Bólstaðarhlíð 45, 105 Austurbær — Íbúð

Til leigu 2ja herb., 42,9 fm² íbúð, fyrir 60 ára og eldri.  Ca. 12 fm svalir.  Íbúðin, sem er laus strax, er á fimmtu hæð í húsi þar sem boðið er upp á þjónustu á vegum félags- og þjónustumiðstöðvar Reykjavíkur.  Í tengibyggingu á jarðhæð er hárgreiðslustofa, fótaaðgerðarstofa, setustofa, mötuneyti, vinnustofa o.fl.  Ýmis námskeið eru haldin þar á vegum Reykjavíkurborgar.  Frábær staðsetning, miðsvæðis, þar sem stutt er í verslun og þjónustu.

Nánari lýsing:  Stofa er með útgengt á rúmgóðar svalir.  Eldhús er með eldri innréttingu.  Svefnherbergi er með stórum fataskáp og korkflísum á gólfi.  Baðherbergi er með innréttingu, sturtu og vinyldúk á gólfi.  Sérgeymsla er á sömu hæð.  Parket er á stofu og eldhúsi. Sameiginlegt þvottahús með þvottavél og þurrkara er á 1. hæð.  Rúmgóð sameign með húsgögnum.  Þjónustusel er í tengibyggingu á jarðhæð, þar sem boðið er upp á ýmsa þjónustu.  Lyfta er í húsinu og einnig húsvörður.  Sameign og lóð er vel viðhaldið.
 

Allar nánari upplýsingar veitir Eggert lögg. leigumiðlari í síma 893-1819, eggert@remax.is
Bólstaðarhlíð 45

95 þús. á mánuði

Herbergi
2
Stærð
43 fm.
Laus frá
6. apríl

Senda fyrirspurn