Blómvangur, 700 None — Íbúð
Domus fasteignasala kynnir 2. herbergja, 71,8 m2 íbúð á 3. hæð. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu og opið eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin er með sér inngang af jarðhæð, en gluggar eru gólfsíðir á vesturhlið. Allt gler er hert öryggisgler með sólvörn. Öll gólf nema baðherbergi og forstofa eru lögð ljósu Pergo parketi, á baðherbergi og í forstofu eru flísar. Allar innréttingar eru af vandaðri gerð, eldavél með blástursofni, vifta og ísskápur. Sturtuklefi er í baðherbergi og sjálfvirk þvottavél í þvottahúsi í sameign. Sérmerkt geymsla í kjallara.Falleg íbúð í glæsilegu fjölbýlishúsi í miðbæ Egilsstaða.





