Greinar fimmtudaginn 19. janúar 2017

Fréttir

19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 52 orð | 1 mynd

86% til þeirra tekjuhærri

Þau tíu prósent landsmanna sem þénuðu mest á árinu 2014 fengu tæplega 30% þeirra 72,2 milljarða króna sem síðasta ríkisstjórn ráðstafaði í höfuðstólsleiðréttingar fasteignaveðlána. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 436 orð | 3 myndir

Áhyggjur af heilsugæslu í Rangárþingi

Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti á fundi sínum á mánudag ályktun þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna heilsugæslu í Rangárþingi, en heilsugæslulæknir við Heilsugæslu Rangárþings hefur sagt starfi sínu lausu. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 404 orð | 4 myndir

Bryndís Rún og Viktor best á Akureyri

ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Bryndís Rún Hansen sundkona úr Óðni og Viktor Samúelsson kraftlyftingamaður úr KFA voru kjörin íþróttakona og íþróttakarl Akureyrar fyrir árið 2016. Kjöri þeirra var lýst í hófi í menningarhúsinu Hofi í gær. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 31 orð | 1 mynd

Eggert

Sældarlíf Þær eru vel haldnar litríku kindurnar á Staðarbakka í Fljótshlíð og kippa sér ekki upp við það þótt hinn vaski heimilishundur Vaskur trítli á milli þeirra. Fylgjast grannt með... Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 179 orð | 1 mynd

Fengu sýn ráðherrans

„Við fengum hjá henni skýringar á ákveðnum liðum í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og fórum yfir mál sem við teljum miklu varða,“ segir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 257 orð

Flensan leggst þyngst á aldrað fólk

Fremur fáir hafa leitað til heilsugæslustöðva og á bráðamóttökur vegna inflúensu, en þó hefur fjöldi einstaklinga með staðfest einkenni hennar farið vaxandi og hlutfall jákvæðra sýna er nokkuð hátt, að mati landlæknisembættisins. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 142 orð | 1 mynd

Flugfreyjur boða verkfall

Félagar í Flugfreyjufélagi Íslands samþykktu í atkvæðagreiðslu í gær að boða til verkfalls ef ekki semdist á næstu dögum í kjaradeilu félaga við Flugfélag Íslands. Þetta var samþykkt með þremur fjórðu hlutum atkvæða, samkvæmt frétt RÚV. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 81 orð

Flugi stjórnað úr 75 gervihnöttum

Isavia hefur undirritað samning við bandaríska fyrirtækið Aireon um notkun á geimlægum kögunarbúnaði til þess að stýra flugumferð í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 420 orð | 1 mynd

Genum sem stýra menntun fólks fækkar

Ný rannsókn vísindamanna Íslenskrar erfðagreiningar gefur því undir fótinn að gáfnafari Íslendinga, og hugsanlega þjóða almennt, hnigni eftir því sem árin líða. Þetta er rakið til þess að því menntaðra sem fólk verður, því færri börn eignist það. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 103 orð | 1 mynd

Greindarvísitala lækkar um 0,04% á hverjum áratug og menntunargenum fækkar

Eftir því sem menntunarstig fólks er hærra eignast það færri börn. Þetta hefur það í för með sér að gáfnafari fólks hnignar. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar Íslenskrar erfðagreiningar, sem birtust í bandarísku vísindariti í fyrradag. Meira
19. janúar 2017 | Erlendar fréttir | 112 orð | 1 mynd

Hlýjasta ár frá upphafi mælinga

Liðið ár var það hlýjasta frá því að mælingar hófust árið 1880, að sögn bandarískra vísindamanna í gær. Þeir sögðu helstu ástæðuna vera mikla losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 251 orð | 2 myndir

Hreyfing veitir þrek og söngur léttir lund

Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Stefán Bjarnason, fyrrverandi yfirlögregluþjónn á Akranesi, hélt upp á 100 ára afmæli sitt á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi í gær þar sem hann tók á móti vinum sínum og vandamönnum í síðdegiskaffi. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 369 orð | 1 mynd

Kennslu- og einkaflugið er enn í Reykjavík

Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fjárskortur veldur því að ekki hefur verið fundinn nýr staður fyrir kennslu- og einkaflug í nágrenni Reykjavíkur eins og samið var um milli ríkis og borgar árið 2013. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 45 orð | 1 mynd

Kveða rímur í Mengi

Félagar úr Kvæðamannafélaginu Iðunni troða upp í Mengi í fyrsta sinn og kveða vel valdar rímur í kvöld kl. 21. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 359 orð | 2 myndir

Laun kjörinna fulltrúa hækka um 45 %

Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í gær með sex atkvæðum gegn fjórum að binda laun kjörinna fulltrúa við þingfararkaup. Meira
19. janúar 2017 | Erlendar fréttir | 347 orð | 2 myndir

Leiðir mildun dómsins til framsals Assange?

Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ekki var ljóst í gær hvort sú ákvörðun Baracks Obama Bandaríkjaforseta að stytta fangelsisdóminn yfir uppljóstraranum Chelsea Manning gæti orðið til þess að Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, yrði saksóttur í Bandaríkjunum. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 45 orð | 1 mynd

Leiðsögn í Ketilhúsi

Boðið er upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, í dag klukkan 12.15 um yfirlitssýningu á verkum Nínu Tryggvadóttur, Litir, form og fólk, og sýningu Freyju Reynisdóttur, Sögur. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 91 orð

Matið í höndum dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur veitti lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu heimild til að afla og bera saman upplýsingar um farsíma sem tengdust sömu fjarskiptamöstrum og á sama tíma og sími Birnu Brjánsdóttur morguninn sem hún hvarf. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 431 orð | 1 mynd

Meta stöðuna og greiða úr flækjum

Ómar Friðriksson omfr@mbl. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 186 orð | 2 myndir

Nóttin nýtt til yfirheyrslna

Fjölmenni var við Hafnarfjarðarhöfn og fjöldi lögreglubíla var á hafnarsvæðinu þegar grænlenski togarinn Polar Nanoq lagðist þar að bryggju á tólfta tímanum í gærkvöldi eftir að íslensk lögregluyfirvöld höfðu óskað þess að skipið kæmi hingað til lands... Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 480 orð | 2 myndir

Nýta má síma í leit og við rannsókn

Sviðsljós Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Við hjá Símanum förum að fjarskipta- og persónuverndarlögum. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 81 orð | 1 mynd

Ráðin aðstoðarmaður

Laufey Rún Ketilsdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin aðstoðarmaður Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra. Laufey Rún er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands (BA) og Háskólanum í Reykjavík (MA). Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 346 orð | 1 mynd

Reynir að grína pínulítið

Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Skemmtikrafturinn, söngvarinn, þjóðargersemin og þúsundþjalasmiðurinn Þórhallur Sigurðsson, eða Laddi eins og hann er betur þekktur, verður sjötugur á morgun. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 168 orð | 1 mynd

Ræddu hækkanir kjararáðs og Salek

Hópur forystumanna Alþýðusambands Íslands átti í gærmorgun fund með Þorsteini Víglundssyni, félags- og jafnréttismálaráðherra, þar sem m.a. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 62 orð | 1 mynd

Sigurgeir fékk Fréttapýramídann

Sigurgeir Jónasson ljósmyndari frá Skuld er Eyjamaður ársins 2016. Hlaut hann viðurkenninguna Fréttapýramídann fyrir, en Fréttapýramídinn er veittur árlega nokkrum einstaklingum eða félagasamtökum fyrir vel unnin störf að ýmsum málum í Vestmannaeyjum. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 160 orð

Sjálfstæðisflokkur stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi stjórnmálaflokka, 26,1% samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR sem birt var í gær. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 105 orð | 1 mynd

Sjávarútvegsrisar vinna saman og framleiða kollagen úr þorskroði á Suðurnesjum

Fyrirhugað er að taka fyrstu skóflustunguna að nýju heilsuvöruhúsi á Reykjanesi í vor, þar sem framleitt verður kollagenprótein úr þorskroði. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 244 orð | 1 mynd

Sleppa við að greiða gjöld af olíu

„Íslensk skip sem kaupa eldsneyti í erlendum höfnum sleppa við að greiða kolefna- og virðisaukaskatt og flutningsjöfnunargjald. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 412 orð | 2 myndir

Stjórna flugumferð í gegnum gervihnetti

Baksvið Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Isavia hefur undirritað samning við bandaríska fyrirtækið Aireon um notkun á geimlægum kögunarbúnaði til þess að stýra flugumferð í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 105 orð | 1 mynd

Stjörnum prýtt sjötugsafmæli

Úrvalslið íslenskra tónlistarmanna mun stíga á svið með Ladda í Hörpu. Þar ber helst að nefna söngvarana Eyþór Inga, Eyjólf Kristjánsson, Bjartmar Guðlaugsson, Sigríði Beinteinsdóttur og Sigríði Thorlacius. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 383 orð | 1 mynd

Sækja í íslenskt loft

Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Kínverskir ferðamenn sækja í ferðamannastaði með hreinu lofti, samkvæmt frétt í breska tímaritinu Telegraph og er Ísland meðal vinsælustu staðanna til að heimsækja. Meira
19. janúar 2017 | Erlendar fréttir | 129 orð | 1 mynd

Talinn meðal bestu forsetanna

Skoðanakannanir í Bandaríkjunum benda til þess að stuðningurinn við Barack Obama hafi aukist og sé nú næstum jafnmikill og hann var fyrsta árið sem hann gegndi forsetaembættinu. Samkvæmt nýrri könnun CNN eru um 60% Bandaríkjamanna ánægð með störf hans. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 63 orð | 1 mynd

Tappi tíkarrass á Húrra í kvöld

Rokksveitin Tappi tíkarrass heldur tónleika á Húrra í kvöld kl. 20. Hljómsveitin var stofnuð 1981 af fjórum ungum mönnum og gekk Björk Guðmundsdóttir fljótlega til liðs við hana og söng með Eyþóri Arnalds. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 243 orð | 1 mynd

Tollverðir stöðvuðu 15 burðardýr í Keflavík

Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Tollverðir á Keflavíkurflugvelli stöðvuðu fimmtán burðardýr fíkniefna á nýliðnu ári, 2016. Meira
19. janúar 2017 | Erlendar fréttir | 299 orð

Trump sá óvinsælasti í áratugi

Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Nýjar skoðanakannanir í Bandaríkjunum benda til þess að þegar Donald Trump tekur við forsetaembættinu á morgun njóti hann minni stuðnings en nokkur annar forseti í byrjun kjörtímabils síns. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 280 orð | 1 mynd

Útboð gætu hafist um áramót

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sveitarstjórnir Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafa samþykkt að kynna fyrir almenningi og hagsmunaaðilum lýsingu vegna deiliskipulags fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar í Þjórsá. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 72 orð | 1 mynd

Þakkar fyrir samhug og styrk

Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu Brjánsdóttur, sendi í gær tilkynningu til fjölmiðla þar sem hún þakkaði almenningi, lögreglu og björgunarsveitum fyrir aðkomu sína að leitinni að Birnu. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 774 orð | 3 myndir

Þrír skipverjanna í haldi lögr eglunnar

Anna S. Einarsdóttir, Anna L. Þórisdóttir, Freyr Bjarnason, Hallur M. Meira
19. janúar 2017 | Innlendar fréttir | 73 orð | 1 mynd

Öryggið í fremstu röð

Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs Isavia, ritaði undir samninginn ásamt Cyriel Kronenburg, aðstoðarforstjóra Aireon. Meira

Ritstjórnargreinar

19. janúar 2017 | Leiðarar | 259 orð

Efasemdir í Moldavíu um ESB

Ógæfu Brussel verður flest að vopni Meira
19. janúar 2017 | Leiðarar | 362 orð

Hetja eða föðurlandssvikari?

Ákvörðun Obama um að milda dóm yfir Manning er afar umdeild Meira
19. janúar 2017 | Staksteinar | 214 orð | 1 mynd

Stefna sem hefur afsannað gildi sitt

Á borgarstjórnarfundi á þriðjudag var mikið bókað um lóða- og húsnæðismál. Meira

Menning

19. janúar 2017 | Tónlist | 443 orð | 2 myndir

„Þjóðlagastílar sameinaðir“

Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við höfum þekkst í á þriðja ár og starfað saman í tengslum við kammerkórinn Hymnodiu. Meira
19. janúar 2017 | Bókmenntir | 160 orð | 4 myndir

Er allt leyfilegt í listum?

Boðið verður upp á hádegisspjall um siðferði í listum í stofu 422 í Árnagarði á morgun, föstudag, milli kl. 12 og 13. „Undanfarin ár hafa mörkin milli veruleika og skáldskapar orðið æ óljósari í listalífi landsmanna. Meira
19. janúar 2017 | Fjölmiðlar | 200 orð | 1 mynd

Húsbændur og hjú

Aldrei virðist hægt að fá leið á Matador. Þessir dönsku þættir eldast betur en flest sjónvarpsefni. Miðað við hvar komið er sögu nú í sýningum RÚV eru ofsóknir á hendur gyðingum farnar að teygja anga sína til Danmerkur. Meira
19. janúar 2017 | Bókmenntir | 745 orð | 3 myndir

Hver sá sem lendir af þunga í ljóðum ...

Eftir Sigurlín Bjarneyju Gísladóttur. Mál og menning, 2016. Kilja, 62 bls. Meira
19. janúar 2017 | Tónlist | 250 orð | 1 mynd

Íslandshátíð í Elbphilharmonie

Gagnrýnendur hafa lofað hljómburð hinnar glæstu nýju tónleikahallar í Hamborg, Elbphilharmonie, en opnunartónleikarnir voru 11. janúar síðastliðinn. Meira
19. janúar 2017 | Bókmenntir | 219 orð | 1 mynd

Kjósa pappírinn fremur en skjáinn

Ný dönsk rannsókn leiðir í ljós að fólk kýs að lesa lengri texta á pappír fremur en af skjá. Frá þessu er greint í danska dagblaðinu Politiken . Alls sögðust 77% aðspurðra kjósa að lesa lengri texta s.s. Meira
19. janúar 2017 | Kvikmyndir | 490 orð | 3 myndir

Landið sem átti fólk

Leikstjórn: Guðmundur Bergkvist. Stjórn kvikmyndatöku: Guðmundur Bergkvist. Eftirvinnsla: Jóhannes Tryggvason. 52 mín. Ísland 2017. Meira
19. janúar 2017 | Myndlist | 91 orð | 1 mynd

Listsköpun, úrvinnsla og algrím

Viktor P. Hannesson gengur í dag kl. 17 um sýningarsali Ásmundarsafns og leiðir umræður um sjónrænar tengingar abstraktlistar við algóriþma í tengslum við sýningu Ásmundar Sveinssonar og Þorvalds Skúlasonar, Augans börn . Meira
19. janúar 2017 | Tónlist | 592 orð | 1 mynd

Norðurlönd best í samtímatónlist

Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Á efnisskrá tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld er hin þekkta sjötta sinfónía Pjotrs Tsjajkovskíj, „Pathétique“. Meira

Umræðan

19. janúar 2017 | Pistlar | 503 orð | 1 mynd

Líf mitt sem „hipster“

Eitt af þeim vandamálum sem er svolítið falið í okkar ágæta þjóðfélagi er hversu erfitt getur verið fyrir okkur „hipsterana“ að vera „hipsterar“. Meira
19. janúar 2017 | Aðsent efni | 1005 orð | 1 mynd

Með jafnvægi og framsýni að leiðarljósi

Eftir Bjarna Benediktsson: "Ný ríkisstjórn vill nálgast úrlausn mála undir merkjum frjálslyndis og réttsýni. Ísland á að vera eftirsóknarvert fyrir alla þá sem vilja taka þátt í að byggja upp íslenskt samfélag til framtíðar." Meira
19. janúar 2017 | Aðsent efni | 1006 orð | 1 mynd

Með upptöku evru mætti spara gífurlegar fjárhæðir

Eftir Óla Anton Bieltvedt: "Upptaka evrunnar gæti sparað þjóðinni 300 milljarða króna á ári, aðeins á grundvelli vaxtalækkunar." Meira
19. janúar 2017 | Aðsent efni | 38 orð | 1 mynd

Skinntrefill tapaðist

Svartur skinntrefill tapaðist í gær, eigandi hans var á ferð á Vitastíg, gekk niður Laugaveg, upp Skólavörðustíg og fór um Týsgötu líka. Hafi einhver fundið trefilinn má sá hinn sami hringja í síma 690-3335. Eldri kona í... Meira

Minningargreinar

19. janúar 2017 | Minningargreinar | 472 orð | 1 mynd

Anna H. Sveinbjörnsdóttir

Anna Hallfríður Sveinbjörnsdóttir fæddist á Á í Unadal, Skagafirði, 28. ágúst 1921. Hún lést á Hrafnistu í Reykjanesbæ 9. janúar 2017. Foreldrar hennar voru Sveinbjörn Sigurður Sveinbjörnsson, f. 27. maí 1893, d. 27. Meira  Kaupa minningabók
19. janúar 2017 | Minningargreinar | 1070 orð | 1 mynd

Ágústa Jóhanna Friðriksdóttir Hafberg

Ágústa fæddist á Flateyri 14. apríl 1937. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold 8. janúar 2017. Foreldrar hennar voru Friðrik Einarsson Hafberg, f. 13.1. 1893 að Ráðagerðiskoti á Álftanesi, d. 2.8. 1966, og Vilborg Ágústa Þorvaldsdóttir Hafberg, f. 7.8. Meira  Kaupa minningabók
19. janúar 2017 | Minningargreinar | 518 orð | 1 mynd

Daníel Baldvin Pétursson

Daníel Baldvin Pétursson fæddist 27. ágúst 1928. Hann lést 19. desember 2016. Útför Daníels fór fram 4. janúar 2017. Meira  Kaupa minningabók
19. janúar 2017 | Minningargreinar | 435 orð | 1 mynd

Dóra S. Guðmundsdóttir

Dóra Sigríður Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 17. júlí 1925. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 10. janúar 2017. Hún var þriðja í röð barna þeirra hjóna Guðrúnar Guðjónsdóttur, f. 1891, d. 1958, og Guðmundar Júlíussonar, f. 1892, d. Meira  Kaupa minningabók
19. janúar 2017 | Minningargreinar | 604 orð | 1 mynd

Grétar Helgason

Grétar Helgason fæddist 14. janúar 1958. Hann lést 24. desember 2016. Grétar var jarðsunginn 30. desember 2016. Meira  Kaupa minningabók
19. janúar 2017 | Minningargreinar | 685 orð | 1 mynd

Guðlaug Ólafía Jónsdóttir

Guðlaug Ó. Jónsdóttir fæddist í Hafnarfirði 21. október 1931. Hún andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 11. janúar 2017. Foreldrar hennar voru Jón Bjarnason, f. 31. mars 1899, d. 9. ágúst 1936, og Svanhildur Margrét Jónsdóttir, f. 8. nóvember 1912,... Meira  Kaupa minningabók
19. janúar 2017 | Minningargreinar | 413 orð | 1 mynd

Helgi Heiðar Björnsson

Helgi Heiðar Björnsson fæddist 9. maí 1936. Hann lést 22. desember 2016. Útför Helga fór fram 30. desember 2016. Meira  Kaupa minningabók
19. janúar 2017 | Minningargreinar | 1440 orð | 1 mynd

Lýður Björnsson

Lýður Björnsson fæddist að Felli í Kollafirði, Strandasýslu, 17. nóvember 1922. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 9. janúar 2017. Hann var sonur hjónanna Guðlaugar Lýðsdóttur, f. 1890, d. 1979, og Björns Finnbogasonar, f. 1890, d. 1978. Meira  Kaupa minningabók
19. janúar 2017 | Minningargreinar | 936 orð | 1 mynd

Sigurgeir Bjarnason

Sigurgeir Bjarnason rennismíðameistari fæddist 17. febrúar 1931 á Þingeyri. Hann andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir 10. janúar 2017. Foreldrar hans voru Bjarni Matthías Sigurðsson tré- og járnsmiður, f. 29. Meira  Kaupa minningabók
19. janúar 2017 | Minningargreinar | 1227 orð | 1 mynd

Stella Berglind Hálfdánardóttir

Stella Berglind Hálfdánardóttir fæddist í Heiðvangi við gamla Sogaveg í Reykjavík 16. mars 1943. Hún lést á heimili sínu 24. desember 2016. Foreldrar hennar voru hjónin Aðalheiður Þórarinsdóttir, f. 17. ágúst 1907, d. 26. Meira  Kaupa minningabók
19. janúar 2017 | Minningargreinar | 326 orð | 1 mynd

Tómas Reynir Hafsteinsson

Tómas Reynir Hafsteinsson fæddist í Reykjavík 10. nóvember 1935. Hann lést á heimili sínu í Póllandi 19. nóvember 2016. Foreldrar hans voru þau Hjörtur Hafsteinn Hjartarson, f. 5. september 1908, d. 20. ágúst 1994, og Sigurlaug Guðmundsdóttir, f. 24. Meira  Kaupa minningabók
19. janúar 2017 | Minningargreinar | 418 orð | 1 mynd

Þorkell Kjartansson

Þorkell Kjartansson fæddist 29. júní 1922. Hann lést 22. desember 2016. Þorkell var jarðsunginn 7. janúar 2017. Meira  Kaupa minningabók

Daglegt líf

19. janúar 2017 | Daglegt líf | 87 orð | 1 mynd

Hversu fyndið er fólkið?

Líkt og flest fimmtudagskvöld verður blásið til tilraunauppistands í Comedy Klúbbnum í kjallaranum á BAR 11 við Hverfisgötu kl. 21.30 í kvöld. Nýir grínistar fá tækifæri til að spreyta sig og þeir reyndari prófa nýtt efni og halda sér í formi. Meira
19. janúar 2017 | Daglegt líf | 214 orð | 1 mynd

Ljóðræn íhugun um samþættingu minninga og sögulegrar merkingar í indverskri heimildamynd

Fyrsti fyrirlestur vormisseris 2017 í fyrirlestraröð RIKK er kl. 11.30 - 13 í dag, fimmtudaginn 19. janúar, í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins. Meira
19. janúar 2017 | Daglegt líf | 102 orð | 1 mynd

Málþing í tilefni af aldarafmæli þorpsskáldsins Jóns úr Vör

Vesturbyggð, Sögufélag Barðastrandarsýslu og Rithöfundasambandið standa fyrir málþingi kl. 14 - 16 laugardaginn 21. janúar 2017 í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði í tilefni af aldarafmæli þorpsskáldsins Jóns úr Vör, en hann lést aldamótaárið 2000. Meira
19. janúar 2017 | Daglegt líf | 878 orð | 5 myndir

Oft veltir lítil húfa þungu hlassi

Pussyhat Project, eða „pussuhúfu-verkefnið“, sem bandarískar vinkonur hófu fyrir tveimur mánuðum hefur undið svo upp á sig að bleikt garn er nánast uppselt í verslunum vestanhafs. Meira
19. janúar 2017 | Daglegt líf | 65 orð | 1 mynd

...spilið bingó á miðjum degi

Hví ekki að létta sér skammdegið og bregða sér í bingó á miðjum degi í miðri viku? Í Borgarbókasafninu Árbæ geta allir, ungir sem aldnir, spilað bingó kl. 15.30 í dag, fimmtudaginn 19. janúar. Meira

Fastir þættir

19. janúar 2017 | Fastir þættir | 166 orð | 1 mynd

1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 a6...

1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 a6 8. 0-0-0 h6 9. Rxc6 bxc6 10. Bf4 d5 11. De3 Bb4 12. a3 Ba5 13. Be2 0-0 14. e5 Rh7 15. h4 Hb8 16. Ra4 Bc7 17. Bd3 f6 18. g4 fxe5 19. Bxe5 Rf6 20. f3 Re8 21. f4 Bxe5 22. fxe5 Da5 23. Meira
19. janúar 2017 | Árnað heilla | 35 orð | 2 myndir

Demantsbrúðkaup

Björn Helgason og María Gísladóttir eiga 60 ára brúðkaupsafmæli í dag, 19. janúar. Búa þessi heiðurshjón á Hlíf II á Ísafirði. Þau eiga einn son og 5 dætur, 15 barnabörn, 9 barnabarnabörn og eitt... Meira
19. janúar 2017 | Í dag | 241 orð | 1 mynd

Eygló H. Haraldsdóttir

Eygló Helga Haraldsdóttir fæddist í Reykjavík 19.1. 1942, dóttir Haralds Gíslasonar, framkvæmdastjóra í Reykjavík, og k.h., Þórunnar Guðmundsdóttur húsfreyju. Meira
19. janúar 2017 | Í dag | 56 orð | 1 mynd

Eyrún Anna Davíðsdóttir

30 ára Eyrún ólst upp á Akureyri, býr þar, lauk sveinsprófi í hárgreiðslu og starfar við það. Maki: Vilberg Andri Kristinsson, f. 1984, sjómaður. Börn: Aldís Marý, f. 2007; Cæsar Barri, f. 2010; og Emil Þorri og Erpur Orri, f. 2015. Meira
19. janúar 2017 | Í dag | 13 orð

Guð er ljós og myrkur er alls ekki í honum. (1. Jh. 1.5)...

Guð er ljós og myrkur er alls ekki í honum. (1. Jh. 1. Meira
19. janúar 2017 | Árnað heilla | 310 orð | 1 mynd

Hljómplata um Hótel Borg í smíðum

Hilmar Oddsson, leikstjóri og rektor Kvikmyndaskóla Íslands, heldur upp á sextugsafmælið sitt í kvöld með afmælistónleikum í Salnum. Þar koma fram hljómsveitirnar Melchior og Skepnan. Meira
19. janúar 2017 | Í dag | 56 orð | 1 mynd

Jón Egill Indriðason

40 ára Jón Egill stundar nám í málmiðnum og er bóndi á Álfgeirsvöllum. Maki: Sigríður Þ. Stormsdóttir, f. 1969, bóndi. Dóttir: Guðbjörg Rán, f. 2008. Stjúpbörn: Bjarni Þór, f. 1990; Elísabet Þóra, f. 1992, og Alexander Þór, f. 1994, og Sædís Rós, f. Meira
19. janúar 2017 | Í dag | 55 orð

Málið

Lýsingarorðið borðleggjandi er haft um spil sem eru svo góð að leggi maður þau á borðið er óþarft að spila lengur, spilið er greinilega unnið. Ef e-ð er borðleggjandi er það öruggt , víst eða augljóst eða sjálfsagt að láta af því verða . Meira
19. janúar 2017 | Í dag | 459 orð | 4 myndir

Með hugann við listir, menningu og félagsmál

Sigríður Hafstað fæddist í Vík í Staðarhreppi í Skagafirði 19.1. 1927 og ólst þar upp í 10 systkina hópi. Að loknu almennu námi í íslenska skólakerfinu nam hún húsmæðrafræði í Uppsölum í Svíþjóð 1946-47. Meira
19. janúar 2017 | Árnað heilla | 35 orð | 1 mynd

Reykjavík Bergrós Mjöll fæddist 19. janúar 2016 kl. 10.23 og er því eins...

Reykjavík Bergrós Mjöll fæddist 19. janúar 2016 kl. 10.23 og er því eins árs í dag. Hún vó 4.000 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Arna Dögg Sigfúsdóttir og Þorgeir Gísli... Meira
19. janúar 2017 | Í dag | 201 orð

Til hamingju með daginn

100 ára Katrín Jóhanna Gísladóttir 90 ára Agnes Jóhannsdóttir Árnína H. Sigmundsdóttir Sigríður Hafstað Þórarinn M. Friðjónsson 85 ára Ingi Einar Jóhannesson Lovísa E. Sigurbjörnsdóttir 80 ára Björn Dagbjartsson Heimir Björn Ingimarsson Jón H. Meira
19. janúar 2017 | Í dag | 325 orð

Um Ólaf Briem, timburmeistara á Grund

Ég sá einhvers staðar spurt um höfund þessarar vísu: Hlaut ég stauta blauta braut bikkjan skrykkjótt nokkuð gekk, þaut og hnaut, ég hraut í laut, hnykk með rykk í skrokkinn fékk. Meira
19. janúar 2017 | Fastir þættir | 283 orð

Víkverji

Nú er enn og aftur kominn sá árstími sem Víkverja líst verst á. Fyrstu vikurnar í janúar hafa í gegnum tíðina verið Víkverja mikil þolraun, þó ekki vegna veðurfars eða skammdegis. Meira
19. janúar 2017 | Í dag | 102 orð | 1 mynd

Þetta gerðist...

19. janúar 1942 Mannlaust „olíutankskip“ fannst rekið á Péturseyjarfjöru í Mýrdal. Skipið var 70 metra langt. Í því voru „ýmiss konar olíur en þó aðallega bensín,“ að sögn Morgunblaðsins. 19. Meira
19. janúar 2017 | Í dag | 46 orð | 1 mynd

Þorgerður Jóhannsdóttir

30 ára Þorgerður býr í Reykjanesbæ, lauk prófi í sjúkraþjálfun frá HÍ og starfar hjá Sjúkraþjálfun Suðurnesja. Maki: Daníel Reynisson, f. 1985, lögmaður. Sonur: Axel Breki Daníelsson, f. 2013. Foreldrar: Sesselja Birgisdóttir, f. Meira

Íþróttir

19. janúar 2017 | Íþróttir | 178 orð | 1 mynd

A-RIÐILL Staðan: Frakkland 4400128:878 Noregur 4301117:1016 Rússland...

A-RIÐILL Staðan: Frakkland 4400128:878 Noregur 4301117:1016 Rússland 4202111:1124 Brasilía 420297:1184 Pólland 410390:992 Japan 400497:1230 Lokaumferðin í dag: 13.00 Rússland – Brasilía 16.45 Frakkland – Pólland 19. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 141 orð | 1 mynd

Dagur á leiðinni í úrslitaleik

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Evrópumeistaraliði Þýskalands leika hreinan úrslitaleik við Króata á morgun um efsta sætið í C-riðli heimsmeistaramótsins í handknattleik. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 46 orð | 1 mynd

Dominos-deild kvenna Njarðvík – Grindavík 81:61 Staðan: Keflavík...

Dominos-deild kvenna Njarðvík – Grindavík 81:61 Staðan: Keflavík 151141095:94122 Skallagrímur 151141134:101222 Snæfell 151051040:93820 Stjarnan 1596989:98818 Njarðvík 16791123:121314 Valur 15691109:110112 Haukar 15411905:10528 Grindavík... Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 156 orð | 1 mynd

Enginn stórleikur hjá Dönum

Ólympíumeistarar Dana þurftu ekki að sýna sparihliðarnar þegar þeir unnu baráttuglaða leikmenn Barein, 30:26, í París í gær í fjórðu umferð D-riðils heimsmeistaramótsins. Danir voru yfir allan leikinn en Bareinbúar voru aldrei langt undan. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 76 orð | 1 mynd

England Bikarkeppnin, 3. umferð: Plymouth – Liverpool 0:1...

England Bikarkeppnin, 3. umferð: Plymouth – Liverpool 0:1 *Liverpool mætir Wolves. Newcastle – Birmingham 3:1 *Newcastle mætir Oxford United. Southampton – Norwich 1:0 *Southampton mætir Arsenal. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 102 orð | 1 mynd

Fimmta tap Grindavíkurkvenna í röð

Njarðvíkurkonur eru komnar á lygnan sjó í Dominos-deild kvenna í körfuknattleik eftir allöruggan sigur á Grindvíkingum, 81:61, í Njarðvík í gærkvöld. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 552 orð | 2 myndir

Guðjón er fyrirmynd okkar allra

Í Metz Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is ,,Það var erfitt að festa svefn eftir leikinn við Angóla þar sem hann var það seint, þannig að maður er aðeins þreyttur. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 434 orð | 1 mynd

Hef hrifist af þolinmæði Geirs

Í Metz Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Ragnar Óskarsson, fyrrverandi landsliðsmaður og nú aðstoðarþjálfari hjá franska liðinu Cesson Rennes, er í þjálfarateymi íslenska karlalandsliðsins í handknattleik og er með því á HM í Frakklandi. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 617 orð | 2 myndir

Innistæða hjá nokkrum leikmönnum

Í Metz Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Örlög íslenska landsliðsins í handknattleik ráðast á HM í kvöld en þá mætir liðið Makedóníu í síðasta leik sínum í riðlakeppninni. Ísland þarf sigur til að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitunum. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 106 orð | 1 mynd

Íslensku strákarnir í undanúrslit

Ísland er komið í undanúrslitin í 3. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 244 orð | 1 mynd

Íslensku þjálfararnir fara vel af stað á HM í handbolta í Frakklandi...

Íslensku þjálfararnir fara vel af stað á HM í handbolta í Frakklandi. Danir og Þjóðverjar eru sterkir undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar og Dags Sigurðssonar. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 307 orð | 4 myndir

* Janus Daði Smárason og Ásgeir Örn Hallgrímsson glíma við meiðsli og...

* Janus Daði Smárason og Ásgeir Örn Hallgrímsson glíma við meiðsli og tóku ekki þátt í æfingu íslenska landsliðsins í handknattleik í Metz í gærkvöld. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 147 orð | 1 mynd

Kristján og Svíar í góðri stöðu

Sænska landsliðið í handknattleik karla, undir stjórn Kristjáns Andréssonar, glansaði í gegnum viðureignina við Katar í gærkvöldi. Svíar unnu með 11 marka mun, 36:25, eftir að hafa verið sjö mörkum yfir í hálfleik, 19:12. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 41 orð | 1 mynd

KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Mustad-höllin...

KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Mustad-höllin: Grindavík – KR 19.15 Sauðárkrókur: Tindastóll – ÍR 19.15 Ásgarður: Stjarnan – Njarðvík 19.15 Stykkishólmur: Snæfell – Keflavík 19.15 1. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 144 orð | 1 mynd

Lucas sendir Jón á Anfield

Sögulegt mark frá brasilíska miðjumanninum Lucas Leiva var það eina sem skildi að Liverpool og D-deildarliðið Plymouth Argyle í 180 mínútna baráttu í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 935 orð | 1 mynd

Læri fleiri afbrigði af leiknum en heima á Íslandi

Körfubolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Hafnfirðingurinn efnilegi Kári Jónsson hefur stimplað sig vel inn í bandaríska háskólakörfuboltann, NCAA, á sínum fyrsta vetri vestanhafs. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 115 orð | 2 myndir

Njarðvík – Grindavík 81:61

Njarðvík, Dominos-deild kvenna, miðvikudag 18. janúar 2017. Gangur leiksins : 3:0, 11:5, 18:10, 27:14, 29:20, 31:22, 35:24, 41:32 , 46:40, 50:44, 59:46, 62:51 , 68:53, 70:55, 75:58, 81:61 . Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 27 orð | 1 mynd

Noregur Glassverket – Oppsal 29:23 • Birna Berg Haraldsdóttir...

Noregur Glassverket – Oppsal 29:23 • Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 3 mörk fyrir Glassverket. Tertnes – Sola 22:23 • Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 2 mörk fyrir... Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 455 orð | 2 myndir

Spánverjar gáfu ekki eftir

HM 2017 Ívar Benediktsson iben@mbl.is Makedóníumenn náðu að halda í við Spánverja í fyrri hálfleik í viðureign liðanna í Metz í gærkvöldi. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 176 orð | 1 mynd

Tímabilinu væntanlega lokið að sögn Hreiðars

Yfirgnæfandi líkur virðast vera á því að handboltamarkvörðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson hafi leikið sinn síðasta leik með norska úrvalsdeildarliðinu Halden á þessu keppnistímabili. Hreiðar er meiddur á hné eins og kom fram í Morgunblaðinu í vikunni. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 87 orð | 1 mynd

Viðræður enn í gangi um Sverri

Sverrir Ingi Ingason er ekki enn orðinn leikmaður spænska knattspyrnufélagsins Granada, en hann verður að öllu óbreyttu kynntur til sögunnar þar í dag. Meira
19. janúar 2017 | Íþróttir | 237 orð | 2 myndir

Þór/KA saman í sumar í skugga ólgu

Þór/KA Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Um fátt hefur verið meira rætt á Akureyri síðustu tvo daga en yfirlýsingu KA um að endurnýja ekki samning við Þór um samstarf félaganna í kvennaflokki í knattspyrnu og í handknattleik. Meira

Viðskiptablað

19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 769 orð | 2 myndir

50 milljarða evra gleraugnasamruni

Eftir Rachel Sanderson í Mílanó, Arash Massoudi í Lundúnum og James Fontanella-Khan í New York Sjóntækjamarkaður er eitt þeirra sviða á neytendamarkaði sem vaxa hvað hraðast en áætlað er að tveir af hverjum þremur jarðarbúum þarfnist einhverskonar sjóntækja. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 654 orð | 1 mynd

Arðsúthlutun takmörkuð samkvæmt lögum um ársreikninga

Um verulegar takmarkanir getur verið að ræða á heimild til arðsúthlutunar frá því sem áður var. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 614 orð | 1 mynd

Aukin samkeppni leiðir til lægri vaxta

Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Lífeyrissjóðir og bankar hafa að undanförnu lækkað vexti á óverðtryggðum lánum, jafnvel niður fyrir 6%, og má það meðal annars rekja til meiri samkeppni á markaðnum. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 186 orð

Ástæða til að skoða lagningu sæstrengs

Nokkuð harkaleg umræða hefur skapast á undanförnum misserum um hvort leggja beri sæstreng til Evrópu sem gera myndi íslenskum orkufyrirtækjum kleift að selja orku úr landi. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 18 orð | 1 mynd

Gleraugnarisar renna saman

Í kjölfar 50 milljarða evra samruna verða Luxottica og Essilor með yfirburði á ört vaxandi markaði fyrir... Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 188 orð

hin hliðin

Nám: Stúdent frá MR 1991; C.Sc. í vélaverkfr. frá HÍ 1995; MBA frá Harvard Business School 2002; ýmis styttri stjórnendanámskeið í Executive Education deild HBS 2010-2012. Störf: Var m.a. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 197 orð | 1 mynd

Hittir andlitsmyndin örugglega í mark?

Vefsíðan Þeir sem til þekkja segja að vinnumarkaður framtíðarinnar sé á netinu, og að umsækjendur um lausar stöður verði metnir út frá því sem standi á LinkedIn-síðunni þeirra. En hvað er það fyrsta sem fólk skoðar á LinkedIn? Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 270 orð | 1 mynd

Hvað er að dempa nýsköpunina?

Bókin Hvar eru flugbílarnir og svifbrettin? Hvar eru pillurnar sem lækna skallann og minnka bumbuna í leiðinni? Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 53 orð | 7 myndir

Hvernig spara má við opinber innkaup

Samtök iðnaðarins stóðu nýlega fyrir opnum fundi um opinber innkaup. Þar var fjallað um hvað hægt er að gera betur í kjölfar nýrrar Evrópulöggjafar sem samþykkt var á Alþingi fyrir skömmu. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 122 orð | 2 myndir

Hvetur landeigendur til gjaldtöku

Nýr ráðherra ferðamála telur að landeigendur eigi að beita gjaldtöku ef þeir telja það stuðla að náttúruvernd. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 267 orð

Í hvað eru þörungarnir notaðir?

Hvernig stendur eiginlega á þessari miklu eftirspurn eftir þangi og þara? Væri skiljanlegt ef íslenskum lesendum dytti helst í hug að þetta náttúrulega hráefni væri aðallega notað í sushi, söl og asískar súpur. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 561 orð | 1 mynd

Í upphafi skal endinn skoða – mikilvægi hluthafasamkomulags

Þegar aðilar stofna félag eða hefja samstarf á vettvangi hlutafélags eru yfirleitt til staðar háleit markmið um framtíðar velgengni félagsins og engin vandamál til staðar í rekstrinum eða ágreiningur á milli hluthafanna í augsýn. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 17 orð | 1 mynd

Kínverjar verja viðskiptafrelsið

Mörgum þykir það öfugsnúið að leiðtogi kínverskra kommúnista sé í því hlutverki í Davos að verja... Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 315 orð

Kominn tími til að tengja?

Um áramót samþykkti fráfarandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra tillögur ráðgjafanefndar Orkusjóðs um veitingu styrkja til uppbyggingar innviða fyrir rafbíla. Alls bárust 33 umsóknir, upp á 887 milljónir króna. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 428 orð | 1 mynd

Krefjast rannsóknar FME

Jón Þórisson jonth@mbl.is Kaupandi hlutar í RB segir háttsemi Sparisjóðs Höfðhverfinga lögbrot og utan við starfsheimildir hans. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 20 orð | 1 mynd

Mest lesið í vikunni

Krónan veikist hratt Jóhanna Vigdís til Samtaka ... Hinn fullkomni aðstoðarmaður Sýkna þrátt fyrir svikamyllu Skúli í Subway kærður... Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 13 orð | 1 mynd

Mun ekki fljúga til Nice í sumar

Ekki verður framhald á áætlunarflugi WOW air til frönsku borgarinnar Nice í... Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 396 orð | 1 mynd

Ósamræmi hjá eftirlitsstofnunum

Fjarskiptageirinn breytist hratt og þarf Orri Hauksson að vera stöðugt á tánum ef fyrirtækið sem hann stýrir á að geta haldið í við þróunina. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 404 orð | 2 myndir

Rio Tinto: Bjarnargreiði

Ólíkt því sem flestir halda þá leggjast birnir ekki í dvala. Þeir eru einfaldlega í móki yfir vetrarmánuðina og gera lítið sem ekkert svo vikum skiptir. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 223 orð

Sala ríkiseigna

Jón Þórisson jonth@mbl.is Við lestur stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar sést að ýmislegt stendur til á kjörtímabilinu sem kallar á aukin ríkisútgjöld. Nefna má aukið fé í málaflokka á borð við heilbrigðismál, samgöngur, menntamál og löggæslu. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 125 orð | 2 myndir

Skemmtilegri leið til að gera plankaæfingarnar

Heilsurækt Líkamsræktarfrömuðirnir virðast vera á einu máli um að „plankinn“ sé ein besta leiðin til að fá spengilegan og skorinn kropp. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 106 orð | 2 myndir

Spíttbátur að hætti Lexus

Farartækið Japanski lúxusbílaframleiðandinn Lexus er þekktur fyrir mjúkar og ögrandi línur, og því í sjálfu sér ekki svo stórt stökk að fara yfir í hraðbátageirann. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 226 orð

Stjórnin ekki fjandsamleg stóriðjunni

Eftir því var tekið að í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar var sérstaklega tekið fram að ekki yrðu veittar á kjörtímabilinu sérstakar ívilnanir til þess sem kallað er mengandi stóriðja. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 176 orð | 1 mynd

Tekjuhærri fengu meira leiðrétt

Húsnæðismál Í nýrri skýrslu sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman kemur fram að tekjulægri helmingur framteljenda árið 2014 hafi fengið um 14% af því fé sem varið var til leiðréttingar húsnæðislána í beinum aðgerðum ríkisstjórnarinnar og... Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 68 orð | 1 mynd

Tekur við sem framkvæmdastjóri

PIPARS\TBWA Guðmundur Pálsson er nýr framkvæmdastjóri PIPARS\TBWA en hann tekur við af Valgeiri Magnússyni sem hefur gegnt starfinu frá stofnun auglýsingastofunnar. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 340 orð | 1 mynd

Útgerðin veðjar á kollagen

Jón Þórisson jonth@mbl.is Íslenskir sjávarútvegsrisar sameinast um framleiðslu á kollageni úr fiskroði. Fjárfestingin nemur um einum milljarði króna. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 752 orð | 3 myndir

Vilja bæta blóðtæmingu og kælingu

Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Fimm fyrirtæki vinna að gerð kerfis sem bætir meðhöndlun aflans allt frá blóðgun til löndunar og safnar um leið upplýsingum um veiðistað og -tíma. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 156 orð

Vilja fiskinn evrópskan

Neytendahegðun Ný könnun Eurobarometer sýnir að 80% evrópskra neytenda leggja ríka áherslu á að neyta fisks sem kemur frá þeirra landshluta, frá sama landi eða frá öðru Evrópuríki. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 282 orð | 1 mynd

Virkjar neytendur í eftirlit

Neytendasamtökin munu á næstunni kynna nýtt smáforrit sem hjálpar fólki að finna lægsta vöruverðið Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 2355 orð | 1 mynd

Vöxtur ferðaþjónustunnar er tækifæri en ekki vandamál

Stefán E. Stefánsson ses@mbl. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 557 orð | 2 myndir

Xi storkar Trump og talar fyrir frjálsum viðskiptum

Eftir Jamil Anderlini og Wang Feng í Davos, og Tom Mitchell í Peking Það þykir tíðindum sæta að leiðtogi kínverskra kommúnista marki sér stöðu sem varðmaður frjálsra viðskipta í heiminum á höfuðmessu kapítalismans í Davos í Sviss. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 579 orð | 1 mynd

Þangskurðarvél sem lætur fátt stoppa sig

Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Asco Harvester á að geta ráðið vel við þangskurð við krefjandi aðstæður og gert mögulegt að nýta fleiri svæði víða um land. Tæknin mun líka nýtast til að hreinsa rusl úr sjó og slá skipaskurði og síki. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 191 orð | 3 myndir

Þrír nýir starfsmenn til iðnaðarins

Samtök iðnaðarins Jóhanna Vigdís Arnardóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri í menntamálum hjá SI. Jóhanna Vigdís hefur starfað sem leikkona og söngkona í fjölda ára og verið fastráðin leikkona við Borgarleikhúsið frá árinu 2000. Meira
19. janúar 2017 | Viðskiptablað | 733 orð | 2 myndir

Öryggið ein ástæða Íslandsferða

Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Tim Loughman, stjórnandi hjá Hilton-hótelum, segir að ýmsir óvissuþættir hafi áhrif á ferðavenjur fágætisferðamanna. Órói á fjármálamörkuðum, tímaleysi og öryggi eru þar efst á blaði. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.