Innbökuð hnetusteik mæðgnanna

Það verða án efa margir með kjötlaus jól í fyrsta …
Það verða án efa margir með kjötlaus jól í fyrsta skipti í ár. maedgurnar.is

„Nú eru margir farnir að velta jólamatseðlinum fyrir sér. Okkur mæðgum finnst nauðsynlegt að breyta reglulega til og höfum prófað alls kyns góða grænmetisrétti yfir hátíðirnar. Jólahefðirnar okkar eru kannski aðeins öðruvísi en margir eiga að venjast, því við höfum verið grænkerar jafnlengi og við höfum verið mæðgur. Þó eru fleiri og fleiri farnir að gera pláss fyrir grænmetisrétti á jólunum, eins og reyndar aðra daga ársins," segja mæðgurnar Solla og Hildur í nýjasta pistli sínum.

„Okkur finnst gott að eiga fjölbreyttar uppskriftir að hátíðlegum réttum uppi í erminni. Í fyrra vorum við með æðislegt grillað eggaldin með kryddjurtapestó í aðalrétt, ásamt hátíðlegu meðlæti, sem sló heldur betur í gegn. Árið á undan höfðum við útbúið ljúffenga hnetuturna með rótarmús og gljáðum pekanhnetum. Í ár langar okkur að prófa innbakaða hnetusteik. (Við erum reyndar búnar að prófa og hún er mjög góð!)

Hnetusteik passar einstaklega vel með hefðbundnu hátíðarmeðlæti. Heimalagað rauðkál er æði (þið getið fundið rauðkálsuppskriftina okkar neðarlega í þessu bloggi hér) og sveppasósa eða kasjúmayo passa ljómandi vel með steikinni. Svo er örugglega gott að hafa kartöflur og gott salat með.

Úr þessari uppskrift má hvort heldur gera innbakaða hnetusteik eða hefðbundna (ekki innbakaða), eftir smekk. Ef þið ætlið að gera innbakaða steik dugir uppskriftin í tvær steikur. En ef þið viljið gera hefðbundna hnetusteik (án innpökkunar) passar uppskriftin í eina steik. Við gefum uppskrift að heimalöguðu speltdeigi til að vefja utan um, en svo er líka hægt að finna tilbúið gróft tertudeig í rúllum úti í búð. Passið bara að nota deig sem hefur frekar hátt fituinnihald (ekki t.d. pizzudeig) svo það verði ekki of þurrt.“

Hjartaútskurðurinn kemur fallega út í deiginu.
Hjartaútskurðurinn kemur fallega út í deiginu. maedgurnar.is

Hnetusteik

(tvær innbakaðar steikur eða ein allsber..)

100 g sellerírót, skorin í teninga og bökuð í ofni við 200°C í 15 mín.
100 g sæt kartafla, skorin í teninga og bökuð í ofni við 200°C í 15 mín.
125 g rauðar linsur (ósoðnar)
375 ml vatn
2 hvítlauksrif, skorin í bita
1 rauður chili skorinn í tvennt
1 tsk. currypaste eða madras-karríduft
1 tsk. grænmetiskraftur
150 g kasjúhnetur, þurrristaðar og malaðar
150 g heslihnetur, þurrristaðar og malaðar
1 msk. kókosolía
½ rauðlaukur, smátt saxaður
2 hvítlauksrif, pressuð
1 gulrót, gróft rifin
5 sólþurrkaðir tómatar
1-2 msk. mangó chutney 
½ tsk. grænmetiskraftur
1 tsk. timian
¼ tsk. salvia
¼ - ½ tsk. sjávarsalt
¼ tsk. cayenne-pipar

Aðferðin

  1. Byrjið á því að baka sellerírót og sæta kartöflubita í ofni við 200°C í 15 mín.
  2. Skolið svo rauðu linsurnar og setjið í pott með vatni, hvítlauk, chili, curry paste  og grænmetiskrafti. Látið suðuna koma upp og sjóðið í um 20-25 mín. eða þar til linsurnar eru soðnar.
  3. Á meðan linsurnar eru að sjóða ristið hneturnar í ofni 170°C í 6-8 mín. eða þar til tilbúnar. Best að rista 1 teg. í einu. Kælið og malið síðan í matvinnsluvél.
  4. Hitið olíu á pönnu og mýkið lauk + hvítlauk í smá stund, bætið rifnum gulrótum út á og hrærið í smá stund. Látið þetta malla í svona 5-10 mín.
  5. Setjið síðan allt í hrærivél, þ.e.a.s. soðnu linsurnar, bakaða grænmetið (sellerírótina og sætu kartöflurnar), hneturnar, laukinn og gulræturnar af pönnunni, sólþurrkuðu tómatana, mango chutney, grænmetiskraft og kryddið og hrærið saman. Okkur finnst best að hræra þetta í um 1 mínútu svo þetta verði ekki of maukað.
  6. Nú er hnetusteikardeigið tilbúið. Þetta má geyma í kæli á meðan speltdeigið er útbúið.
  7. En ef þið ætlið ekki að pakka steikinni inn í deig má baka hana strax í ofni. Þá er gott að setja bökunarpappír í brauðform, strá sesamfræjum í botninn og setja svo deigið í formið, baka við 200°C í 35 - 40 mínútur. En til að hún verði örlítið stökk á hliðunum er gott að taka hana úr brauðforminu eftir u.þ.b 25 mín. og baka áfram án formsins í síðustu 10 mínúturnar.
  8. EÐA fyrir einstaklingsskammta: smyrjið lítil „soufflé“-form með góðri olíu, stráið sesamfræjum inn í formin og setjið deigið í og bakið við 200°C í 25-30 mín.

Speltdeig til innbökunar

fyrir 2 innbakaðar steikur

250 g fínmalað spelt
2 tsk. vínsteinslyftiduft
½ tsk. sjávarsalt
1 dl kókosolía
1 dl heitt vatn

  1. Byrjið á að setja þurrefni í skál, blandið svo olíu út í og að lokum vatni. (Það er líka hægt að auka olíuna og minnka vatnið á móti ef vill, til að gera deigið enn meira „djúsí“).
  2. Fínt er að skipta deiginu í 2 kúlur og kæla í klst. áður en því er rúllað út. Þar sem deigið er svolítið klístrað er gott að leggja það milli tveggja bökunarpappírsarka og fletja það þannig út (svo festist ekki við kökukeflið). 
  3. Þegar deigið hefur verið flatt út, setjið þá 3-4 cm lag af hnetusteik ofan á og lokið deiginu. Við földum samskeytin með þvi að taka smá bút af deiginu og skera út deighjörtu og raða yfir samskeytin.
  4. Bakið í miðjum ofni við 170°C í 25 mín eða þar til deigið er orðið fallega gullinbrúnt á litinn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert