Guðdómleg epla- og bláberjabaka

Best er að bera bökuna fram með vanilluís og karamellusósu.
Best er að bera bökuna fram með vanilluís og karamellusósu. Ljósmynd/Eva Laufey Kjaran

Fjölmiðlakonan og matarbloggarinn Eva Laufey Kjaran deildi á dögunum uppskrift að þessari yndislegu epla- og bláberjaböku með lesendum sínum. Hún mælir með því að notað sé heilhveiti í uppskriftina þar sem mylsnan verði grófari og bragðmeiri með því.

Evalaufeykjaran.com

Bakan er einföld í gerð en bæði er hægt að baka hana í ofni eða jafnvel grilla hana á grillinu. Síðan er toppurinn að bera hana fram með vanilluís og karamellusósu.

Bakan er einföld í gerð en bæði er hægt að …
Bakan er einföld í gerð en bæði er hægt að baka hana í ofni eða jafnvel grilla hana á grillinu. Ljósmynd/Eva Laufey Kjaran

Uppskrift

5 græn epli

1 bolli bláber, fersk eða frosin

1 – 1½ tsk. kanill

2 tsk. sykur

1 tsk. vanillusykur

70 g súkkulaði

Mylsna

80 g Kornax heilhveiti

80 g sykur

100 g smjör

50 g kókosmjöl

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Flysjið eplin, fjarlægið kjarna og stilka.
  3. Skerið eplin í litla bita og dreifið eplabitunum í eldfast mót. 
  4. Blandið sykri, vanillusykri og kanil saman við eplin.
  5. Saxið súkkulaði og dreifið yfir eplin. 
  6. Næsta skref er að útbúa deigið sem fer ofan á eplin. Blandið heilhveiti, sykri, smjöri og kókosmjöli saman í skál og blandið saman með höndunum. 
  7. Dreifið deiginu yfir eplin og bakið í ofni við 180°C í 35–40 mínútur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert