RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nautasnitsel með nýjum kartöflum

Hráefni
» 1 kg nautasnitsel
» 1 egg
» Smjör/olía
» Salt
» Pipar
» Brauðrasp

Fyrir 4 - 6

Kjötsneiðar í brauðraspi finnst öllum gott og ekki skemmir að nota smá smjör til steikingar!

Aðferð

Berjið kjötsneiðarnar með kjöthamri ef kjötkaupmaðurinn er ekki búinn að því. Þeytið hrátt egg með gaffli. Kryddið eggið með salti og pipar og látið eggjahræruna þekja kjötsneiðarnar. Veltið svo kjötsneiðunum upp úr brauðraspi. Steikið snitselið á pönnu og berið fram með kartöflum og grænmetið að eigin vali.

Þessi uppskrift er notuð í Nautasnitsel með ljúffengu kartöflusallati

Meðlæti

Nautasnitsel með ljúffengu kartöflusallati

Hráefni
» 600 g nautalund
» 400 g kartöflusmælki
» 1 stk. lárpera (avókadó)
» 1 dós grísk jógúrt
» 1/2 búnt graslaukur
» 4 stk. vorlaukur
» 2 rif hvítlaukur
» 100 g pankó brauðraspur
» 1 poki wasabihnetur
» salt og pipar
» olía til steikingar
» smjör til steikingar

Fyrir 4 | skoða myndskeið

Nautasnitsel klikkar ekki og hvað þá kokkurinn Hrefna Sætran og Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri Hússtjórnarskólans sem ætla að sýna okkur hvernig á að elda íslenskt nautakjöt.

Aðferð

Snyrtið nautalundina og skerið hana í sneiðar. Setjið pankó brauðrasp í skál. Merjið wasabi-hneturnar í morteli og blandið saman við brauðraspið. Kryddið með salti og pipar. Hitið pönnu með olíu. Veltið sneiðunum upp úr raspblöndunni og setjið á pönnuna. Steikið í 4 mín á hvorri hlið. Bæti smjörklípu út á pönnuna og slökkvið undir.

Kartöflusallat með smælki
Byrjið á því að sjóða kartöflurnar í saltvatni. Raspið eða pressið hvítlauksrifin og setjið í skál ásamt gríska jógúrtinu. Skrælið lárperuna og skerið í litla bita. Saxið graslaukinn fínt niður og vorlaukinn. Bætið út í jógúrtblönduna. Skerið kartöflurnar í helming og bætið út í. Kryddið með salt og pipar.

Meistaramatur

Hvað er súkkulaði? Hvað er súkkulaði?
Hafliði Ragnarsson fræðir okkur um súkkulaði Meira

Fleira frá Meistaramat

Frá Hagkaupum

Bakaður ferskur ananas með pístasíukremi
Skerið ferskan ananas í 1-1,5 cm þykkar sneiðar (u.þ.b. 100 g hver) ... Meira

Fleira frá Hagkaupum

Blog.is

Elín Helga Egilsdóttir | 19.3.
Vikan rétt að byrja...
...og þá kemur föstudagur! Sjáið bara hvað vinnufólkið mitt er yndislega fínt!! Þetta beið mín á tölvuskjánum þegar ég mætti ... Meira
Halla Jónsdóttir | 15.3.
Hakkréttur
Þessi réttur dugar fyrir 4-6 fullorðna. Við vorum 4 konur sem borðuðum þetta, fengum okkur vel og það var afgangur ... Meira
Ragnar Freyr Ingvarsson | 14.3.
Alpablogg: Nýr kokkur á Skihotel Speiereck - Heilsteikt nautalund með skógarsveppasósu, kartöflugratíni og fylltum sveppum - fyrir 50 manns
Við erum nýkominn heim eftir nærri því tveggja vikna frí í Austurríki. Raunveruleikinn slær mann eins og blaut tuska í ... Meira

Leit að uppskriftum og greinum

Uppskriftir - vinotek.is

Grískur  Kapama- kjúklingur

Grískur Kapama- kjúklingur

Gríska matargerðin er dæmigerð Miðjarðarhafsmatargerð hvað hráefni varðar. Það leynir sér hins vegar ekki í mörgum uppskriftum að Grikkland er í austurhluta Miðjarðarhafsins. Í Kapama-kjúkling eða "Kota Kapama" koma til dæmis krydd og brögð við sögu sem minna ... Meira

Fleiri uppskriftir

Víndómar - vinotek.is

Montes Chardonnay 2008

Montes Chardonnay 2008

4 stjörnur Þetta hvítvín kemur frá svæðinu Curico í Chile sem teygir sig þvert yfir landið frá Kyrrahafinu austur að Andesfjöllum. Loftslagið er Miðjarðarhafslegt og því ekki skrýtið að þetta sé með helstu vínræktarsvæðum Chile. Meira

Fleiri víndómar

Veitingahúsadómar - vinotek.is

Fiskifélagið

Fiskifélagið

4 stjörnur Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar ... Meira

Fleiri veitingahúsadómar

Sælkerinn - vinotek.is

London heillar

London heillar

Það er að því er virðist endalaust úrval af veitingastöðum í London. Sumir koma og fara. Aðrir eru alltaf jafnvinsælir og sumir meira að segja alltaf jafngóðir. Meira

Fleiri greinar frá sælkeranum