Skipasund 74, 1104 None — Íbúð
Um er að ræða Skipasund 74, 71 fm. kjallaraíbúð í rólegu hverfi. Stutt í litla verslun í götunni og ennþá styttra í leikskóla.Gert var við húsið að utanverðu og málað síðasta sumar.
Fyrir tveimur árum voru ofnalagnir og ofnar endurnýjaðir.
Gengið er inn í forstofu með lökkuðu steingólfi og skóskáp, einnig er pláss fyrir skáp eða stóra kommóðu.
Stórt og rúmgott eldhús með gamallri en endurnýjaðri innréttingu, dúkur á gólfi.
Þokkalegt dúklagt baðherbergi með góðri lýsingu, rúmgóðri sturtu, stórum skáp og nýjum blöndunartækjum (vaskur, krani, flísar, spegill og ljós).
Stofan er björt og parketlögð, tengidós fyrir síma, netið, sjónvarp og net inn á svefnherbergi.
Fyrir innan stofuna er lítið barnaherbergi með hillum, pláss fyrir góðan skáp.
Svefnherbergið var málað fyrir tveimur árum í hlýjum og kósý jarðlitum, lakkað steingólf, nettenging.




