Leynda perlan handan heiðarinnar

Áslaug Snorradóttir

Á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands er litið á matinn sem hluta af fræðslu og meðferð gestanna en hver sem er getur komið við og keypt sér hádegisverð. Áhersla er lögð á hreint fæði og að elda allt frá grunni á staðnum. Mikið er lagt upp úr því að hafa matinn heilsusamlegan, næringarríkan og bragðgóðan. Sérstök áhersla er lögð á grófmeti úr jurtaríkinu eins og til dæmis baunir, hýðishrísgrjón, ýmiss konar heil korn og svo auðvitað grænmeti og ávexti. Stefna heilsuhælisins er að hafa sem minnst af unnum matvælum og er allur matur eldaður frá grunni á staðnum.

Matsalurinn er ekki aðeins opinn fyrir dvalargesti heldur er opið fyrir gesti og gangandi að kaupa sér hádegisverð alla daga vikunnar. Hægt er að borða á staðnum eða taka með.

Spírandi kartöflusalat, fullt af orku og næringu.
Spírandi kartöflusalat, fullt af orku og næringu. Áslaug Snorradóttir

Fallegur matur í kroppinn

„Það sem hefur breyst hér á síðustu árum er að það er búið að færa meiri þekkingu inn í samsetningu matarins. Halldór Steinsson yfirmatreiðslumaður og starfsfólkið í eldhúsinu eru orðin meðvitaðri um hvað þau setja ofan í sig og hvað ekki,“ segir Ingi Þór Jónsson, markaðsstjóri Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands. „Maturinn er orðinn svo fallegur og bragðgóður og mikið úrval af fjölbreyttri ofurfæðu og flottu hráefni. En þessi vitneskja kemur ekki á einum degi, eða upp úr einni bók. Það eru mikil fræði á bak við fæðuna.“

Áslaug Snorradóttir

Á Heilsustofnun er fiskur framreiddur tvisvar í viku en alla aðra daga er úrval grænmetis- og baunarétta ásamt súpu og hlaðborði af salati, ávöxtum og sýrðu grænmeti. Ekkert kjöt og afskaplega lítið er um mjólkurvörur. „Það er búið að taka mjólkurvörur mikið út úr matnum hérna, enda geta þær verið bólgumyndandi. Hér áður var mikið um rétti í rjómasósu eða þvíumlíkt. En eftir að það var tekið út komu margir til okkar sem tóku eftir því að ýmsir kvillar sem höfðu hrjáð viðkomandi, eins og útbrot og annað, höfðu horfið eftir að þeir höfðu neytt fæðunnar sem hér er í nokkra daga. Það gerir þetta hreina fæði,“ segir Ingi Þór.

Heilnæmt og hollt á Heilsustofnuninni í Hveragerði.
Heilnæmt og hollt á Heilsustofnuninni í Hveragerði. Áslaug Snorradóttir

Maturinn á Heilsustofnun hefur vakið mikla lukku og segir Ingi Þór að margir leggi leið sína úr höfuðborginni austur til að sækja sér fiskibollur sem eru gerðar í eldhúsinu á staðnum og hægt er að kaupa til að taka með og elda heima. „Þær hafa notið mikilla vinsælda, fiskibollurnar. Draumurinn okkar er síðan að vera með okkar eigin vörulínu, beint frá býli. Eitthvað sem við framleiðum á staðnum. Það kemur að því,“ segir Ingi Þór að lokum.

Litríksalat af krossblómaætt. Blómkál og spergilkál á gúrkusneiðum með radísum.
Litríksalat af krossblómaætt. Blómkál og spergilkál á gúrkusneiðum með radísum. Áslaug Snorradóttir
Litrík listaverk sem fara vel með líkama og sál.
Litrík listaverk sem fara vel með líkama og sál. Áslaug Snorradóttir
Heilsustofnuninn ræktar mikið grænmeti og krydd.
Heilsustofnuninn ræktar mikið grænmeti og krydd. Áslaug Snorradóttir
Starfsfólkið á staðnum iðar af hollustu.
Starfsfólkið á staðnum iðar af hollustu. Áslaug Snorradóttir
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert