Jólakokteill Katy Perry

Katy Perry er mikið jólabarn. Hún sat fyrir hjá tískurisanum …
Katy Perry er mikið jólabarn. Hún sat fyrir hjá tískurisanum HM á síðasta ári og auglýsti jólalínuna þeirra. HM

Katy Perry lætur sig dreyma hvít jól samkvæmt Independent, en hún eyðir yfirleitt jólunum á hvítri strönd með fjölskyldunni. „Við förum oftast í frí eitthvað saman fjölskyldan og eyðum mestum tíma í að borða og drekka mikið,“ segir Katy í viðtali við fyrrnefndan miðil. „Fjölskyldan byrjar alltaf jóladag á góðu glasi af Bellini, eldar svo saman og spilar borðspil um kvöldið,“ en Bellini er ítalskur kampavínskokteill.

Langi þig að fá smá Katy Perry stemmingu í jólin þín er hér einföld uppskrift frá Jamie Oliver að Bellini kokteilnum vinsæla. Viljir þú heldur nota ferskar ferskjur er aðalmálið að þær séu sætar og vel þroskaðar. Sjá uppskirft hér.

Bellini

200g dós af niðursoðnum ferskjum
1 flaska af kampavín eða freyðivín
Fersk ferskja til skreytingar

Setjið innihald dósarinnar í matvinnsluvél og útbúið puré.
Deilið maukinu í glös - sirka 1-2 msk í hvert glas.
Fyllið upp með kampavíni eða freyðivíni.
Skreytið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert