RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Bakaðir lambaskankar í leirpotti

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
Hráefni
» 4 stk. lambaskankar
» 3 stk. hvítlaukur
» 2 stk. skarlottulaukur
» 500 ml rauðvín, bjór, malt eða eitthvað sniðugt til bragðbætingar.
» 300 g grænmetisafskurður
» 1 lítri kjötsoð (vatn og kraftur)
» Grænmeti að eigin val beint úr garðinum - eða frá bónda
» 4 stk. kartöflur
» Blandað rótargrænmeti
» Salt og pipar

Fyrir 4

Það er ekki amalegt að gæða sér á steiktum lambaskönkum og nýju rótargrænmeti þegar haustar á Fróni.

Aðferð

Lambaskankarnir er látir malla við um 100-120°C í um 6-12 tíma, gott er að brúna þá á pönnu áður en þeir eru settir í pottinn.

Gott að léttsteikja áður en skankarnir eru settir í pottinn. Ef þið viljið grænmetið ekki mauksoðið er hægt að setja það út í klukkustund áður en gesti ber að garði. 

Þessi uppskrift er notuð í Gufusteiktur lambaskanki með kartöflumauki

Meðlæti

Gufusteiktur lambaskanki með kartöflumauki

Hráefni
» 2 msk ólífuolía
» 4 lambaskankar (leggir)
» salt og nýmalaður pipar
» 500 ml vatn
» 2 laukar
» 2 hvítlauksgeirar
» 100 g gulrætur smátt skornar
» 50 g rófur
» 50 g sellerí
» 1 grein garðablóðberg og 1stk lárviðarlauf

Fyrir 3 - 4

Lambaskankar eða leggir eru bragðmikill og gómsætur matur ef þeir eru rétt matreiddir. Yfirleitt er best að elda þá lengi við fremur vægan, rakan hita, þ.e. gufusteikja þá eða pottsteikja, og það er einmitt gert hér.

Aðferð

Hitið ofninn í 165°C. Hitið olíuna í víðum, þykkbotna potti sem þolir að fara í ofninn, kryddið skankana vel með pipar og salti og brúnið þá á öllum hliðum. Skerið laukana í sneiðar, setjið þá á milli skankanna og hellið vatninu yfir. Kryddið með lárviðarlaufum, hitið að suðu, leggið lok yfir og setjið í ofninn. Látið malla í 2 1/2 klst. Afhýðið á meðan gulrætur og rófur og skerið sveppina í helminga eða fjórðunga. Setjið þá út í og steikið í 15-20 mínútur í viðbót. Látið malla í 10-15 mínútur. Smakkið soðið, bragðbætið með pipar og salti eftir þörfum og berið kjötið fram með lauknum, grænmetinu og soðinu. Með þessu er líka gott að hafa t.d. ofnbakaðar kartöflur eða kartöflustöppu bragðbætta með t.d. hvítlauk.

Meistaramatur

Fersk hörpuskel og blómkál að hætti Texture restaurant í London Fersk hörpuskel og blómkál að hætti Texture restaurant í London
Hér erum við gestir á einu virtasta nýja veitingahúsi í London Hörpuskel ... Meira

Fleira frá Meistaramat

Frá Hagkaupum

Stórlúðusteik með pestói
Hafið stórlúðuna í fjórum 200 g steikum. Útbúið pestó með því að ... Meira

Fleira frá Hagkaupum

Blog.is

Elín Helga Egilsdóttir | 19.3.
Vikan rétt að byrja...
...og þá kemur föstudagur! Sjáið bara hvað vinnufólkið mitt er yndislega fínt!! Þetta beið mín á tölvuskjánum þegar ég mætti ... Meira
Halla Jónsdóttir | 15.3.
Hakkréttur
Þessi réttur dugar fyrir 4-6 fullorðna. Við vorum 4 konur sem borðuðum þetta, fengum okkur vel og það var afgangur ... Meira
Ragnar Freyr Ingvarsson | 14.3.
Alpablogg: Nýr kokkur á Skihotel Speiereck - Heilsteikt nautalund með skógarsveppasósu, kartöflugratíni og fylltum sveppum - fyrir 50 manns
Við erum nýkominn heim eftir nærri því tveggja vikna frí í Austurríki. Raunveruleikinn slær mann eins og blaut tuska í ... Meira

Leit að uppskriftum og greinum

Uppskriftir - vinotek.is

Grískur  Kapama- kjúklingur

Grískur Kapama- kjúklingur

Gríska matargerðin er dæmigerð Miðjarðarhafsmatargerð hvað hráefni varðar. Það leynir sér hins vegar ekki í mörgum uppskriftum að Grikkland er í austurhluta Miðjarðarhafsins. Í Kapama-kjúkling eða "Kota Kapama" koma til dæmis krydd og brögð við sögu sem minna ... Meira

Fleiri uppskriftir

Víndómar - vinotek.is

Montes Chardonnay 2008

Montes Chardonnay 2008

4 stjörnur Þetta hvítvín kemur frá svæðinu Curico í Chile sem teygir sig þvert yfir landið frá Kyrrahafinu austur að Andesfjöllum. Loftslagið er Miðjarðarhafslegt og því ekki skrýtið að þetta sé með helstu vínræktarsvæðum Chile. Meira

Fleiri víndómar

Veitingahúsadómar - vinotek.is

Fiskifélagið

Fiskifélagið

4 stjörnur Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar ... Meira

Fleiri veitingahúsadómar

Sælkerinn - vinotek.is

London heillar

London heillar

Það er að því er virðist endalaust úrval af veitingastöðum í London. Sumir koma og fara. Aðrir eru alltaf jafnvinsælir og sumir meira að segja alltaf jafngóðir. Meira

Fleiri greinar frá sælkeranum