Ekki tala um veðrið í jólaboðunum

Já.. það er nú blessuð blíðan. Eða þú veist svona …
Já.. það er nú blessuð blíðan. Eða þú veist svona alveg ágætt veður ... eða...

Albert Eiríksson matarbloggari og séntilmaður en mjög fróður um borðsiði og hvernig beri að haga sér á mannamótum. „Gaman er að segja frá því að borðsiðafærslurnar hafa vakið mikla athygli og nú fer ég um bæinn og held fyrirlestra um borðsiði,“ segir Albert en hann sett sér það markmið í upphafi árs að setja inn borðsiðafærslu vikulega allt þetta ár. Hér má sjá fleiri færslur um borðsiði.

„Þagnir í boðum geta verið óþægilegar og hreint og beint vandræðalegar. Það getur verið vandasamt að brjóta upp á umræðuefnum. Flest þekkjum við að grípa til þess að tala um veðrið.

Hvort sem við notumst við grín-ísbrjótinn eða einhvern annan verðum við að passa að vera einlæg í því í samræðum við fólk, hvort sem það er fólk sem við þekkjum fyrir eða ókunnugt. Ekki tala bara um eitthvað þegar kemur þögn…

„Ætli maður sé ekki búinn að heyra það frá blautu …
„Ætli maður sé ekki búinn að heyra það frá blautu barnsbeini að troða ekki of miklu upp í sig og alls ekki tala með fullan munninn… Þetta fer alveg að koma hjá mér ,“ segir Albert.

Öllum finnst gaman að tala um börnin sín, áhugamálin, jafnvel starfið, hvar það er alið upp, félaga, jafnvel atvik úr æsku. Hvað starfar þú? getur verið góður ísbrjótur ef maður þekkir fólk lítið. Það sem er fram undan, eins og sumarfrí, jólahefðir o.s.frv. Betra er að forðast að snúa talinu alltaf að sjálfum sér, en eiga þó sögur að grípa í, sem gera grín að manni sjálfum. Það getur verið í lagi að tala um veðrið, t.d. ef það er óvenjulegt, eins og núna.

Í veislum erum við stundum með ísbrjóta-leik sem er þannig að fólk dregur miða með orði og á að koma orðinu að nokkrum sinnum meðan á borðhaldinu stendur. Þetta getur auðvitað reynt á. Einnig þarf að hlusta vel hvað aðrir gestir segja því í lokin kemur í ljós hvaða orð fólk dró og kom að.

Í giftingarveislunni okkar í sumar var gestum uppálagt að gefa sig á tal við fjóra sem þeir höfðu ekki spjallað við áður. Enn þann dag í dag erum við að heyra af fólki sem er þakklátt fyrir þennan ísbrjótaleik. Veislustjórinn bætti svo um betur og hvatti fólk sem hafði sofið saman til að gefa high five. Margir tóku grínið á þetta og fóru offari í five-inu. 

Nú til dags brjótum við helst ekki ísinn með því að tala um veðrið – eftir vandræðalegar þagnir er það allt of áberandi og fólk í kringum okkur hugsar sitt… nema auðvitað ef veðurfræðingur er í boðinu!“

Albert er annálaður fyrir kurteisa framkomu. Því er þjóðráð að …
Albert er annálaður fyrir kurteisa framkomu. Því er þjóðráð að leggja heilræði hans á minnið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert