Strikið, 210 Garðabær — Íbúð
FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL LEIGU EÐA SÖLU GLÆSILEGA ÍBÚÐ FYRIR ELDRI BORGARA, MEÐ AÐGANG AÐ ÞJÓNUSTUSELI Í SJÁLANDSHVERFI Í GARÐABÆ. Íbúðin er 2ja herbergja, 92,5 fm. á 3. hæð, merkt 03-24, og er með svölum sem snúa í suðvestur. Íbúðin er afhent tilbúinn án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi, en þar verða flísar.Jónshús er fjölbýlishús með 133 íbúðum, fyrir 60 ára og eldri. Húsin eru 6 hæðir nema miðjuhúsið sem er 4 hæðir en í því verður þjónustusel. Húsin standa á sameiginlegri lóð og mynda sameiginlegt garðrými sem opnast til sjávar. Í húsunum verða 2ja til 4ra herbergja íbúðir í ýmsum stærðum. Í öllum íbúðum eru 2 neyðarhnappar sem tengjast íbúð húsvarðar og vaktmiðstöð.
Þjónustusel verður á 1. hæð í miðri þyrpingunni. Þar verður að finna matsal og margvísleg rými til þjónustu fyrir eldri borgara. Tenging verður við garð þar sem áætlað er að koma fyrir púttvelli og dvalarsvæði sem hvetja fólk til útiveru.
Innihurðir verða úr eik svo og vandaðar íslenskar innréttingar sem verða frá Brúnás. Milliveggir verða hlaðnir og pússaðir. Vandaðir fataskápar sem ná upp undir loft verða í forstofu og herbergjum. Heimilistæki úr burstuðu stáli verða frá AEG. Vönduð hreinlætis- og blöndunartæki verða á baðherbergi sem verður flísalagt í u.þ.b. tveggja metra hæð með flísum frá Agli Árnasyni Lyftur eru í öllum stigahúsum, er ganga niður í bílageymslu. Á aðalhurðum verða sjálfvirkir hurðaopnarar. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan og klætt að mestu með sléttri og báraðri, litaðri klæðningu. Allar íbúðir hafa svalir, nema íbúðir á jarðhæðum hafa sólarverandir. Lóð verður frágengin með malbikuðum bílastæðum, hellulögðum gangstéttum með snjóbræðslukerfi við húsið, útiverönd, grasflötum og góðri lýsingu. Sjá nánar í skilalýsingu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TEIKNINGAR ERU Á SKRIFSTOFU FJÁRFESTINGAR.
Jónshús er í Sjálandi við Arnarnesvog í Garðabæ í fallegu umhverfi við sjávarsíðuna. Fallegar gönguleiðir eru í hverfinu. Ökuleiðir til og frá hverfinu eru greiðfarnar, stutt í Smáralind og miðbæ Garðabæjar. Vestast við voginn er náttúruleg fjara og í framhaldi af henni til austurs er gert ráð fyrir að komi sparkvöllur og sjóbaðsströnd sem snýr í sólarátt. Strandlengjan verður öll opin almenningi og gangstígur tengir hana og hverfið við miðbæ Garðabæjar. Í Sjálandi er gert ráð fyrir að muni rísa 2000 manna byggð. Áætlað er að í fullbyggðu Sjálandi verði um 760 íbúðir, þar af um 200 fyrir eldri borgara. Flutt var í fyrstu íbúðir hverfisins á haustmánuðum 2004
Nánari upplýsingar á www.fjarfest.is
Byggingaraðili: Byggingarfélag Gylfa og Gunnars ehf.
140 þús. á mánuði
Herbergi
2Stærð
93 fm.Laus
StraxStikkorð
Frekari upplýsingar
Fjárfesting - fjarfesting@fjarfesting.is





