Sumarlegt byggsalat með vorgrænmeti og villtum kerfli
- Hráefni
- » 1 dl lífrænt ræktað bygg, t.d. frá Vallanesi á Fljótsdalshéraði
- » 3 dl vatn
- » Vorgrænmeti að vali hvers og eins (smágulrætur, vorlaukur, aspas)
- » Smátt saxað grænmeti að vali hvers og eins (gulrætur, vorlaukur, aspas)
- » Repjuolía
- » Salt
- » Sítrónusafi
Fyrir 2 - 4
Íslenskt bygg er hollt og gott og ekki skemmir að það er oft lífrænt ræktað án allra aukaefnaAðferð
Sjóðið byggið í vatninu í 40 – 50 mínútur. Hellið öllu aukavatni af og setjið smátt saxað grænmetið saman við. Fáið góðan hita í byggið og kryddið með salti og sítrónusafa. Hitið heila grænmetið í öðrum potti, kryddið með salti og gljáið með repjuolíunni. Raðið öllu á disk, og skreytið með villtum íslenskum kerfli.
Þessi uppskrift er notuð í Bragðgóður byggréttur með nýju grænmeti, rækjum og lauk
Meðlæti
Bragðgóður byggréttur með nýju grænmeti, rækjum og lauk
- Hráefni
- » 200 g bankabygg
- » 250 g blandað nýtt grænmeti
- » 1/2 ltr. grænmetiskraftur
- » ½ stk. laukur
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 1 búnt ferskt kóríander
- » blandaðar kryddjurtir
- » 1/2 glas þurrt hvítvín
- » 2 msk jómfrúarólífuolía
- » 20 g smjör
- » salt og hvítur pipar
- » 100 g rækjur
- » 1 dós skyr
Fyrir 2 - 4 | skoða myndskeið
Íslenska byggið er til margra hluta nýtilegt í eldamennskunni. Það er hollt og sérlega gott. Gunnar Karl Gíslason á Dilli sýnir okkur hvernig má slá í gegn með einföldum byggrétti.Aðferð
Leggið bankabyggið í bleyti í 6-8 tíma. Skolið grænmetið og skerið í bita. Saxið lauk smátt, hvítlauk og kóríanderlauf. Hitið olíuna og mýkið laukinn og kóríander í henni. Síið vatnið vel frá bankabygginu og bætið út á pönnuna og ristið ásamt grænmetinu í 3-4 mín. Hellið víni saman við og látið gufa upp. Smakkið til með saltinu. Hellið tveimur ausum af sjóðheitum kraftinum út á pönnuna og látið gufa upp á milli þess sem vökva er bætt í. Þegar byggið hefur kraumað í 10 mín. bætið kryddjurtum saman við og sjóðið áfram í um 5 mínútur. Þegar byggið er soðið, bætið þá smjörklípu út á pönnu og blandið vel saman. Kryddið með ferskum pipar rétt áður en rétturinn er borinn fram og skreytið með ferskum birkilaufum. Látið meðlæti ofan á byggið, má nota það sem er við hendina hverju sinni.Sósan er samsett úr skyri, rjóma, ögn af góðu ediku ásamt salti og pipar.




