Linsubaunapottréttur

Gott er að bera dal fram með lífrænum hrísgrjónum, ofnbökuðu …
Gott er að bera dal fram með lífrænum hrísgrjónum, ofnbökuðu rótargrænmeti og raitu. himneskt.is

Á himneskt.is er mælt með þessum linsubaunapottrétti, sem kallast dal, í haustveðrinu. Linsurnar eru góður próteingjafi úr jurtaríkinu, saðsamar og næringarríkar. Gott er að bera dal fram með lífrænum hrísgrjónum, ofnbökuðu rótargrænmeti og raitu.

Dal

1 meðalstór laukur

2 hvítlauksrif

2 msk. engiferskot

1 ½ msk. lífrænt Madras-karrí

1 tsk. túrmerik

1 msk. kókosolía

1 lítið blómkálshöfuð eða ½ stórt, skorið í munnbita

250 g rauðar linsur (½ poki)

1 dós kókosmjólk

400-500 ml vatn (hægt að nota bara vatn ef vill – þá ca. 800 ml, en kókosmjólkin gefur dásamlega áferð)

1 ½ tsk. sjávarsalt

3-4 tsk. sítrónusafi

Cayenne-pipar eftir smekk

Vænn slurkur af hvítlauksólífuolíu

Skerið niður lauk, hvítlauk og blómkál í bita. Hitið olíu í potti og mýkið laukinn og hvítlaukinn ásamt kryddum í 2-3 mínútur. Þetta er gert til að opna bragðið af kryddunum. Bætið svo blómkálsbitunum út í, því næst linsunum, vökvanum og saltinu. Látið suðuna koma upp og lækkið svo hitann þannig að allt malli í rólegheitum í u.þ.b. 20 mín. – eða þar til blómkálið er orðið mjúkt og linsurnar orðnar að hálfgerðri kássu. Hrærið í af og til og fylgist með að brenni ekki í botninn. Hafið pottinn opinn, en ekki of háan hita. Í lokin, þegar dalið er tilbúið, bætið þá sítrónusafanum, cayenne-pipar og smávegis af hvítlauksolíunni út í. Smakkið dalið, ef ykkur finnst það mega vera bragðmeira bætið við smá salti, sítrónusafa eða hvítlauksólífuolíu.

Sætar kartöflur

1 stór sæt kartafla

1 msk. kókosolía, ef vill

½ dl vatn

smá salt

Afhýðið sætu kartöfluna og skerið í passlega bita. Forhitið ofninn í 180°C. Bakið í 20-30 mín. og hrærið nokkrum sinnum. Það er örlítið misjafnt eftir ofnum og stærð bitanna hversu lengi þær eru að bakast, þær gætu þurft aðeins lengri tíma.

Raita 

1 bolli hrein jógúrt, t.d. jurtajógúrt

1/3 agúrka, skorin í bita eða rifin með rifjárni

1 hvítlauksrif, pressað

 Blandið öllu saman í skál.

Hvítlauksólífuolía

Látið niðursneiddan hvítlauk standa í ólífuolíu á meðan maturinn er eldaður.
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert