Gourmetbox á góðu gengi

Grillboxið er án efa draumur margra.
Grillboxið er án efa draumur margra.

Á heimasíðunni Craejoy.com er að finna alls konar kassa og box. Ekki tóma pappakassa heldur troðfulla kassa af hvers konar varningi. Í stuttu máli kaupir fólk áskrift að vöruflokki sem heillar og fær sendan heim kassa eða box troðfullt af varningi. Þannig má t.d. finna á síðunni prjónavörur, íþróttavörur, mat, heimilisvörur og hvað eina sem fólki dettur í huga að koma fyrir í einni sendingu.

Það er sérstaklega áhugavert fyrir Íslendinga að skoða síður sem þessa núna þegar krónan er svo gott sem á sterum. Gengið er einstaklega gott sem stendur.

Eins er þetta góð leið til að kynnast nýjum vörum og prófa eitthvað nýtt. Það er aldrei að vita nema í einu heimsendu boxi uppgötvist ný og spennandi vara sem okkur hefði aldrei dottið í hug að festa kaup á sjálf. Gourmetboxinn eru sérlega girnileg en það er hægt að velja um veganbox, mexíkósktbox, pizzabox, kryddbox og margt fleira. Sjón er sögu ríkari.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert