RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Snyrtar lambakótilettur með ferskum brögðum

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
Hráefni
» 1stk. Lambahryggur
» 10g Olía
» 1stk. Hvítlauksrif
» 1grein. Rósmarín
» Salt og pipar
» 40ml Olía
» 1stk. Rauðlaukur
» 1stk. Kúrbítur
» 1/2stk. Eggaldin
» 1stk. Paprika
» 3stk. Tómatur (vel þroskaður)
» 1msk. Tómatmauk
» 1búnt Kóriander saxað
» 250ml Sýrður rjómi
» 30ml Vatn
» 1stk. Lime ( börkur og safi)
» 1msk Hunang
» 1/5 búnt Saxað kóriander

Fyrir 4 - 6

Lambakótilettur er mjög þekktur íslenskur réttur en þær voru gjarnan teknar með kaldar í útilegu áður en grillmenningin hóf innreið sína. Fólk ætti endilega að prófa þá rétti sem eru sýndir í þessum þætti - bæði hefbundnar kótilettur í raspi og nýstárlegri eldunaraðferð.

Aðferð

Hryggurinn er úrbeinaður. Byrjað á lundunum undir hryggnum. Svo er hryggnum snúið við og skorið meðfram hryggjarsúlunni. Hryggurinn er svo reistur upp á endann og högvinn niður eftir hryggjarsúlunni. Aftari hryggurinn er skorinn af og geymdur til betri dags. Rifinn eru hreinsuð með hníf og snæri. Skorið þvert á fituna og alveg í gegnum sinina.

Saltað og piprað, steikt á pönnu og brúnað á öllum hliðum. Sett í ofnskúffu með olíu, rósmarín og mörðum hvítlauk. Sett inn í ofn á 160 gráður í 10 mín og látið hvíla í 15mín.

Tómat-grænmeti
Allt skorið í jafn stóra teninga. Steikt á pönnu sitt í hvoru lagi í 2mín. Öllu blandað saman og kryddað til.
Sýrð rjómadressing

Öllu blandað saman og smakkað til með salti, pipar og hunangi.

Borið fram með klettasalati.

Þessi uppskrift er notuð í Lambakótilettur með kryddjurta-brauðskel

Meðlæti

Lambakótilettur með kryddjurta-brauðskel

Hráefni
» 12 lambakótilettur
» 1 egg
» 3 msk mjólk
» 1 bolli þurr brauðmylsna
» nýmalaður pipar
» salt
» 75 g smjör eða smjörlíki

Fyrir 3 - 4

Kótilettur eins og þær voru hjá mömmu og ömmu á sunnudögum hér áður fyrr - velt upp úr raspi og síðan pönnusteiktar í smjörlíki.

Aðferð

Kótiletturnar þerraðar, hluti af fitunni e.t.v. skorinn burt (einkum af rifinu) og barðar létt með buffhamri. Egg og mjólk léttþeytt saman og brauðmylsnan krydduð með pipar og salti ásamt kryddjurtum. Smjörið brætt á stórri, þykkbotna pönnu. Kótelettunum velt upp úr eggjablöndunni og síðan brauðmylsnunni. Brúnaðar á báðum hliðum við góðan hita en síðan er hitinn lækkaður og kótiletturnar steiktar áfram við hægan hita í 8-10 mínútur. Snúið einu sinni. Þá eru þær teknar af pönnunni og raðað á heitt fat. Meira smjör e.t.v. brætt á pönnunni og borið fram með léttsteiktu grænmeti.

Meistaramatur

Jógúrt cumin sósa Jógúrt cumin sósa
Jógúrt er skemmtileg tilbreyting við sýrðan rjóma í kaldar sósur. Meira

Fleira frá Meistaramat

Frá Hagkaupum

Svínasnitzel með gráðaostahjúp
Steikið kjötið í 6-7 mín., snúið af og til, bragðbætið með salti ... Meira

Fleira frá Hagkaupum

Blog.is

Elín Helga Egilsdóttir | 19.3.
Vikan rétt að byrja...
...og þá kemur föstudagur! Sjáið bara hvað vinnufólkið mitt er yndislega fínt!! Þetta beið mín á tölvuskjánum þegar ég mætti ... Meira
Halla Jónsdóttir | 15.3.
Hakkréttur
Þessi réttur dugar fyrir 4-6 fullorðna. Við vorum 4 konur sem borðuðum þetta, fengum okkur vel og það var afgangur ... Meira
Ragnar Freyr Ingvarsson | 14.3.
Alpablogg: Nýr kokkur á Skihotel Speiereck - Heilsteikt nautalund með skógarsveppasósu, kartöflugratíni og fylltum sveppum - fyrir 50 manns
Við erum nýkominn heim eftir nærri því tveggja vikna frí í Austurríki. Raunveruleikinn slær mann eins og blaut tuska í ... Meira

Leit að uppskriftum og greinum

Uppskriftir - vinotek.is

Grískur  Kapama- kjúklingur

Grískur Kapama- kjúklingur

Gríska matargerðin er dæmigerð Miðjarðarhafsmatargerð hvað hráefni varðar. Það leynir sér hins vegar ekki í mörgum uppskriftum að Grikkland er í austurhluta Miðjarðarhafsins. Í Kapama-kjúkling eða "Kota Kapama" koma til dæmis krydd og brögð við sögu sem minna ... Meira

Fleiri uppskriftir

Víndómar - vinotek.is

Montes Chardonnay 2008

Montes Chardonnay 2008

4 stjörnur Þetta hvítvín kemur frá svæðinu Curico í Chile sem teygir sig þvert yfir landið frá Kyrrahafinu austur að Andesfjöllum. Loftslagið er Miðjarðarhafslegt og því ekki skrýtið að þetta sé með helstu vínræktarsvæðum Chile. Meira

Fleiri víndómar

Veitingahúsadómar - vinotek.is

Fiskifélagið

Fiskifélagið

4 stjörnur Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar ... Meira

Fleiri veitingahúsadómar

Sælkerinn - vinotek.is

London heillar

London heillar

Það er að því er virðist endalaust úrval af veitingastöðum í London. Sumir koma og fara. Aðrir eru alltaf jafnvinsælir og sumir meira að segja alltaf jafngóðir. Meira

Fleiri greinar frá sælkeranum