Greinar föstudaginn 20. október 2017

Fréttir

20. október 2017 | Innlendar fréttir | 111 orð | 1 mynd

350 skákmenn á öllum aldri etja kappi

Íslandsmót skákfélaga hófst í gær í Rimaskóla og stendur fram á sunnudag. Í gær hófst fyrsta deild og í dag hefjast aðrar deildir. Búist er við að bekkurinn verði þétt setinn enda munu um 350 skákmenn á öllum aldri etja kappi á mótinu. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 123 orð | 1 mynd

Allir „sultuslakir“ í verðlagsnefnd

Fyrsti fundur nýskipaðrar verðlagsnefndar búvara fór fram fyrr í vikunni. Var hann án átaka. „Allir voru sultuslakir,“ segir Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda, sem sæti á í nefndinni. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 135 orð | 1 mynd

Amfetamínvökvi fannst í Norrænu

Tveir erlendir karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi eftir að umtalsvert magn af amfetamínvökva fannst falið í bíl þeirra í Norrænu. Efnið fannst fyrir um það bil hálfum mánuði við komu ferjunnar til Seyðisfjarðar, samkvæmt frétt frá Tollstjóra. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 160 orð | 1 mynd

Aukin ferðaþjónusta kallar á breytingar

Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur auglýst tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Meira
20. október 2017 | Erlendar fréttir | 171 orð | 1 mynd

„Algjör ringulreið“ skapaðist í árásinni

James Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur óskað eftir nánari upplýsingum um árás vígamanna Ríkis íslams á bandaríska hermenn í Níger 4. október sl. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 267 orð | 1 mynd

Boða aðgerðir í kynferðisbrotamálum

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Samráðshópur um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins leggur til víðtækar aðgerðir í lokadrögum að aðgerðaáætlun sem skilað hefur verið til dómsmálaráðherra, Sigríðar Andersen. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 18 orð | 1 mynd

Eggert

Framkvæmdir Byggingarverkamenn að störfum við byggingu sem verið er að reisa á Hafnartorgi við Tollhúsið í miðborg... Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 467 orð | 2 myndir

Erlendir göngu-hrólfar nánast einir um hituna

Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Þátttaka útlendinga í gönguferðum um Laugaveginn, úr Landmannalaugum í Þórsmörk, hefur aukist með hverju árinu. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 71 orð

Er með 335 félagsmenn

Félag um átjándu fræði er þvervísindalegt fræðafélag, stofnað 1994, og öllum opið. Markmið félagsins er að efla og kynna rannsóknir á sviði átjándu aldar fræða og skyldra efna, bæði hér á landi og erlendis, m.a. með því að halda fræðafundi. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 125 orð | 1 mynd

Eyðum öfgum í báðar áttir

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að best færi á því eftir kosningar að mynda breiða og sterka stjórn yfir miðjuna. Segir hann að flokkur sinn væri tilbúinn til þess að leiða slíka stjórn ef eftir því yrði óskað. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 302 orð

Eykur áhættu í hagkerfinu

Agnes Bragadóttir Baldur Arnarson Mikil aukning ríkisútgjalda næstu misseri getur haft ýmar afleiðingar. Með því væri ríkið að örva hagkerfið á versta tíma í hámarki uppsveiflunnar sem myndi ógna stöðugleika og samkeppnishæfni landsins. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 144 orð

Fleiri kosið utan kjörfundar en í fyrra

Alls höfðu 5.275 greitt atkvæði utan kjörfundar eða sent atkvæði sín til sýslumanns höfuðborgarsvæðisins 18. október sl., tíu dögum fyrir alþingiskosningar. Í fyrra höfðu 3. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 317 orð | 1 mynd

Grunur á smygli fólks um Ísland

Guðni Einarsson gudni@mbl.is Finnska landamæragæslan leysti 10. október upp smyglhring sem smyglaði fólki á milli landa. Um var að ræða skipulagða glæpastarfsemi, að sögn evrópsku löggæslustofnunarinnar Europol. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 1244 orð | 2 myndir

Hafa þrek og þor í verkefnin

Viðtal Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl. Meira
20. október 2017 | Erlendar fréttir | 133 orð | 1 mynd

Herstöð brann til kaldra kola í árás

Minnst 43 afganskir hermenn féllu þegar vígasveitir talibana réðust inn í herstöð í suðurhluta landsins. Fréttaveita Reuters segir tölu látinna að öllum líkindum eiga eftir að hækka. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 109 orð

Hræðslubandalag og tilraun Pírata

Íslensk stjórnmálasaga geymir ekki mörg dæmi um kosningabandalög fyrir þingkosningar. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 176 orð

Hæstiréttur ómerkir sýknudóm

Sýknudómur Héraðsdóms Reykjavíkur í Chesterfield-málinu, sem einnig hefur verið nefnt CLN-málið, var ómerktur af Hæstarétti í gær og vísað aftur til héraðsdóms. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 320 orð | 2 myndir

Íhuga sölu á fiski beint á erlenda markaði

Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda hófst í gær með ræðum Axels Helgasonar, formanns LS, Arnar Pálssonar framkvæmdastjóra og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sjávarútvegsráðherra. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 162 orð | 1 mynd

Íslenskur lax fjarskyldur Evrópulaxi

Í nýrri grein sem birt var í Vísindariti Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES Journal of Marine Science, er greint frá niðurstöðum viðamikilla rannsókna á erfðafræði Atlantshafslax. Lax í 13 Evrópulöndum var rannsakaður og notuð 14 erfðamörk. Sýnum (26. Meira
20. október 2017 | Erlendar fréttir | 81 orð | 1 mynd

Jacinda Ardern nýr forsætisráðherra

Jacinda Ardern, formaður Verkamannaflokksins á Nýja-Sjálandi, verður næsti forsætisráðherra landsins. Er hún jafnframt yngsti einstaklingurinn til að gegna embættinu frá árinu 1856, en Ardern er 37 ára gömul. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 191 orð | 1 mynd

Kollvarpar fyrri hugmyndum

Það hefur reynst vísindamönnum mikil ráðgáta hver uppruni hinnar tignarlegu Valþjófsstaðarhurðar í raun og veru er. Lengi var talið að hagleikskonan Randalín Filippusdóttir hefði skorið hana út um miðja 13. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 102 orð

Konur duglegri en karlar

Ferðafélagið einbeitir sér að ferðum fyrir Íslendinga, en lætur ferðaskrifstofur um skipulagningu á ferðum fyrir erlenda ferðamenn, til dæmis um Laugaveginn. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 456 orð | 3 myndir

Kosningabandalög myndu auðvelda valið

Sviðsljós Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Það hefði góð áhrif á stjórnmálamenninguna ef íslenskir stjórnmálaflokkar mynduðu kosningabandalög, eins og þekkjast víða, m.a. á Norðurlöndunum. Meira
20. október 2017 | Erlendar fréttir | 453 orð | 1 mynd

Líklegt þykir að Katalónía verði svipt sjálfstjórn sinni

Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Allt stefnir í að stjórnvöld á Spáni hefji brátt undirbúning að því að virkja 155. gr. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 329 orð | 1 mynd

Ljótu kartöflurnar fá nýtt líf

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stóru og ljótu kartöflurnar sem neytendur hafa fúlsað við í búðum fá nú framhaldslíf um stund, eða þangað til fólk sporðrennir þeim sem kartöfluflögum. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 324 orð | 1 mynd

Lokahnykkur hafnarframkvæmda

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verktakar eru að leggja lokahönd á nýtt athafna- og geymslusvæði við Húsavíkurhöfn. Er þetta lokahnykkurinn í miklum framkvæmdum sem ráðist er í vegna iðnaðaruppbyggingar á Bakka. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 58 orð | 1 mynd

Lækjargata 12 kvödd með viðhöfn

Stórhýsi Iðnaðarbankans við Lækjargötu 12 í Reykjavík, sem reis á árunum 1959-1963, var jarðsungið í gærkvöldi. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 365 orð | 1 mynd

Lögbannið sagt vera „aðför að lýðræðinu“

Höskuldur Daði Magnússon Baldur Guðmundsson „Þetta var mjög góður og upplýsandi fundur. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 247 orð | 1 mynd

Má ekki mismuna eftir búsetu

Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bæjarlögmaður Akureyrarbæjar, Inga Þöll Þórgnýsdóttir, telur að misjöfn gjaldskrá eftir búsetu styðjist ekki við lög. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 121 orð | 1 mynd

Meirihluti andvígur lögbanni

Meirihluti landsmanna er andvígur lögbanni sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu á frekari fréttaflutning Stundarinnar og Reykjavík Media upp úr gögnum sem fengin eru frá Glitni. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar MMR. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 247 orð | 1 mynd

Mun girða fyrir svigrúm til skattalækkana næstu ár

Verði kosningaloforð stjórnmálaflokkanna að veruleika verður lítið svigrúm fyrir skattalækkanir næstu ár. Þetta er mat Más Wolfgangs Mixa, lektors í fjármálum við Háskólann í Reykjavík. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 203 orð

Óheimilt að skerða bætur

Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Úrskurðarnefnd velferðarmála felldi úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að skerða tekjutengd bótaréttindi ellilífeyrisþega á Íslandi vegna erlendra lífeyrissjóðsgreiðslna. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 466 orð | 1 mynd

Sjálfstæðisflokkurinn kostar mestu til

Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 93 orð

Skoða afstöðu til gjaldtöku á ferðamannastöðum

Reykjanes Geopark hefur óskað eftir afstöðu sveitarfélaga á svæðinu til hugsanlegrar gjaldtöku á ferðamannastöðum. „Við erum að kanna afstöðu sveitarfélaga til þess hvaða leiðir eigi að fara til að fjármagna uppbyggingu. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 110 orð | 1 mynd

Styður við íslenska framleiðslu

Kartöflurnar í snakkinu eru frá Seljavöllum í Hornafirði. Viðar Reynisson segir að þetta sé vannýtt hráefni sem bændur sitji uppi með. Neytendur vilji síður kaupa stórar kartöflur og þær sem eru skringilegar í laginu. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 406 orð | 1 mynd

Suðurnesin skilin eftir í framlögum

Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Fjárveitingar ríkisins til helstu stofnana á Suðurnesjum eru mun lægri en það sem þekkist í öðrum landshlutum. Þetta er meðal þess sem rætt var á opnum fundi á vegum Reykjanesbæjar í Safnahúsinu í gærkvöldi. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 105 orð | 1 mynd

Tólf daga rjúpnaveiðitímabil hefst eftir eina viku

Rjúpnaveiðitíminn hefst föstudaginn 27. október nk. og verður leyft að veiða í alls 12 daga. Veiðidagarnir skiptast á fjórar helgar, það er föstudag, laugardag og sunnudag um síðustu helgina í október og fyrstu þrjár helgarnar í nóvember. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 144 orð | 1 mynd

Vilja búa til tvær nýjar ylstrandir í Reykjavík

Stefnt er að því að ylstrandir verði búnar til við Gufunes og við Skarfaklett. Tillaga borgarstjóra þess efnis að stofnaður verði starfshópur um að kanna möguleika á því að nýta heitt umframvatn til þess var samþykkt í borgarráði í gær. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 628 orð | 3 myndir

Þoldi ekki „oflátungshátt“ alþýðu

Sviðsljós Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Í lagasetningum og opinberum skrifum á 18. öld koma fram áhyggjur embættismanna um óhóf lægri stétta. Meira
20. október 2017 | Innlendar fréttir | 724 orð | 5 myndir

Þrýstingur á aukna eyðslu í uppsveiflu

Baksvið Agnes Bragadóttir agnes@mbl. Meira

Ritstjórnargreinar

20. október 2017 | Leiðarar | 584 orð

Að halda fengnum hlut

Forsendur efnahagslífsins taka breytingum rétt eins og staða himintunglanna Meira
20. október 2017 | Staksteinar | 130 orð | 2 myndir

Netheimar loga – stundum

Páll Vilhjálmsson skrifar: Logi Bergmann gerði fyrir 12 árum ráðningarsamning við 365-miðla sem sjónvarpsmaður. Á þeim tíma var hörð samkeppni milli RÚV og Stöðvar 2 um starfsfólk. Meira

Menning

20. október 2017 | Leiklist | 1165 orð | 2 myndir

„Ferðalag inn í víðsýni og endurmat“

Viðtal Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég held að þetta sé sjónrænasta sýningin sem ég hef gert til þessa,“ segir leikstjórinn Þorleifur Örn Arnarsson um Guð blessi Ísland sem Borgarleikhúsið frumsýnir á Stóra sviðinu í kvöld. Meira
20. október 2017 | Kvikmyndir | 125 orð | 1 mynd

Dagskrá með Greg Serestro

Greg Sestero, einn af aðalleikurum bandarísku költmyndarinnar The Room , sem þykir ein sú lélegasta í kvikmyndasögunni, mætir annað árið í röð í Bíó Paradís í kvöld og á morgun og sýnir annars vegar kvikmyndina Best F(r)iends sem hann leikur í og... Meira
20. október 2017 | Tónlist | 597 orð | 1 mynd

Eigin hjartsláttur og hljóð norðurljósanna

Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Mig langaði að prófa að semja lög út frá hjartslætti og nota náttúruhljóð í tónlist minni. Meira
20. október 2017 | Fjölmiðlar | 194 orð | 1 mynd

Fáguð, firrt og alveg meinfyndin

Bandaríska leikkonan Jane Krakowski er í talsverðu uppáhaldi hjá mér. Meira
20. október 2017 | Tónlist | 158 orð | 1 mynd

Hátíðin Sláturtíð í Árbæjarsafni

Tónlistarhátiðin Sláturtíð er haldin í áttunda sinn þessa dagana og í þetta skipti á Árbæjarsafni. Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík (S.L.Á.T.U.R.) standa að hátíðinni sem endranær. Meira
20. október 2017 | Bókmenntir | 123 orð | 1 mynd

Ingibjargar minnst í Hannesarholti

Höfuð konunnar er... er yfirskrift minningardagskrár um Ingibjörgu Haraldsdóttur, ljóðskáld og þýðanda, sem lést í nóvember í fyrra, sem boðið verður upp á í Hannesarholti á morgun frá kl. 15. Meira
20. október 2017 | Fólk í fréttum | 55 orð | 1 mynd

Ljóðfélagið leikur í hófi Sveinbjarnar I.

Í tilefni af útgáfu Lífdaga, bókar sem inniheldur allar fimm ljóðabækur Sveinbjarnar I. Baldvinssonar auk fleiri verka og nýrra ljóða, verður dagskrá í Gunnarshúsi í dag kl. 17. Meira
20. október 2017 | Kvikmyndir | 340 orð | 1 mynd

Ógn í ólíkum myndum

Happy Death Day Ung kona vaknar í ókunnugu rúmi á skólavist á afmælisdegi sínum og botnar ekkert í því hvernig hún komst þangað. Meira
20. október 2017 | Tónlist | 268 orð | 1 mynd

Óperudraugur í Hörpu

Söngleikurinn The Phantom of the Opera , Óperudraugurinn , eftir Andrew Lloyd Webber, verður frumfluttur á Íslandi í Eldborg í Hörpu 17. febrúar á næsta ári en verkið hefur ekki verið flutt áður hér á landi. Meira
20. október 2017 | Tónlist | 1032 orð | 2 myndir

Sársaukafull saga sveitar

Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl. Meira
20. október 2017 | Leiklist | 117 orð | 1 mynd

Setja upp Snorra-Eddu í Hannover

Guð blessi Ísland, sem frumsýnd verður á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld, er þriðja sýningin á innan við tveimur árum sem Mikael Torfason og Þorleifur Örn Arnarsson vinna saman. Meira

Umræðan

20. október 2017 | Aðsent efni | 857 orð | 1 mynd

Að velja með vitinu

Eftir Kristin Magnússon: "„Veistu, ég bara veit það ekki ennþá. En væntanlega verður það sá sem síðast tekur til máls í sjónvarpinu fyrir kjördag.“" Meira
20. október 2017 | Aðsent efni | 318 orð | 1 mynd

Af hverju að kjósa Viðreisn?

Eftir Lilju Hilmarsdóttur: "Viðreisn er frjálslyndur miðjuflokkur með alþjóðasýn sem flestir ættu að finna málefnalega samleið með" Meira
20. október 2017 | Aðsent efni | 583 orð | 1 mynd

Endalokum Oddsskarðsganga fagnað

Eftir Guðmund Karl Jónsson: "Nú er nóg komið af tilefnislausum árásum á heilbrigðisþjónustuna utan Reykjavíkur og Akureyrar." Meira
20. október 2017 | Aðsent efni | 750 orð | 2 myndir

Fé þarf að fylgja þörf

Eftir Helga Hrafn Gunnarsson og Þórlaugu Ágústsdóttur: "Sveitarfélög gegna stöðugt mikilvægara hlutverki í framkvæmd á skyldum hins opinbera en geta það ekki svo vel sé nema Alþingi tryggi nægt rekstrarfé." Meira
20. október 2017 | Aðsent efni | 642 orð | 1 mynd

Ísland ljóstengt 2.0

Eftir Harald Benediktsson: "Framtíðaruppbygging tengd fjórðu iðnbyltingunni byggist á góðum tengingum." Meira
20. október 2017 | Aðsent efni | 363 orð | 1 mynd

Nokkrar ábendingar til stjórnmálamanna

Eftir Svein Einarsson: "Í tilefni af umræðunum um gagnsæi, þá séu biðlistar fyrir þá sem þurfa að komast í aðgerðir birtir opinberlega á mánaðarfresti, svo að viðkomandi geti hagað lífi sínu og dauða í samræmi við þá." Meira
20. október 2017 | Aðsent efni | 474 orð | 1 mynd

Nú er mál að linni, Kári

Eftir Örn Gunnlaugsson: "Þótt langt sé um liðið frá DeCode-ævintýrinu verður fortíð þess aðila sem þar fór fremstur aldrei grafin og gleymd." Meira
20. október 2017 | Aðsent efni | 389 orð | 1 mynd

Nýja Laugardalshöll

Eftir Ágúst Þór Jóhannsson: "Laugardalshöllin hefur þjónað innanhússíþróttunum vel allt frá árinu 1965 en hún er barn síns tíma og hefur setið eftir." Meira
20. október 2017 | Aðsent efni | 595 orð | 2 myndir

Vestfjarðavegur – leið D2 til betri vegar

Eftir Reyni Bergsveinsson: "Veglínan D2 er ekki verri lausn fyrir Vestfjarðaveg en leið ÞH." Meira
20. október 2017 | Aðsent efni | 979 orð | 1 mynd

Þingkosningarnar snúast líka um utanríkismál

Eftir Björn Bjarnason: "Þjóðir hafa lögmætra hagsmuna að gæta. Beri þjóð ekki gæfu til að kjósa þá til forystu sem vilja taka gæslu þeirra að sér lendir hún í ógöngum." Meira
20. október 2017 | Aðsent efni | 546 orð | 1 mynd

Þurfum þáttaskil í málum aldraðra

Eftir Björgvin Guðmundsson: "Kominn er tími á að bæta kjör þessara aðila það myndarlega að þeir finni fyrir breytingunni og geti lifað með reisn í framhaldinu." Meira
20. október 2017 | Pistlar | 346 orð | 1 mynd

Ætlum að lækka tryggingagjaldið

Tryggingagjaldið sem fyrirtæki landsins greiða skilar ríkissjóði tugum milljarða króna árlega. Þetta er afar umdeildur skattur, ekki síst þar sem hann leggst misþungt á fyrirtæki og þyngst á þau fyrirtæki sem eru með hátt hlutfall launakostnaðar. Meira

Minningargreinar

20. október 2017 | Minningargreinar | 4444 orð | 1 mynd

Lára Gunnarsdóttir

Lára Gunnarsdóttir fæddist 17. júní 1916, að Botnastöðum í Svartárdal, A-Hún, og ólst þar upp. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð 4. október 2017. Foreldrar Láru voru Ingibjörg Lárusdóttir, f. 19.9. 1883, d. 30.6. 1977, og Gunnar Jónsson, bóndi, f. Meira  Kaupa minningabók
20. október 2017 | Minningargreinar | 1272 orð | 1 mynd

Pernille G. Bremnes

Pernille Guðrún Bremnes fæddist á Búlandsnesi í S-Múlasýslu 1. september 1930. Hún lést á Landspítalanum 26. september 2017. Foreldrar hennar voru Svanborg Ingvarsdóttir húsfreyja frá Akureyri, f. 1896, d. Meira  Kaupa minningabók
20. október 2017 | Minningargreinar | 2395 orð | 1 mynd

Sigurður Hólm Þorsteinsson

Sigurður Hólm Þorsteinsson, málarameistari, fæddist í Reykjavík 28. janúar 1935. Hann lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 10. október 2017. Foreldrar hans voru hjónin Margrét Sigríður Magnúsdóttir, f. 25. nóvember 1909, d. 27. Meira  Kaupa minningabók
20. október 2017 | Minningargreinar | 2438 orð | 1 mynd

Sigurður H. Þorsteinsson

Sigurður Heiðar Þorsteinsson fæddist 14. júní 1934. Hann lést 11. október 2017. Foreldrar hans voru Halldóra S. Ingimundardóttir, f. 19. maí 1896, d. 23. nóvember 1967, og Þorsteinn Sigurðsson, f. 1. mars 1901, d. 7. Meira  Kaupa minningabók
20. október 2017 | Minningargreinar | 1059 orð | 1 mynd

Stefán Bjarnason

Stefán Bjarnason fæddist 18. janúar 1917 á Sauðárkróki. Hann lést 11. október 2017 á Dvalarheimilinu Höfða. Hann var yngstur fimm systkina en systkini hans voru Ólöf Jóhannesdóttir húsmóðir, f. 1902, d. Meira  Kaupa minningabók
20. október 2017 | Minningargreinar | 535 orð | 1 mynd

Steinunn Bergsdóttir

Steinunn Bergsdóttir fæddist 22. september 1937 á Hofi í Öræfum. Hún lést 11. október 2017 á Landspítalanum við Hringbraut. Foreldrar hennar voru Guðmundur Bergur Þorsteinsson bóndi og kona hans Pála Jónína Pálsdóttir. Systkini Steinunnar eru: Sigrún,... Meira  Kaupa minningabók
20. október 2017 | Minningargreinar | 1913 orð | 1 mynd

Valgerður Ármannsdóttir

Valgerður Ármannsdóttir fæddist í Gerðarkoti í Ölfusi 2. nóvember 1927. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 8. október 2017. Foreldrar hennar voru Ásta Bjarnadóttir frá Gerði í Innri-Akraneshreppi, f. 20.7. 1907, d. 7.11. Meira  Kaupa minningabók
20. október 2017 | Minningargreinar | 383 orð | 1 mynd

Víglundur Sigurjónsson

Víglundur Sigurjónsson fæddist 23. desember 1920. Hann andaðist 8. október 2017. Útför Víglundar fór fram 19. október 2017. Meira  Kaupa minningabók
20. október 2017 | Minningargreinar | 655 orð | 1 mynd

Þórunn Sigurfinnsdóttir

Þórunn Sigurfinnsdóttir klæðskeri fæddist á Bergsstöðum í Árnessýslu 22. júní 1920. Hún lést á dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík 9. október 2017. Foreldrar hennar voru Sigurfinnur Sveinsson, f. á Rauðafelli undir Eyjafjöllum 12.12. 1884, d. 31.3. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

20. október 2017 | Viðskiptafréttir | 204 orð | 1 mynd

Félög greiða meira fyrir fasteignir

Félög í leigustarfsemi á höfuðborgarsvæðinu hafa samkvæmt þinglýstum kaupsamningum greitt hærra fermetraverð fyrir íbúðir en einstaklingar alla ársfjórðunga síðan haustið 2014. Munar þar að jafnaði 25 þúsund krónum á fermetra á núverandi verðlagi. Meira
20. október 2017 | Viðskiptafréttir | 103 orð | 1 mynd

Tíu hugmyndir keppa til úrslita um Gulleggið

Alls bárust 82 viðskiptahugmyndir í frumkvöðlakeppnina Gulleggið í ár og hefur dómnefnd valið 10 hugmyndir til þess að keppa til úrslita. Meira
20. október 2017 | Viðskiptafréttir | 577 orð | 2 myndir

Vextir hækka þrátt fyrir vaxtalækkun Seðlabankans

Baksvið Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Lífeyrissjóður verslunarmanna (LV) hefur hækkað vexti á óverðtryggðum sjóðfélagalánum í 6,09% en fyrir breytingu voru þeir 5,72%. Meira

Daglegt líf

20. október 2017 | Daglegt líf | 105 orð | 1 mynd

Alþjóðleg landnemabyggð á tunglinu er rökrétt framhald

Vísindamenn telja líklegt að á næstu 10 til 20 árum verði komin byggð á tunglið. Ekki í hefðbundnum skilningi heldur meira í ætt við samfélag vísinda- og tæknimanna. Þetta kemur fram á vefmiðlinum phys. Meira
20. október 2017 | Daglegt líf | 1296 orð | 2 myndir

Er hurðin að klaustrinu fundin?

Í bókinni Leitin að klaustrunum varpar Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur fram þeirri kenningu að Valþjófsstaðarhurðin, einn merkasti forngripur Íslendinga, hafi í raun upphaflega verið hurðin að klaustrinu að Keldum á Rangárvöllum. Meira
20. október 2017 | Daglegt líf | 204 orð | 1 mynd

Leitin að hinum fornu klaustrum

Í nýrri bók sem Steinunn Kristjánsdóttir, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnið, hefur ritað, bregður hún ljósi á sögu klausturhalds á Íslandi. Meira
20. október 2017 | Daglegt líf | 96 orð | 1 mynd

Myndmál hurðarinnar

Í bókinni Þjóðminjar lýsir Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður myndmáli Valþjófsstaðarhurðarinnar svo: „Á efri myndfletinum er þekkt miðaldasaga í þremur þáttum. Neðst sést riddari á hesti sínum og flýgur veiðihaukur með honum. Meira
20. október 2017 | Daglegt líf | 88 orð | 1 mynd

Skrínin tvö

Aðeins hafa varðveist tvö helgiskrín frá kaþólskum tíma hérlendis. Þau eru eins, og er annað þeirra varðveitt á Þjóðminjasafninu og hitt á systursafni þess í Danmörku. Meira
20. október 2017 | Daglegt líf | 128 orð | 1 mynd

Svið og blóðgrautur á borðum

Nú er lag fyrir þá sem kunna að meta góðmetið svið, sem og fyrir þá sem kunna að meta skemmtilegan félagsskap, því sviðaveisla verður haldin í Sauðfjársetrinu á Ströndum í Sævangi á morgun, laugardag 21. október. Meira

Fastir þættir

20. október 2017 | Fastir þættir | 162 orð | 1 mynd

1. d4 f5 2. Rf3 Rf6 3. e3 e6 4. Bd3 b6 5. 0-0 Bb7 6. c4 Be7 7. Rc3 0-0...

1. d4 f5 2. Rf3 Rf6 3. e3 e6 4. Bd3 b6 5. 0-0 Bb7 6. c4 Be7 7. Rc3 0-0 8. b3 De8 9. Bb2 Dh5 10. d5 Ra6 11. Rd4 Rc5 12. Dxh5 Rxh5 13. Be2 Rf6 14. dxe6 dxe6 15. b4 Rce4 16. Rxe6 Hfc8 17. Rxe4 Bxe4 18. Hfd1 Bxb4 19. c5 Kf7 20. Bc4 Ke7 21. f3 b5 22. Meira
20. október 2017 | Í dag | 258 orð

Af nifteindastjörnu og myndir úr náttúrunni

Helgi R. Einarsson veltir því hér fyrir sér sem hann kallar „síðari tíma vanda“: Ekki' undan „ábyrgð“ sér víkja er atkvæði þjóðar sér sníkja. Ef þau síðan fá og þingsetu ná má loforðin síðar meir svíkja. Meira
20. október 2017 | Í dag | 53 orð | 1 mynd

Berglind Friðriksdóttir

40 ára Berglind ólst upp á Seyðisfirði, býr í Hafnarfirði, hefur verið í fiskverkun, sinnt umönnun, bakað pítsur og unnið á Kárahnjúkum. Systkini: Anna Dísa, f. 1975, og Grétar Valur, f. 1982. Foreldrar: Friðrik Max, f. 1942, d. Meira
20. október 2017 | Fastir þættir | 167 orð

Fagurfræði. N-NS Norður &spade;ÁK9642 &heart;D10 ⋄73 &klubs;Á72...

Fagurfræði. N-NS Norður &spade;ÁK9642 &heart;D10 ⋄73 &klubs;Á72 Vestur Austur &spade;G5 &spade;D108 &heart;765 &heart;42 ⋄K96 ⋄G1085 &klubs;D10654 &klubs;KG98 Suður &spade;73 &heart;ÁKG983 ⋄ÁD42 &klubs;3 Suður spilar 6&heart;. Meira
20. október 2017 | Árnað heilla | 287 orð | 1 mynd

Frumkvöðull í flugbjörgunarsveitunum

Einar Gunnarsson málarameistari er 85 ára í dag. Hann fæddist á Skólavörðustíg 27 og ólst þar upp. Hann gekk í Austurbæjarskólann og æfði frjálsar íþróttir með ÍR á Melavelli. Einar var dugnaðarforkur til vinnu og starfaði m.a. Meira
20. október 2017 | Í dag | 45 orð | 1 mynd

Haukur Baldvinsson

40 ára Haukur býr á Selfossi, lauk sveinsprófi í húsasmíði og rekur Toyotaumboðið þar. Maki: Ragnhildur Loftsdóttir, f. 1974, fjármálastjóri. Synir: Dagur Orri, f. 2005, og Loftur Breki, f. 2009 Foreldrar: Þuríður Bjarnadóttir, f. 1942, fyrrv. Meira
20. október 2017 | Árnað heilla | 32 orð | 1 mynd

Hákon Ari Heimisson , Grétar Smári Samúelsson og Tómas Elí Vilhelmsson...

Hákon Ari Heimisson , Grétar Smári Samúelsson og Tómas Elí Vilhelmsson söfnuðu dóti og héldu tombólu í Neista á Ísafirði. Þeir söfnuðu 2.518 kr. sem þeir færðu Rauða krossi Íslands að... Meira
20. október 2017 | Í dag | 52 orð | 1 mynd

Ingibjörn Öxndal Reynisson

40 ára Ingibjörn ólst upp á Sauðárkróki, býr í Auðsholti í Hrunamannahreppi, lauk stúdentsprófi frá FNV og er bóndi í Auðsholti. Maki: Harpa Vignisdóttir, f. 1982, bóndi. Börn: Vignir, f. 2004; Rebekka, f. 2007, og Hilmir, f. 2009. Meira
20. október 2017 | Í dag | 84 orð | 1 mynd

Jess Glynne á afmæli í dag

Söngkonan Jess Glynne fagnar 28 ára afmæli í dag. Hún fæddist 20. október árið 1989 í Hampstead í Norður-London og hlaut skírnarnafnið Jessica Hannah Glynne. Meira
20. október 2017 | Í dag | 233 orð | 1 mynd

Jóhannes L.L. Helgason

Jóhannes fæddist í Reykjavík 20.10. 1937. Foreldrar hans voru Helgi Jóhannesson, loftskeytamaður í Reykjavík, og k.h., Dagmar Árnadóttir. Helgi var sonur Jóhannesar Lárusar Lynge Jóhannssonar, prests á Kvennabrekku í Dölum, og s.k.h. Meira
20. október 2017 | Í dag | 88 orð | 2 myndir

Jülevenner Emmsjé Gauta í Gamla bíói

Eiturhressir tónlistarmenn mættu í viðtal til Sigga Gunnars á K100 í gærmorgun en það voru Emmsjé Gauti og Keli trommari í Agent Fresco. Það var sannkölluð jólastemning hjá strákunum enda ætla þeir að blása til jólatónleika 21. og 22. desember nk. Meira
20. október 2017 | Í dag | 54 orð

Málið

Ófá orð eru til í tveimur kynjum. Smíði í merkingunni smíðaður gripur , þekkist bæði í kvenkyni , hún, smíðin , og hvorugkyni , það, smíðið . Eins er um smásmíði í merkingunni lítill hlutur . Meira
20. október 2017 | Í dag | 203 orð

Til hamingju með daginn

90 ára Sigríður Loftsdóttir 85 ára Einar Gunnarsson Erlingur K. Ævarr Jónsson Eymundur Lúthersson Kristinn Magnússon Marinó Óskarsson 80 ára Stefán Magnússon Þóroddur Vilhjálmsson 75 ára Grétar K. Ingimundarson Katrín E. Sigurðardóttir Lucy W. Meira
20. október 2017 | Fastir þættir | 303 orð

Víkverji

Dimm nóttin tók á móti Víkverja dagsins þegar hann fór síðast í millilandaflug frá Íslandi. Farið var með Wow air en morgunvélar þess félags fara frá Keflavík klukkan 6. Líklega geta morgunhressustu menn meira að segja samþykkt að það er býsna snemmt. Meira
20. október 2017 | Í dag | 628 orð | 3 myndir

Þar sem eiga stefnumót – saga, land og þjóð

Einar Ásgeir Sæmundsen fæddist í Reykjavík 20.10. 1967, ólst upp í Kaupmannahöfn til fimm ára aldurs, síðan í Kópavogi, í Reykjavík og aftur í Kópavogi. Einar var í Hvassaleitisskóla, lauk stúdentsprófi frá MK, lauk B.Sc. Meira
20. október 2017 | Í dag | 114 orð | 1 mynd

Þetta gerðist...

20. október 1728 Eldur kom upp í Kaupmannahöfn og stóð í þrjá daga. Þá brann mikill hluti bókasafns Árna Magnússonar en flestum skinnhandritum var bjargað. 20. Meira
20. október 2017 | Í dag | 15 orð

því að hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós...

því að hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós. Meira

Íþróttir

20. október 2017 | Íþróttir | 71 orð | 1 mynd

Aron bíður bara pappíra

Aron Pálmarsson verður kynntur sem nýr leikmaður Spánarmeistara Barcelona á allra næstu dögum, en aðeins er beðið eftir því að pappírar í tengslum við félagaskipti hans frá ungverska liðinu Veszprém fari í gegn hjá Evrópska handknattleikssambandinu. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 102 orð | 1 mynd

Dominos-deild karla Keflavík – Grindavík 93:88 Tindastóll &ndash...

Dominos-deild karla Keflavík – Grindavík 93:88 Tindastóll – Þór Akureyri 92:70 Höttur – Valur 93:99 KR – ÍR 88:78 Staðan: KR 321247:2324 Keflavík 321288:2644 Stjarnan 220167:1384 ÍR 321240:2234 Tindastóll 321236:2134 Grindavík... Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 249 orð | 1 mynd

Eftirvæntingin fer vaxandi í íslenska landsliðshópnum vegna hins...

Eftirvæntingin fer vaxandi í íslenska landsliðshópnum vegna hins risavaxna verkefnis sem bíður liðsins í Wiesbaden á morgun. Ólympíumeistarar Þjóðverja taka þá á móti Íslendingum í undankeppni HM eins og um er fjallað hér á síðum blaðsins. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 102 orð | 1 mynd

Ensku liðin að ná vopnum sínum

Eftir nokkurra ára vandræðagang í Meistaradeild Evrópu virðast ensku liðin vera að ná vopnum sínum en þegar riðlakeppnin er hálfnuð eru Manchester United, Chelsea, Liverpool, Manchester City og Tottenham öll á toppnum í sínum riðlum og taplaus. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 318 orð | 1 mynd

Evrópudeildin A-RIÐILL: Astana – Maccabi Tel Aviv 4:0 • Viðar...

Evrópudeildin A-RIÐILL: Astana – Maccabi Tel Aviv 4:0 • Viðar Örn Kjartansson lék fyrstu 75 mínúturnar fyrir Maccabi Tel Aviv. Villarreal – Slavia Prag 2:2 * Staðan: Villarreal 5, Slavia Prag 5, Astana 4, Maccabi Tel Aviv 1. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 114 orð | 2 myndir

Fram – ÍBV33:30

Framhúsið, úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin, fimmtudaginn 19. október 2017. Gangur leiksins : 2:2, 3:4, 5:5, 9:10, 13:12, 16:13, 17:14, 19:16, 22:19, 27:22, 29:26, 33:30. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 296 orð | 2 myndir

Fyrsta tap ÍBV kom í Safamýri

Í Safamýri Kristín María Þorsteinsdóttir kristinmaria@mbl.is Fram hafði 33:30-heimasigur gegn ÍBV í fimmtu umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í gær. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 103 orð | 1 mynd

Glover samdi við FH-inga

Bandaríska knattspyrnukonan Marjani Hing Glover er gengin í raðir FH og skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Hafnarfjarðarliðið. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 408 orð | 2 myndir

Góð varnarvinna

Í Wiesbaden Kristján Jónsson kris@mbl.is „Ég held að búast megi við góðri varnarvinnu hjá okkur, þéttum og góðum varnarleik,“ sagði miðvörðurinn reyndi, Sif Atladóttir, þegar Morgunblaðið ræddi við hana fyrir landsliðsæfingu í gær. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 187 orð | 1 mynd

Gylfi gaf von í stundarkorn

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hjá Everton eiga þungan róður fyrir höndum í Evrópudeildinni í knattspyrnu þegar riðlakeppnin er hálfnuð. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 122 orð | 2 myndir

Höttur – Valur 93:99

Brauð & Co-höllin Egilsstöðum, Dominos-deild karla, fimmtudag 19. október 2017. Gangur leiksins: 4:4, 6:9, 11:16, 19:22 , 25:29, 32:32, 40:37, 44:44 , 49:50, 55:55, 59:63, 65:66 , 69:72, 74:77, 83:82, 90:90 , 92:92, 93:99. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 1308 orð | 1 mynd

Keflavík líður alltaf best í Keflavík

Körfuboltinn Skúli B. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 122 orð | 2 myndir

Keflavík – Grindavík 93:88

TM-höllin, Dominos-deild karla, fimmtudag 19. október 2017. Gangur leiksins: 3:6, 8:15, 14:17, 22:24 , 25:29, 31:36, 38:41, 49:45 , 51:49, 60:57, 63:59, 68:63 , 78:68, 84:74, 88:80, 93:88. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 112 orð | 2 myndir

KR – ÍR 88:78

DHL-höllin, Dominos-deild karla, fimmtudag 19. október 2017. Gangur leiksins: 8:6, 10:17, 18:20, 23:23 , 33:23, 36:27, 40:34, 47:36 , 56:44, 60:44, 65:52, 69:62 , 72:69, 80:72, 84:73, 88:78 . Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 34 orð | 1 mynd

KÖRFUKNATTLEIKUR Dominos-deild karla: Schenkerhöllin: Haukar – Þór...

KÖRFUKNATTLEIKUR Dominos-deild karla: Schenkerhöllin: Haukar – Þór Þ. 19.15 Njarðvík: Njarðvík – Stjarnan 19.15 HANDKNATTLEIKUR Grill 66-deild karla: Varmá: Hvíti riddarinn – ÍBV-U 18.00 Laugardalshöll: Þróttur – KA 19. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 472 orð | 2 myndir

Markmið að opna nýjan leikvang 2020

Laugardalsvöllur Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Vonir standa til að fyrri hluta árs 2020 verði búið að vígja nýjan Laugardalsvöll sem myndi leysa núverandi þjóðarleikvang af hólmi. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 102 orð | 1 mynd

Olís-deild kvenna Fram – ÍBV 33:30 Staðan: Valur 5410134:1089 Fram...

Olís-deild kvenna Fram – ÍBV 33:30 Staðan: Valur 5410134:1089 Fram 5320150:1268 ÍBV 5311143:1147 Haukar 5302110:1086 Stjarnan 5212145:1335 Selfoss 5113117:1353 Grótta 5014108:1381 Fjölnir 501487:1321 Grill 66-deild karla Stjarnan U – Mílan... Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 524 orð | 1 mynd

Reyna mun á fínustu taugar þeirra þýsku

Í Wiesbaden Kristján Jónsson kris@mbl.is Þau gerast ekki miklu erfiðari verkefnin en það sem íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu þarf að leysa í dag. Liðið mætir þá Þýskalandi á útivelli í Wiesbaden í undankeppni HM. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 147 orð | 1 mynd

Rúnar byrjaður að safna liði hjá KR

Rúnar Kristinsson, nýráðinn þjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu, er byrjaður að safna liði fyrir átökin á næstu leiktíð. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 89 orð | 1 mynd

Til FH eftir tímabilið ytra

FH-ingar hafa tryggt sér þjónustu miðjumannsins Guðmundar Kristjánssonar til næstu tveggja ára og er hann fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir FH eftir að Ólafur Kristjánsson tók við þjálfun liðsins á dögunum. Meira
20. október 2017 | Íþróttir | 125 orð | 2 myndir

Tindastóll – Þór Ak. 92:70

Íþróttahúsið á Sauðárkróki, Dominos-deild karla, fimmtudag 19. október 2017. Gangur leiksins: 6:9, 14:11, 27:13, 27:20 , 31:22, 33:26, 41:31, 47:34 , 61:47, 63:50, 66:53, 72:55 , 74:58, 78:62, 89:63, 92:70. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.