RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Ofnsteikt lambalæri

Hráefni
» 1stk. Lambalæri
» Jógúrtsósa
» 2 dósir Hreint Óskajógúrt
» ½ geiri marinn hvítlaukur
» 1 msk sykur
» 1 stk. lime börkur
» ½ stk. lime safi
» ½ búnt saxað kóriander
» 1 tsk salt

Fyrir 6 - 8

Sunnudaga hjá ömmu í gamla daga má kannski endurtaka einu sinni í mánuði - en ekki moðsteikja lambalærið í margar klukkustundir ef þið viljið bleikan vöðva!

Aðferð

Við mælum með til að halda kjötsafa og gæðum í hæsta gæðaflokki að strá yfir lærið salti 10 mín fyrir ofn bökun þannig að allir hlutar lærisins fá hóflega áferð af salti.

Best er að setja læri inn í 180’c ofn í 10-15 mín og lækka niður í 110’c til að kjötið fái væga ofnbökun í 45-60 mín og svo er gott setja kjötið undir grillið í 5 mín. Látið svo kjötið jafna sig í 10 mín við stofuhita fyrir skurð.

Miðlungssteikt er 60’c í kjarna (hita) eftir að kjötið hefur látið hvíla.

Allt kjöt er gott að láta liggja í ólífuolíu með ferskum kryddtegundum. Þannig næst full meyrnun á sama tíma og kjötið fær gott kryddbragð. Meyrnun í ólífuolíu gefur frábæran grunn til að kjötið verði sem best við náttúrulegar aðstæður án salts.

Fyrir steikingu er stráð sjáfarsalti eða öðru góðu salti yfir kjötið til að samræma meyran bragðgóðan vöðvann við hóflegt saltbragð og kryddkeim.

Leggið lærið í marineringu í 1 dl. ólífuolíu, ½ búnt timjan, ½ búnt rósmarin og hvítlauk (kraminn undir hnífsoddi). Látið marinerast yfir nótt í kæliskáp.

Jógúrtsósa hentar vel sem bragðauki.

Gott er að bera fram grillaða kartöflubáta með steikinni.

Meistaramatur

Appelsínugrafinn lambavöðvi Appelsínugrafinn lambavöðvi
Ferskur forréttur sem gott er að eiga þegar gesti ber að garði Meira

Fleira frá Meistaramat

Frá Hagkaupum

Trjónukrabbasúpa
Afhýðið lauk og hvítlauk og saxið niður. Setjið krabbalappirnar í pott og ... Meira

Fleira frá Hagkaupum

Blog.is

Elín Helga Egilsdóttir | 18.3.
Hafrar og gleðin sem þeim fylgir
Án þess að ég ætli að romsa mikið um hamingju, gleði og yndislegheit þessarar korntegundar, sem hún er að sjálfsögðu ... Meira
Halla Jónsdóttir | 15.3.
Hakkréttur
Þessi réttur dugar fyrir 4-6 fullorðna. Við vorum 4 konur sem borðuðum þetta, fengum okkur vel og það var afgangur ... Meira
Ragnar Freyr Ingvarsson | 14.3.
Alpablogg: Nýr kokkur á Skihotel Speiereck - Heilsteikt nautalund með skógarsveppasósu, kartöflugratíni og fylltum sveppum - fyrir 50 manns
Við erum nýkominn heim eftir nærri því tveggja vikna frí í Austurríki. Raunveruleikinn slær mann eins og blaut tuska í ... Meira

Leit að uppskriftum og greinum

Uppskriftir - vinotek.is

Grískur  Kapama- kjúklingur

Grískur Kapama- kjúklingur

Gríska matargerðin er dæmigerð Miðjarðarhafsmatargerð hvað hráefni varðar. Það leynir sér hins vegar ekki í mörgum uppskriftum að Grikkland er í austurhluta Miðjarðarhafsins. Í Kapama-kjúkling eða "Kota Kapama" koma til dæmis krydd og brögð við sögu sem minna ... Meira

Fleiri uppskriftir

Víndómar - vinotek.is

Montes Chardonnay 2008

Montes Chardonnay 2008

4 stjörnur Þetta hvítvín kemur frá svæðinu Curico í Chile sem teygir sig þvert yfir landið frá Kyrrahafinu austur að Andesfjöllum. Loftslagið er Miðjarðarhafslegt og því ekki skrýtið að þetta sé með helstu vínræktarsvæðum Chile. Meira

Fleiri víndómar

Veitingahúsadómar - vinotek.is

Fiskifélagið

Fiskifélagið

4 stjörnur Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar ... Meira

Fleiri veitingahúsadómar

Sælkerinn - vinotek.is

London heillar

London heillar

Það er að því er virðist endalaust úrval af veitingastöðum í London. Sumir koma og fara. Aðrir eru alltaf jafnvinsælir og sumir meira að segja alltaf jafngóðir. Meira

Fleiri greinar frá sælkeranum