RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Lambakótilettur með kryddjurta-brauðskel

Hráefni
» 12 lambakótilettur
» 1 egg
» 3 msk mjólk
» 1 bolli þurr brauðmylsna
» nýmalaður pipar
» salt
» 75 g smjör eða smjörlíki

Fyrir 3 - 4

Kótilettur eins og þær voru hjá mömmu og ömmu á sunnudögum hér áður fyrr - velt upp úr raspi og síðan pönnusteiktar í smjörlíki.

Aðferð

Kótiletturnar þerraðar, hluti af fitunni e.t.v. skorinn burt (einkum af rifinu) og barðar létt með buffhamri. Egg og mjólk léttþeytt saman og brauðmylsnan krydduð með pipar og salti ásamt kryddjurtum. Smjörið brætt á stórri, þykkbotna pönnu. Kótelettunum velt upp úr eggjablöndunni og síðan brauðmylsnunni. Brúnaðar á báðum hliðum við góðan hita en síðan er hitinn lækkaður og kótiletturnar steiktar áfram við hægan hita í 8-10 mínútur. Snúið einu sinni. Þá eru þær teknar af pönnunni og raðað á heitt fat. Meira smjör e.t.v. brætt á pönnunni og borið fram með léttsteiktu grænmeti.

Þessi uppskrift er notuð í Snyrtar lambakótilettur með ferskum brögðum

Meðlæti

Snyrtar lambakótilettur með ferskum brögðum

Hráefni
» 1stk. Lambahryggur
» 10g Olía
» 1stk. Hvítlauksrif
» 1grein. Rósmarín
» Salt og pipar
» 40ml Olía
» 1stk. Rauðlaukur
» 1stk. Kúrbítur
» 1/2stk. Eggaldin
» 1stk. Paprika
» 3stk. Tómatur (vel þroskaður)
» 1msk. Tómatmauk
» 1búnt Kóriander saxað
» 250ml Sýrður rjómi
» 30ml Vatn
» 1stk. Lime ( börkur og safi)
» 1msk Hunang
» 1/5 búnt Saxað kóriander

Fyrir 4 - 6 | skoða myndskeið

Lambakótilettur er mjög þekktur íslenskur réttur en þær voru gjarnan teknar með kaldar í útilegu áður en grillmenningin hóf innreið sína. Fólk ætti endilega að prófa þá rétti sem eru sýndir í þessum þætti - bæði hefbundnar kótilettur í raspi og nýstárlegri eldunaraðferð.

Aðferð

Hryggurinn er úrbeinaður. Byrjað á lundunum undir hryggnum. Svo er hryggnum snúið við og skorið meðfram hryggjarsúlunni. Hryggurinn er svo reistur upp á endann og högvinn niður eftir hryggjarsúlunni. Aftari hryggurinn er skorinn af og geymdur til betri dags. Rifinn eru hreinsuð með hníf og snæri. Skorið þvert á fituna og alveg í gegnum sinina.

Saltað og piprað, steikt á pönnu og brúnað á öllum hliðum. Sett í ofnskúffu með olíu, rósmarín og mörðum hvítlauk. Sett inn í ofn á 160 gráður í 10 mín og látið hvíla í 15mín.

Tómat-grænmeti
Allt skorið í jafn stóra teninga. Steikt á pönnu sitt í hvoru lagi í 2mín. Öllu blandað saman og kryddað til.
Sýrð rjómadressing

Öllu blandað saman og smakkað til með salti, pipar og hunangi.

Borið fram með klettasalati.

Meistaramatur

Sætar kartöflur með indversku ívafi Sætar kartöflur með indversku ívafi
Sætar kartölur eru ekki aðeins hollar heldur líka skemmtileg tilbreyting við þessar ... Meira

Fleira frá Meistaramat

Frá Hagkaupum

Smálúðuflak með kryddjurtum
Setjið allt sem talið er upp í kryddolíuuppskriftinni í matvinnsluvél og maukið ... Meira

Fleira frá Hagkaupum

Blog.is

Elín Helga Egilsdóttir | 22.3.
Æðisleg helgi að baki
Ákvað á föstudeginum að aðhafast ekkert um helgina. Njóta þess að vera letihaugur sem, í mínu tilfelli, þýðir heilalaus sófadýrsstemning ... Meira
Ragnar Freyr Ingvarsson | 21.3.
Næstum alveg Franskt þema: Appelsínugljáð andarbringa með Hasselbach kartöflum og Pinot Noir
Í morgun var það öllum ljóst að vorið er á leiðinni! Og það er dásamlegt, maður einhvern veginn finnur það ... Meira
Halla Jónsdóttir | 15.3.
Hakkréttur
Þessi réttur dugar fyrir 4-6 fullorðna. Við vorum 4 konur sem borðuðum þetta, fengum okkur vel og það var afgangur ... Meira

Leit að uppskriftum og greinum

Uppskriftir - vinotek.is

Grískur  Kapama- kjúklingur

Grískur Kapama- kjúklingur

Gríska matargerðin er dæmigerð Miðjarðarhafsmatargerð hvað hráefni varðar. Það leynir sér hins vegar ekki í mörgum uppskriftum að Grikkland er í austurhluta Miðjarðarhafsins. Í Kapama-kjúkling eða "Kota Kapama" koma til dæmis krydd og brögð við sögu sem minna ... Meira

Fleiri uppskriftir

Víndómar - vinotek.is

Luzon Monastrell 2007

Luzon Monastrell 2007

4 stjörnur Hér er þriðja vínið frá suður-spænska framleiðandanum Luzon, sem nýlega kom´á markaðinn, en þegar hefur verið fjallað um Luzom Jumilla og Piquito. Í þessu víni fær Monastrell-þrúgan, sem margir þekkja undir franska nafninu Mourvedre, að njóta sín til ... Meira

Fleiri víndómar

Veitingahúsadómar - vinotek.is

Fiskifélagið

Fiskifélagið

4 stjörnur Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar ... Meira

Fleiri veitingahúsadómar

Sælkerinn - vinotek.is

London heillar

London heillar

Það er að því er virðist endalaust úrval af veitingastöðum í London. Sumir koma og fara. Aðrir eru alltaf jafnvinsælir og sumir meira að segja alltaf jafngóðir. Meira

Fleiri greinar frá sælkeranum