Rice krispies kökur með Snickers

Rice krispies kökur með Snickers-kurli.
Rice krispies kökur með Snickers-kurli. mbl.is/Marta María

Börnin mín eru komin á bökunaraldurinn. Í dag þurfti ég að kaupa mér frið svo ég gæti unnið í friði og til þess að fullkomna stundina þannig að allir fengju að njóta sín. Á meðan ég vann bökuðu þeir. 

Það vildi svo vel til að það var til nóg af súkkulaði á heimilinu, sírópi, smjöri og rice krispies. Og svo var líka til eitt egg og flórsykur og auðvitað matarlitur. 

200 g suðusúkkulaði

100 g smjör

100 g síróp

150 g rice krispies

Setjið smjör og súkkulaði í pott og bræðið. Bætið sírópi við og því næst rice krispiesi. Allt hrært vel saman og sett í möffinsform. 

Krem

1 eggjahvíta

200 g flórsykur

matarlitur eftir smekk

Allt þeytt vel saman í allavega sjö mínútur eða lengur. Þegar það er búið er kremið sett á kökurnar. 

Börnin mín fundu Snickers-kurl inni í skáp og skreyttu kökurnar með því. 

mbl.is/Marta María
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert