Albert gerir upp árið í uppskriftum - þessi bomba er númer 1

Albert er fullur af hugmyndum og eldmóð fyrir næsta ár.
Albert er fullur af hugmyndum og eldmóð fyrir næsta ár. Eggert Jóhannesson

„Við áramót er ágætt að horfa um öxl og skoða m.a. mest skoðuðu uppskrifirnar á árinu. Einnig tók ég saman tíu vinsælustu veitingahúsin/sælkeraverslarnirnar og tíu mest skoðuðu borðsiðafærslurnar,“ segir Albert Eiríksson á Alberteldar.com. Albert er í miklu uppáhaldi hjá Matarvefnum en hann er einnvinsælasti matarbloggari landsins og dásamlegur borðsiðafræðingur.

„Gleðilegt nýtt matarár, takk fyrir samfylgdina á árinu, deilingarnar og lækin. Hér er topp tíu listinn yfir þær uppskriftir sem mest voru skoðaðar á árinu 2016.“

Frænka Alberts kom með Draumatertuna í fjölskylduboð og þá var …
Frænka Alberts kom með Draumatertuna í fjölskylduboð og þá var ekki aftur snúið. albertieldhusinu.com
  1. Draumaterta
  2. Rabarbarapæ Alberts
  3. Peruterta, þessi gamla góða
  4. Súrdeig frá grunni
  5. Brauðsúpa, rúgbrauðssúpa
  6. Skyrterta
  7. Raspterta
  8. Kaldur brauðréttur
  9. Hægeldaður lambahryggur
  10. Jólalegt rauðrófu- og eplasalat

„Svo má nú bæta því við að færslan með punktunum um undirbúning og skipulag á stórum veislum komst á topp fimm en þar sem þetta er ekki uppskriftarfærsla set ég hana hér

Í ellefta og tólfta sæti voru:

Annað sem gaman er að nefna að slegið var met í fjölda gesta á einum degi þegar rúmlega 25þúsund heimsóknir voru fyrr í haust.“

Matarvefurinn þakkar Alberti fyrir girnilegt ár og hlakkar til að fylgjast með eldhúsafrekum hans á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert