Gufusteiktur lambaskanki með kartöflumauki
- Hráefni
- » 2 msk ólífuolía
- » 4 lambaskankar (leggir)
- » salt og nýmalaður pipar
- » 500 ml vatn
- » 2 laukar
- » 2 hvítlauksgeirar
- » 100 g gulrætur smátt skornar
- » 50 g rófur
- » 50 g sellerí
- » 1 grein garðablóðberg og 1stk lárviðarlauf
Fyrir 3 - 4
Lambaskankar eða leggir eru bragðmikill og gómsætur matur ef þeir eru rétt matreiddir. Yfirleitt er best að elda þá lengi við fremur vægan, rakan hita, þ.e. gufusteikja þá eða pottsteikja, og það er einmitt gert hér.Aðferð
Hitið ofninn í 165°C. Hitið olíuna í víðum, þykkbotna potti sem þolir að fara í ofninn, kryddið skankana vel með pipar og salti og brúnið þá á öllum hliðum. Skerið laukana í sneiðar, setjið þá á milli skankanna og hellið vatninu yfir. Kryddið með lárviðarlaufum, hitið að suðu, leggið lok yfir og setjið í ofninn. Látið malla í 2 1/2 klst. Afhýðið á meðan gulrætur og rófur og skerið sveppina í helminga eða fjórðunga. Setjið þá út í og steikið í 15-20 mínútur í viðbót. Látið malla í 10-15 mínútur. Smakkið soðið, bragðbætið með pipar og salti eftir þörfum og berið kjötið fram með lauknum, grænmetinu og soðinu. Með þessu er líka gott að hafa t.d. ofnbakaðar kartöflur eða kartöflustöppu bragðbætta með t.d. hvítlauk.
Þessi uppskrift er notuð í Bakaðir lambaskankar í leirpotti
Meðlæti
Bakaðir lambaskankar í leirpotti
- Hráefni
- » 4 stk. lambaskankar
- » 3 stk. hvítlaukur
- » 2 stk. skarlottulaukur
- » 500 ml rauðvín, bjór, malt eða eitthvað sniðugt til bragðbætingar.
- » 300 g grænmetisafskurður
- » 1 lítri kjötsoð (vatn og kraftur)
- » Grænmeti að eigin val beint úr garðinum - eða frá bónda
- » 4 stk. kartöflur
- » Blandað rótargrænmeti
- » Salt og pipar
Fyrir 4 | skoða myndskeið
Það er ekki amalegt að gæða sér á steiktum lambaskönkum og nýju rótargrænmeti þegar haustar á Fróni.Aðferð
Lambaskankarnir er látir malla við um 100-120°C í um 6-12 tíma, gott er að brúna þá á pönnu áður en þeir eru settir í pottinn.Gott að léttsteikja áður en skankarnir eru settir í pottinn. Ef þið viljið grænmetið ekki mauksoðið er hægt að setja það út í klukkustund áður en gesti ber að garði.




