Þátttaka barna á Íslandi í almennum bólusetningum dróst saman um allt að 6% á árunum 2018 til 2022. Er m.a. viðvarandi dræm þátttaka fjögurra ára barna í viðhaldsbólusetningu gegn kíghósta, barnaveiki og stífkrampa
Meira
Fjögur ný tilfelli kíghósta greindust á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Alls eru þau þá orðin sex en tvö greindust fyrr í mánuðinum. Það voru fyrstu tilfelli kíghósta sem greinst hafa hér á landi síðan árið 2019
Meira
Viðtal Ólafur Pálsson olafur@mbl.is Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir embættið hafa vakið athygli lækna sérstaklega á því að kíghósti hafi greinst hér á landi nýlega. Hún segir í samtali við Morgunblaðið að einkenni kíghósta séu með þeim hætti að læknar þurfi sérstaklega að hugsa til öndunarfærasýkingarinnar til þess að átta sig á því að prófa fyrir henni. „Í dag er kíghósti ekki inni í almennum „öndunarfærapanel“ en rætt er um að breyta því.“
Meira
2. apríl 2024
| Innlendar fréttir
| 210 orð
| 1 mynd
„Ein ástæða fyrir því að við erum að þessu er til að læra, kryfja málin og reyna að bæta samfélagið,“ segir Helgi Örn Viggósson í samtali við Morgunblaðið, en hann er einn af skipuleggjendum málþings sem ber yfirskriftina Segjum frá! sem haldið verður á fimmtudaginn á Reykjavík Natura
Meira
Við kynntumst þegar við unnum saman í tvö ár eftir að við lukum dýralæknanámi. Við fundum strax hversu vel við unnum saman, við vegum hvor aðra upp,“ segja þær Katrín Wagner og Helga Björt Bjarnadóttir sem eiga og reka fyrirtæki saman undir nafninu Dýralæknar Katrin & Helga ehf
Meira
7. mars 2024
| Innlendar fréttir
| 2583 orð
| 5 myndir
„Aðdragandinn er sá að ég átti fimmtugsafmæli í nóvember 2022 og ákvað þá að flýja land, ég var í smá miðaldrakrísu,“ segir Olga Eleonora Marcher Egonsdóttir fjármálastjóri, sem fljótt á litið gæti virst ósköp venjulegur íbúi við Leifsgötuna, enda búsett þar
Meira
Hettusótt greindist á höfuðborgarsvæðinu í febrúar og hefur nú einstaklingur með tengingu við fyrsta tilfellið einnig greinst með hettusótt. Bólusett hefur verið gegn veirunni frá árinu 1989 og því um fá tilfelli að ræða hérlendis síðan þá
Meira
Baksvið Kristján Jónsson kris@mbl.is Fullorðinn einstaklingur sem er í ferðalagi á Íslandi greindist með mislinga á Landspítalanum á laugardaginn eins og greint var frá á mbl.is. Hann er nú í einangrun en að sögn Guðrúnar Aspelund sóttvarnalæknis kemur í fyrsta lagi í ljós í lok vikunnar hvort fleiri hafi smitast hér á landi.
Meira
Dauðsföllum fjölgaði um 37% í viku 42 sem er vikan þar sem bólusetning gegn covid var boðin 60+ ára og sprautun vistmanna hjúkrunarheimilanna hófst.
Meira
Íslendingar munu ekki hafa um viðbrögð að segja, t.d. bólusetningar, rafræn vottorð, ferðafrelsi, innilokanir, grímuskyldu barna og frelsi til athafna.
Meira
„Það er mikið álag á heilsugæslunni núna vegna flensunnar og umgangspesta,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hinn árlegi flensufaraldur virðist vera skollinn á með nokkrum þunga því mikið er um veikindi víða
Meira
Mikil aukning hefur verið í öndunarfærasýkingum undanfarið, að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Við verðum vör við töluverða aðsókn í ráðgjöf hjá okkur,“ segir hún
Meira
Þórólfur Guðnason er fæddur 28. október 1953 á Hvolsvelli enda báðir foreldrar hans Rangæingar, ættaðir frá Austur-Landeyjum og Hvolhreppi. „Ég fluttist við tveggja ára aldur frá Hvolsvelli til Eskifjarðar þar sem ég bjó til níu ára aldurs í næsta húsi við Alla ríka
Meira
Töluvert er um öndunarfærasýkingar í samfélaginu og niðurstöður frá öndunarfærasýnum sýna að algengustu orsakirnar eru rhinoveira, sem er algengasta orsök kvefs, og covid-19, að því er kemur fram á vef embættis landlæknis
Meira
Fiskeldisfrömuðir höfðu vonað að aðstæður í íslenskum fjörðum myndu halda í skefjum mörgum af þeim sjúkdómum sem plagað hafa fiskelidsstöðvar í öðrum löndum. Höfðu fyrirtækin í greininni ekki síst vonast til að laxalúsin yrði auðveldari viðureignar…
Meira
Bætur verða greiddar til þeirra sem verða fyrir tjóni vegna bólusetningar með bóluefni sem íslensk heilbrigðisyfirvöld leggja til, að því er fram kemur í drögum að nýju frumvarpi til laga um sjúklingatryggingu sem heilbrigðisráðherra hyggst leggja fram á Alþingi í vetur
Meira
Bólusetningar hófust í gær gegn covid-19 og inflúensu þetta haustið, en covid-bóluefnið Comirnaty Omicron XBB.1.5 verður notað við bólusetningar í vetur. Hægt er að fá bólusetningu við bæði kórónuveirunni og inflúensu á sama tíma, en þó ekki fyrr en 16
Meira
„Samfélagið allt hefur kallað eftir öflugri og fjölbreyttari heilbrigðisþjónustu. Því kalli viljum við svara,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, nýr forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins (HH)
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.