Spurt og svarað
Á þessari síðu er svarað algengustu spurningum varðandi notkun leiguvefsins á mbl.is.
- Geta áskrifendur að Morgunblaðinu auglýst frítt á leiguvefnum?
- Hvernig set ég inn auglýsingu á Leiguvefinn?
- Hvernig get ég tekið eign af vefnum sem búið er að leigja?
- Hvað á ég að gera ef ég vill birta auglýsingu á ný?
- Hvernig get ég breytt auglýsingu?
- Hvernig get ég framlengt auglýsingu?
- Hvernig get ég séð hvenær auglýsingin rennur út?
- Hversu lengi birtast auglýsingar á Leiguvefnum?
- Get ég greitt fyrir auglýsinguna án þess að nota kort?
- Hversu margar myndir get ég sett inn með auglýsingunni.
- Hver er ávinningurinn við að setja inn stikkorð?
- Bað um upplýsingar um íbúð en hef ekkert svar fengið. Hver er ástæðan?
- Af hverju er ekkert símanúmer sem hægt er að hringja í?
Þú smellir á tengilinn Húsnæði til leigu í gula boxinu hægra megin og skráir þig inn í framhaldi. Hafir þú ekki verið skráður áður þarf að velja nýskráningu sem tekur örskamma stund. Þessi akráning gildir á öllum vefjum mbl.is.
Þú skráir þig inn og smellir í framhaldi á tengilinn Eignirnar mínar efst í hægra horninu. Þá birtist listi yfir þær eignir sem þú hefur skráð. Þá nægir að smella á tengilinn Fela fyrir aftan eignina. Þá dettur eignin út af vefnum.
Þú skráir þig inn og smellir í framhaldi á tengilinn Eignirnar mínar efst í hægra horninu. Þá birtist listi yfir þær eignir sem þú hefur skráð. Þá nægir að smella á tengilinn Birta fyrir aftan eignina. Þá birtist auglýsingin aftur. Þ. e. a. s. ef tími hennar er ekki útrunninn.
Þú skráir þig inn og smellir í framhaldi á tengilinn Eignirnar mínar efst í hægra horninu. Þá birtist listi yfir þær eignir sem þú hefur skráð. Þá nægir að smella á tengilinn Breyta fyrir aftan eignina. Auglýsingin birtist og hægt er að gera nauðsynlegar breytingar.
Þú skráir þig inn og smellir í framhaldi á tengilinn Eignirnar mínar efst í hægra horninu. Þá birtist listi yfir þær eignir sem þú hefur skráð. Þá nægir að smella á tengilinn Framlengja fyrir aftan eignina. Velja síðan hversu lengi auglýsingin á að birtast. Gefa síðan upp kortanúmer og gildistíma og smella síðan á hnappinn Greiða
Þú skráir þig inn og smellir í framhaldi á tengilinn Eignirnar mínar efst í hægra horninu. Þá birtist listi yfir þær eignir sem þú hefur skráð. Efst í listanum má sjá hvenær auglýsingin var sett inn og hvenær hún rennur út.
Hægt er að velja á milli eins mánaðar eða einnar viku. Hægt er að velja á milli þessara kosta þegar auglýsingin er skráð.
Eini möguleikinn er að greiða með greiðslukorti eins og mál standa nú.
Eins margar og þú óskar.
Þegar leitarorð sem slegin inn er líka leitað í stikkorðunum. Stikkorð á borð við 3ja herbergja – tvöfalt gler – sérinngangur o. s. frv. Þannig verður eignin sýnilegri þegar leitað er. Á forsíðu vefjarins má sjá vinsælustu stikkorðin.
Þeir sem auglýsa íbúðir til leigu ákveða sjálfir hvaða fyrirspurnum þeir svara. Allair tölvupóstar sem sendir eru til leigusala komast til skila.
Það er ákvörðun leigusala hvort þeir láti símanúmer fylgja með eða ekki. Starfsfólki mbl.is er ekki heimilt að gefa upp meiri upplýsingar en þær sem eru að finna í auglýsingunni.




