. Hildur...

Orð dagsins Æðsta boðorðið. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 322 orð | 1 mynd

Ákvað að prófa allt í vetur!

María Dís Ólafsdóttir úr Kelduhverfi verður stúdent frá Verkmenntaskólanum á Akureyri í vor. Hún er ári á undan jafnöldrunum í skóla – fékk að sleppa 8. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 9 orð

Á mánudaginn

Hrísey er næsti viðkomustaður á 100 daga hringferð... Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 118 orð | 1 mynd

„Allir hlæja á öskudaginn“

Ein þeirra hefða sem Akureyringar halda mjög fast í er að börn gangi á milli fyrirtækja á öskudaginn, kveði upp raust sína og þiggi góðgæti fyrir. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 82 orð

Bridsdeild Breiðfirðinga Sunnudaginn 22.9. var spilaður tvímenningur...

Bridsdeild Breiðfirðinga Sunnudaginn 22.9. var spilaður tvímenningur. Spilað var á tíu borðum. Hæsta skor kvöldsins í N/S: Karl Karlss. – Sigurður R. Steingrss. 266 Þorleifur Þórarinss. – Haraldur Sverr. 247 Þorgeir Ingólfss. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 162 orð | 1 mynd

Danska dafnar enn í Innbænum

Oft er sagt að danskra áhrifa gæti mjög á Akureyri og þá helst í Innbænum svonefnda, sem er elsti hluti kaupstaðarins. Húsin þar, sem mörg eru byggð um miðja 19. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 152 orð | 1 mynd

Ein með rauðkáli og kokteilsósu

Sumum þóttu Akureyringar sérvitrir í eina tíð og þykir eflaust enn. Eitt sem fólk á borgarhorninu hló mikið að var þegar norðanmaður vatt sér að pylsusala og bað um eina með alls kyns hefðbundu meðlæti, og bætti svo við hann vildi líka fá rauðkál. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 949 orð | 3 myndir

Einstakt að geta lært heimskautarétt

Malín Brand malin@mbl.is Háskólinn á Akureyri er sérstakur fyrir margra hluta sakir. Þar er rík áhersla lögð á fræðasvið er tengjast norðurslóðum og eru viðmiðin í rannsóknum og kennslu alþjóðleg. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 201 orð | 1 mynd

Engar ýkjur Sverris að safnið er mikið að vöxtum og fjölbreytt

Sá sem kemur í Smámunasafn Sverris Hermannssonar í Sólgarði gleymir ekki stund sem notið er þar. Það má fullyrða. Þetta er án efa eitt óvenjulegasta safn landsins; menn setur nánast hljóða þegar gengið er inn og í ljós kemur allt sem Sverrir safnaði. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 452 orð | 2 myndir

Fallhlífarstökkið er mér mikil ástríða

Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Innbæingurinn Sigurður Baldursson er sannkallaður ævintýramaður. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 769 orð | 2 myndir

Farsælir frá fyrsta degi endurreisnar

Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Eftir að Slippstöðin á Akureyri varð gjaldþrota árið 2005 tóku nokkrir starfsmenn fyrirtækisins sig saman og endurreistu það undir nafninu Slippurinn Akureyri. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 339 orð | 2 myndir

Fertugt, fjörugt og í fantaformi

Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins er Leikfélag Akureyrar. Það hefur verið starfrækt í tæpa öld, en varð atvinnuleikhús fyrir 40 árum. Meira
28. september 2013 | Árnað heilla | 267 orð | 1 mynd

Forfallið afmælisbarn í Ísland í dag

Ég verð að játa það að ég er alveg fáránlega mikill afmælisgrís. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 484 orð | 3 myndir

Fréttaskrif eru línudans

Sterk fjölmiðlahefð er á Akureyri. Tvö vikublöð eru gefin út í bænum; Vikudagur og Akureyri vikublað. Áherslur þessara blaða eru gjörólíkar. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 101 orð | 1 mynd

Frítt í strætó og gefst mjög vel

Ókeypis hefur verið að taka sér far með strætisvagninum á Akureyri undanfarin ár og gefið mjög góða raun. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 76 orð | 1 mynd

Gerði garðinn frægan...

Lystigarðurinn á Akureyri er einn allra fallegasti skrúðgarður landsins og án efa vinsælasti viðkomustaður ferðamanna í bænum. Almenningsgarður var opnaður formlega 1912 en grasagarðurinn 1957. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 113 orð

Hannesarmótið í Gullsmára Spilað var á 12 borðum í Gullsmára...

Hannesarmótið í Gullsmára Spilað var á 12 borðum í Gullsmára fimmtudaginn 26. september. Úrslit N/S: Jón Bjarnar – Katarínus Jónsson 241 Jón Stefánss. – Viðar Valdimarss. 193 Ragnh. Gunnarsd. – Sveinn Sigurjónss. Meira
28. september 2013 | Árnað heilla | 551 orð | 4 myndir

Hefur áhuga á uppeldisfræði og guðfræði

Ásdís fæddist á Seyðisfirði 29.9. 1953 og ólst þar upp. Hún gekk í Barnaskóla Seyðisfjarðar og fór síðan 15 ára til náms til Reykjavíkur en dvaldi á sumrum heima á Seyðisfirði þar sem hún starfaði lengst af á leikskóla. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 96 orð | 1 mynd

Heimili skálds og fagurkera

Skáldahúsin eru áhugaverður hluti safnaflóru Akureyrar; Nonnahús, Sigurhæðir, hús séra Matthíasar Jochumssonar, og Davíðshús, sem Davíð Stefánsson frá Fagraskógi byggði við Bjarkarstíg 1944. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 96 orð | 1 mynd

Heimili skálds og fagurkera

Skáldahúsin eru áhugaverður hluti safnaflóru Akureyrar; Nonnahús, Sigurhæðir, hús séra Matthíasar Jochumssonar, og Davíðshús, sem Davíð Stefánsson frá Fagraskógi byggði við Bjarkarstíg 1944. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 101 orð | 1 mynd

Heyrði rifbeinin brotna

Sigurður lenti í mjög alvarlegu slysi árið 2009 en náði sér ótrúlega vel. „Ég heyrði rifbeinin brotna, þetta gerðist það hægt að ég var eins og í pressu. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 835 orð | 4 myndir

Húna II er hampað í höndum hollvina

Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Já, hann Húni er býsna sérstakur, það er óhætt að segja það. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 76 orð

Hörkuslagur í hausttvímenningi í Kópavogi Annað kvöldið af þremur í...

Hörkuslagur í hausttvímenningi í Kópavogi Annað kvöldið af þremur í Hausttvímenningi Bridsfélags Kópavogs var spilað sl. fimmtudag. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 33 orð

Íslandsmót kvenna í tvímenningi Helgina 12.-13.október nk. verður haldið...

Íslandsmót kvenna í tvímenningi Helgina 12.-13.október nk. verður haldið Íslandsmót kvenna í tvímenningi. Skráning er hjá Bridssambandinu en henni lýkur á hádegi 11. okt. Núverandi Íslandsmeistarar eru Ljósbrá Baldursdóttir og Anna Þóra... Meira
28. september 2013 | Í dag | 19 orð

Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið...

Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig. Meira
28. september 2013 | Í dag | 344 orð

Líkþorn á vinstri löpp og norðlenska aðferðin

Enn var karlinn á Laugaveginum að snúast í kringum Ráðhúsið þegar ég sá hann og nikkaði til höfðinu eins og hann gerir þegar honum er heitt í hamsi: Einn með sjálfum sér í ráðum svartri tungu um höfuð vefur: „Flugvöllurinn burt fer bráðum. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 403 orð | 1 mynd

Mazda frá árinu 1987 er kennslubifreiðin

Malín Brand malin@mbl.is Á fjórða hundrað nemenda hafa lært að aka hjá Hauki Ívarssyni síðan hann keypti bílinn, Mözdu 626, nýjan fyrir tuttugu og sex árum. Ökukennslan er aukabúgrein hjá Hauki sem er menntaður bifvélavirki. Meira
28. september 2013 | Í dag | 39 orð

Málið

Enn skal hér minnst á Ingibjörgu-vandann , sem hefur verið kallaður eignarfallsflótti . Það eru nokkrir áratugir síðan hann brast á af fullum þunga. Við sem eftir erum í virkinu höldum þó áfram að fara til Ingi bjargar... Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 208 orð | 1 mynd

Mikil samstaða, söngur, gleði og fjölbreytt félagslíf í MA

„Hérna er mikill félags- og hópandi og margir segja að það sé einstaklega mikil samstaða meðal nemendanna í MA,“ segir Bjarni Karlsson, formaður Hugins, nemendafélags Menntaskólans á Akureyri. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 211 orð | 1 mynd

Mikil samstaða, söngur, gleði og fjölbreytt félagslíf í MA

„Hérna er mikill félags- og hópandi og margir segja að það sé einstaklega mikil samstaða meðal nemendanna í MA,“ segir Bjarni Karlsson, formaður Hugins, nemendafélags Menntaskólans á Akureyri. Meira
28. september 2013 | Árnað heilla | 238 orð | 1 mynd

Ragnar H. Ragnar

Ragnar Hjálmarsson Ragnar, skólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar, fæddist á Ljótsstöðum í Reykdælahreppi 28.9. 1898. Foreldrar hans voru Hjálmar Jónsson, bóndi á Ljótsstöðum, af Skútustaðaætt, og k.h. Meira
28. september 2013 | Árnað heilla | 24 orð | 1 mynd

Reykjavík Perla María fæddist 11. janúar. Hún vó 3.608 og var 50 cm...

Reykjavík Perla María fæddist 11. janúar. Hún vó 3.608 og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Bergdögg Hrönn Ólafsdóttir og Haukur Leósson... Meira
28. september 2013 | Árnað heilla | 26 orð | 1 mynd

Reykjavík Viktor Ingi fæddist 14. desember kl. 22.11. Hann vó 2.900 g og...

Reykjavík Viktor Ingi fæddist 14. desember kl. 22.11. Hann vó 2.900 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Hrefna Jóhannsdóttir og Marteinn Skúlason... Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 311 orð | 3 myndir

Reynum að vera öðruvísi

Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Við höfum alltaf reynt að vera öðruvísi en aðrir og við ákváðum strax í byrjun hvernig við vildum verða. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 208 orð | 1 mynd

Sérstæður torfbær og alls sex kirkjur í einni sveit fyrir norðan

Gömlu torfbæirnir hafa varðveist betur á Norðurlandi en annars staðar og kemur þar til að nyrðra er skjólsælla og yfirleitt úrkomuminna en raunin er í öðrum landshlutum. Allmörg stök hús í gamla stílnum eru nyrðra, en einnig heilu bæirnir. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 189 orð | 1 mynd

Stórveldi lifir

Staðan á fjárfestingamarkaði í dag er snúin. Því miður eru ekki í boði jafn mörg tækifæri til fjárfestinga og við hefðum kosið,“ segir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA svf. Gamla stórveldið lifir enn. Meira
28. september 2013 | Árnað heilla | 403 orð

Til hamingju með daginn

Laugardagur 100 ára Lára Sæmundsdóttir 85 ára Már Elísson Sigríður Ágústa Guðmundsdóttir Sigþór Sigurðsson 80 ára Garðar Óskar Pálmason Ingveldur Valdemarsdóttir Vignir Sigurjónsson 75 ára Erna Þórdís Guðmundsdóttir Hulda Hjálmarsdóttir Karl Jóhann Már... Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 282 orð | 1 mynd

Útlendingar sækja í íslenska rétti, Íslendingar í skyndibitann

Þeir eru líklega fáir Íslendingarnir sem hafa ekki heyrt minnst á veitingastaðinn Bautann á Akureyri en hann hefur verið rekinn í Hafnarstræti samfleytt í rúm fjörutíu ár eða frá árinu 1971. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 713 orð | 2 myndir

Við viljum gera betur í dag en í gær

Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Þorvaldur Þóroddsson er liðlega hálffertugur Norðfirðingur sem síðustu misseri hefur gegnt starfi framleiðslustjóra landvinnslu Samherja. „Það kom aldrei annað til greina en að starfa í sjávarútvegi. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 362 orð

Víkverji

Asskoti er gott í þessu,“ sagði Víkverji þegar hann tók upp símann sinn; gamlan „spjall“-síma – ekki snjallsíma, af jörðinni eftir að hafa fallið niður á steinsteypta stétt af fjórðu hæð. Meira
28. september 2013 | Fastir þættir | 933 orð | 2 myndir

Yfrið nóg að gera í helga steininum

Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Arngrímur Jóhannsson flugstjóri lætur ekki mikið fyrir sér fara, en er þó fyrir augum Akureyringa með reglulegu millibili, oft marga daga í viku. Meira
28. september 2013 | Í dag | 119 orð | 1 mynd

Þetta gerðist...

28. september 1943 Haraldur Böðvarsson útgerðarmaður og kona hans gáfu Akraneskaupstað nýbyggt kvikmynda- og hljómleikahús sem tók 377 manns í sæti. Tekjum af rekstri hússins átti að verja til mannúðar- og menningarmála. Húsið var vígt 8. Meira

Íþróttir

28. september 2013 | Íþróttir | 191 orð

Bikar á loft og stigamet í sigti KR

Því miður er lítil spenna fyrir leikina í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í knattspyrnu sem leikin verður í dag. Úrslitin eru ráðin á toppi og botni. KR-ingar eru orðnir Íslandsmeistarar og Vesturlandsliðin ÍA og Víkingur Ólafsvík eru fallin. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 199 orð | 1 mynd

Bý mig undir það versta og vona það besta

„Ég er verri í dag en í gærkvöldi. Nú get ég vart staulast um á hækjum,“ sagði Daníel Berg Grétarsson, leikstjórnandi handknattleiksliðs HK, í samtali við Morgunblaðið í gær. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 182 orð | 1 mynd

Bætt snemma úr titlaleysi

Það verða KR og Keflavík sem leika til úrslita í Njarðvík á morgun um fyrsta stóra titilinn sem í boði er á keppnistímabilinu í körfuknattleik karla, deildabikarinn. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 85 orð | 1 mynd

Deildabikar karla Undanúrslit í Njarðvík: Keflavík – Snæfell 96:70...

Deildabikar karla Undanúrslit í Njarðvík: Keflavík – Snæfell 96:70 Stigahæstir í Keflavík : Darrel Keith Lewis 22/6 fráköst, Michael Craion 18/12 fráköst, Ragnar Gerald Albertsson 11. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 152 orð | 1 mynd

Einar sneri aftur í sigri á KR

Stórskyttan Einar Hólmgeirsson sneri aftur á handboltavöllinn í gær og það á kannski heldur óvenjulegum slóðum, í KR-heimilinu. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 777 orð | 2 myndir

Gervigrasið breiðir úr sér í Evrópu

Gervigras Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Átján knattspyrnulið sem leika í efstu deildum karla í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og Danmörku spila heimaleiki sína á gervigrasi. Þar af sjö í Svíþjóð. Átta af tólf liðum sænsku kvennadeildarinnar spila á gervigrasi. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 752 orð | 2 myndir

Hreint út sagt frábær tími

fótbolti Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Freyr Bjarnason, miðvörðurinn tignarlegi í liði FH, leikur í dag sinn síðasta leik en hann hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 529 orð | 2 myndir

Íþróttahús smám saman að heimavelli

Handbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is ÍR-ingar höfðu á vissan hátt upplifað sig sem gesti á eigin heimili þar til þeir tóku yfir rekstur Austurbergs, helsta handknattleikshúss félagsins, árið 2011. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 182 orð | 1 mynd

KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi-deildin: Kaplakriki: FH &ndash...

KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi-deildin: Kaplakriki: FH – Stjarnan L14 KR-völlur: KR – Fram L14 Kópavogsv.: Breiðablik – Keflavík L14 Norðurálsvöllur: ÍA – Fylkir L14 Ólafsvíkurvöllur: Víkingur Ó. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 188 orð | 2 myndir

Martin og Viðar efstir fyrir lokaumferð

Það ræðst eftir lokaumferðina í Pepsi-deildinni í knattspyrnu í dag hvaða leikmaður mun standa uppi sem markakóngur deildarinnar og hampar gullskónum. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 335 orð | 2 myndir

Norska knattspyrnusambandið tilkynnti í gær að Per-Mathias Högmo hefði...

Norska knattspyrnusambandið tilkynnti í gær að Per-Mathias Högmo hefði verið ráðinn þjálfari norska karlalandsliðsins og mun hann leysa Egil „Drillo“ Olsen af hólmi þegar í stað. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 205 orð | 1 mynd

Ó lafur Þórðarson verður áfram þjálfari knattspyrnuliðs Víkings úr...

Ó lafur Þórðarson verður áfram þjálfari knattspyrnuliðs Víkings úr Reykjavík sem tryggði sér sæti í efstu deild á ný eftir tveggja ára fjarveru um síðustu helgi. Þá verður Milos Milojevic áfram aðstoðarþjálfari Víkings. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 219 orð | 1 mynd

Sjöunda árið framundan hjá Heimi og FH

Heimir Guðjónsson verður sitt sjöunda tímabil sem aðalþjálfari knattspyrnuliðs FH árið 2014 en hann skrifaði undir nýjan samning við knattspyrnudeild félagsins í gær. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 28 orð | 1 mynd

Spánn Valladolid – Málaga 2:2 Þýskaland Augsburg &ndash...

Spánn Valladolid – Málaga 2:2 Þýskaland Augsburg – Mönchengladbach 2:2 England B-deild: Huddersfield – Blackpool 1:1 Austurríki B-deild: Hartberg – Austria Lustenau 0:1 • Helgi Kolviðsson þjálfar... Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 671 orð | 2 myndir

Tími er kominn á frjálsíþróttavöll í borginni

Aðstaða Ívar Benediktsson iben@mbl.is Frjálsíþróttir hafa verið í mikilli sókn hér á landi á síðustu árum, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Öflugt starf er unnið hjá Frjálsíþróttadeild ÍR og fleiri deildir hafa sótt í sig veðrið, m.a. Ármenningar. Meira
28. september 2013 | Íþróttir | 153 orð | 1 mynd

Þrír Fylkismenn í úrvalsliði 18. umferðar

Margar af umferðum Pepsi-deildar karla í fótboltanum í sumar hafa verið dreifðar vegna frestana. Fyrir vikið hefur ekki verið hægt að birta úrvalslið umferðarinnar fyrr en seint og um síðir. Þannig var með 18. umferðina sem var á dagskrá 1. september. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.