Tartalettur fyrir afgangana

Tartalettur að hætti Sigurlaugar Jónasdóttur.
Tartalettur að hætti Sigurlaugar Jónasdóttur. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Tartalettuform er ómissandi að eiga á jólum. Hægt er að möndla ljúffenga rétti úr afgöngum af hamborgarhrygg, hangikjöti, rjúpum og ýmsu fleiru með því að skella í tartalettur. Um að gera að láta hugmyndaflugið og hæfileikana til að gúggla uppskriftir ráða för.

Til dæmis er mjög gott að hreinlega brytja kjötið út í sósuna og setja í tartatalettuformið. Það þarf ekki að vera flókið. Ekki er verra að setja t.d. sætar kartöflur og gular baunir með sé kjötið kalkúnn. Hér á eftir fylgja tvær góðar uppskriftir.

Tartalettur ömmu Sillu eru með Ora-fiskibollum.
Tartalettur ömmu Sillu eru með Ora-fiskibollum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Tartalettur ömmu Sillu

„Úff, það er með hálfum huga sem ég gef lesendum þessa uppskrift, en ætli flestar fjölskyldur eigi ekki einhverjar svona skrítnar matarhefðir sem tengjast nostalgíu og við viljum ekki fyrir nokkurn mun sleppa,“ segir Sigurlaug Jónasdóttir en hún deildi þessari skemmtilegu uppskirft með lesendum Morgunblaðsins fyrir jólin fyrir nokkrum árum. Uppskriftin stendur enn fyllilega fyrir sínu.

1 dós ORA-fiskibollur
tómatsósa nautakraftur
rækjur
hveiti og smjör fyrir jafninginn
tartalettuform

Byrjið á því að baka upp sósu með smjöri og hveiti og safanum frá fiskibollunum ásamt vatni. Bætið tómatsósu út í jafninginn sem og nautakrafti. Þegar jafningurinn er orðinn þokkalega þykkur og bragðgóður er að bæta út í smátt söxuðum fiskibollum úr dós (ORA að sjálfsögðu), láta malla vel og bæta því næst rækjum út í.
Þá er að hita tartaletturnar (frá Bernhöftsbakaríi), það er best að snúa þeim á hvolf, þá hitna þær betur.
Svo er bara að draga fram fallegan sparidisk (það eru nú jólin), raða tartalettunum á diskinn, setja sjóðheitan jafninginn ofan í þær og bera strax fram. Það er best að drekka appelsín og maltöl með þessu. Nú og þeir sem treysta sér ekki í þetta geta bara sett afganginn af jólamatnum út í tartaletturnar sínar, sem er alltaf gott.

Tartalettur með hamborgarhrygg

Hér er svo uppskrift af hamborgarhrygg í tartalettum og hamborgarhryggssamloka úr þættinum Korter í kvöldmat.

Fyrsta skrefið er að skera sæt­ar kart­öfl­ur í litla bita og steikja á pönnu með nóg af olíu. Á meðan þær malla er hvít­lauk­ur saxaður gróft, svepp­irn­ir skorn­ir niður og öllu bætt á pönn­una, kryddað með salti og pip­ar og hrært vel sam­an.

Tartalett­urn­ar eru sett­ar inn í 180° heit­an ofn og um leið og þær eru komn­ar inn er slökkt á ofn­in­um, þetta er fyrst og fremst gert til að hita tartalett­urn­ar.

Pela af rjóma er bætt á pönn­una með kart­öfl­un­um og það látið malla. Ef púrt­vín eða sérrí finnst á heim­il­inu er ekki síðra að hella ein­um 10 drop­um út í til að bragðbæta.

Kjötið er skorið í grófa bita og þegar rjóm­inn er far­inn að þykkna tals­vert er því bætt á pönn­una og öllu blandað vel sam­an. Tartalett­urn­ar eru tekn­ar úr ofn­in­um og fyllt­ar með góðgæt­inu af pönn­unni. Hér er gott að hafa vel af vökv­an­um af pönn­unni með til að þær verði eins „djúsí“ og þær geta mögu­lega orðið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert