Jamie Oliver opnar á Borginni

Jamie Oliver er rokkstjarna í eldhúsinu. Stefnt er á að …
Jamie Oliver er rokkstjarna í eldhúsinu. Stefnt er á að opna Jamie's Italian í apríl eða maí á næsta ári.

Hin fræga og vinsæla veitingahúsakeðja Jamie Oliver sem ber nafnið „Jamie's Italian“ mun verða opnuð á Hótel Borg í apríl/maí 2017 ef allt fer að óskum við framkvæmdir. 

Rekstur veitingastaðarins verður í höndum Finna Karlssonar, sem er oft kenndur við Prikið, og Jóns Hauks Baldvinssonar. Jamie's Italian-staðirnir hafa notið mikilla vinsælda um allan heim og eru í miklum vexti. Nú eru 42 veitingastaðir í Bretlandi og um 25 aðrir víðsvegar um heiminn. Hver og einn staður hefur sitt eigið auðkenni og eigin hönnunarstíl og mun Jamie's ́Italian á Íslandi heiðra Hótel Borg, eitt elsta og virtasta hús borgarinnar í sinni nálgun.

„Ég er virkilega spenntur að koma með Jamie´s Italian til Íslands,“ segir Jamie Oliver stjörnukokkur.

„Reykjavík er svo falleg borg með ríka arfleifð, frábæra matarmenning þar sem er alvöru ástríða fyrir séríslenskum hráefnum, sem hentar okkur fullkomlega. Við höfum fengið það einstaka tækifæri að opna á hinu virðulega Hótel Borg sem skipar svo stóran sess í menningu Reykjavíkur og það er okkur mikill heiður. Þegar við opnum dyrnar, þá munum við bera fram einfaldan og hagkvæman ítalskan mat fyrir alla fjölskylduna sem er gerð úr bestu mögulegum hráefnum sem við komumst í. Ég get ekki beðið eftir að opna á Íslandi,“ segir Jamie í fréttatilkynningu, en hann hefur heimsótt Reykjavík nokkrum sinnum og lofað landið á samfélagsmiðlum. 

Jamie´s Italian byrjaði sem samstarfsverkefni á milli Jamie Oliver og lærimeistara hans, Gennero Contaldo. Sú hugmynd var sköpuð í kringum „Italian table“ – sem er einfaldur matur sem öll fjölskyldan getur notið saman. Jamie´s Italian Reykjavik mun bera fram klassíska og einfalda ítalska rétti og verður fjölskyldustaður. 

Jamie Oliver er einn vinsælasti kokkur heims.
Jamie Oliver er einn vinsælasti kokkur heims.

Jón Haukur, einn af forsvarsmönnum Jamie's Italian á Íslandi, er nýkominn frá London þar sem skrifað var undir samning um opnun staðarins.

Jón Haukur segir að ímynd Íslands sem matvælalands með allri sinni fegurð og hreinleika í bland við mikla grósku á veitingamarkaðnum á vel við ímynd Jamie Oliver sem er mikill talsmaður sjálfbærrar matvælaframleiðslu sem og upprunavottunar afurða sem hann gerir gríðarlegar miklar kröfur til og er engu hliðrað til í þeim efnum.

Hótel Borg er eitt glæsilegasta hús miðborgarinnar og féll vel …
Hótel Borg er eitt glæsilegasta hús miðborgarinnar og féll vel að smekk stjörnukokksins. Árni Sæberg
Jamie er vinsæll sjónvarpskokkur, matreiðslubókahöfundur, veitingahúsaeiganda og baráttumaður fyrir betri …
Jamie er vinsæll sjónvarpskokkur, matreiðslubókahöfundur, veitingahúsaeiganda og baráttumaður fyrir betri næringu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert