Við vorum tvenn hjón sem sömdum við Ferðaskrifstofuna Sól um ferð 25. maí til 8. júní til Portúgals. Af hverju Sól varð fyrir valinu, jú gott boð, allt viðmót hjá starfsfólki til fyrirmyndar, jákvæðar auglýsingar, ekki auglýst á kostnað annarra, eins og ein stærsta ferðaskrifstofan gerði, slík fyrirtæki eru komin í þrot og ættu að taka til hjá sér, ekki meira um það að sinni.
Við komum til Faró um kl. 20 og þar tóku á móti okkur fararstjórar með Sólarbros og traustið geislaði frá þeim, sem reyndi vel á síðar. Fóru margir á Hótel Paraiso, en við hjónin ásamt vinafólki okkar fórum á frekar lítið en notalegt hótel með stúdíóíbúðum, sem heitir Santa Eulália. Við áttum mjög góða daga í 29°C til 38°C hita með og án fararstjóra þar til að kveldi 28. maí. Þar byrjuðu fyrst raunveruleg kynni mín af fararstjórum Sólar.
Ég varð fyrir því óláni að fótbrjóta mig. Þegar við sáum að það var alvara á ferð, var haft samband við fararstjóra, sem var kominn að vörmu spori og læknir skömmu síðar, sem deyfði mig svo mér liði betur meðan beðið var eftir sjúkrabíl. Ég var fluttur á sjúkrahús í Alvor, sem Sól er með samning við. Var þar tekið mjög vel á móti mér og fann ég mikla hlýju frá starfsfólki, var ég myndaður og því næst settur í gifs.
Að morgni 29. maí fórum við hjónin að ræða við vinafólk okkar um breytta stöðu mála, þar sem ég komst ekki um þetta hótel í hjólastól. Ekki þurftum við að hafa langvarandi áhyggjur af því þar sem fararstjóri okkar kom og tjáði okkur að við yrðum flutt á Hótel Paraiso þar sem ég kæmist víða um. Um kl. 19.30, rétt um 24 stundum eftir að ég brotnaði, vorum við komin í hinar bestu hótelíbúðir og vinafólk mitt var líka flutt og sett í íbúð við hliðina á minni íbúð, geri aðrir betur!
Þar sem ég komst ekki út fyrir lóð hótelsins, hafði ég nægan tíma til þess að fylgjast með því sem var að gerast og létti það mér margar stundir, þar sem starfsfólk á Paraiso var með afbrigðum kurteist, elskulegt og ekkert annað en hjálpsemin. Samferðafólki mínu öllu, ungu sem öldnu, þakka ég alla umhyggjuna sem ég fékk.
En þrautagöngu minni var ekki lokið. Hinn 7. júní voru margir að framlengja dvölina vegna veðurblíðu. Þá varð ég að framlengja vegna blóðtappa og lungnabólgu. Var ég þá fluttur í skyndi til Avor á sjúkrahús og lá þar í eina viku. Get ég seint fullþakkað öllu því starfsfólki, sem þar starfar, hvernig það bar mig á höndum sér.
Heim komst ég hinn 15. júní og var fluttur á Landspítalann, en þar fékk ég ekki jafngóðar móttökur, en ef ég greini frá því verður það að vera efni í aðra grein.
Um leið og ég þakka öllum fyrir allt það sem fyrir mig var gert bíð ég eftir að komast til starfa, vonandi í lok ágústmánaðar.
Af minni reynslu get ég hvatt þig, lesandi góður, til að ferðast með Sólarbros á vör, með ferðaskrifstofunni Sól.
KARL JENSEN SIGURÐSSON,
Laugavegi 146, Reykjavík.
Frá Karli Jensen Sigurðssyni:





Til baka
Leita í greinasafni
Prenta grein