Fyrsti Fokkerinn kominn í loftið ÁSDÍS, fyrsta Fokker 50 flugvél Flugleiða, fór í sitt fyrsta flug í liðinni viku. Gekk flugið vel, samkvæmt upplýsingum Flugleiða.

Fyrsti Fokkerinn kominn í loftið ÁSDÍS, fyrsta Fokker 50 flugvél Flugleiða, fór í sitt fyrsta flug í liðinni viku. Gekk flugið vel, samkvæmt upplýsingum Flugleiða. Fokker hefur lokið öllum sínum prófunum á vélinni og flugmenn Flugleiða fara með hana í reynsluflug á morgun, mánudag. Vélin verður afhent Flugleiðum á Akureyri næstkomandi laugardag.

Fokker-verksmiðjurnar í Hollandi eru að smíða fjórar Fokker 50 flugvélar fyrir innanlandsflug Flugleiða. Verða þær afhentar félaginu á næstu mánuðum. Fyrstu vélinni, Ásdísi, verður flogið til Akureyrar þar sem hún verður afhent við hátíðlega athöfn næstkomandi laugardag. Næsta vél verður afhent á Egilsstöðum 29. þessa mánaðar og hinar tvær á Ísafirði og Egilsstöðum í apríl og maí.

Ásdís fór í sitt fyrsta flug síðastliðinn mánudag og á föstudag var búið að fljúga henni samtals í rúmar sex klukkustundir. Samkvæmt upplýsingum Kristins Halldórssonar yfirmanns tæknideildar Flugleiða er Ásdís fyrsta vélin sem í er settur sérstakur búnaður til að auka hleðslumöguleika vélanna. Auk þess eru skrúfublöðin betur samhæfð til að minnka hávaða og titring. Starfsmenn Flugleiða hafa lokið öllum skoðunum á Ásdísi og reynslufljúga henni á morgun.

Ásdís í flugtaki á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Á innfelldu myndinni sést þessi fyrsta Fokker 50 flugvél Flugleiða í tilraunaflugi.