Flippaðir nýárskokteilar

Draumur í dós er súkkulaðibomba með appelsínukeim.
Draumur í dós er súkkulaðibomba með appelsínukeim.

Fjöldi nýársfagnaða er í kvöld en þá er gaman að bjóða uppá smart kokteil í fordrykk. Katla Valdimarsdóttir kokteilsérfræðingur á Kofann hristi saman nokkrar ferskar hugmyndir sem verða hluti af kokteilseðli Kofans í kvöld.

Draumur í dós

1,5cl Finlandia Vodka
3cl Kahlua
3cl Millwood (Baileys virkar líka)
1,5cl Cointreau (Triple Sec virkar líka)
2cl Súkkulaðissýrop
9cl Mjólk

Hrist saman og stráð saman súkkulaðisspænum​

Bland í poka er kokteill með sælgæti.
Bland í poka er kokteill með sælgæti.

Bland í poka

3 cl Bacardi Mango
1,5cl Lychee líkjör
1,5cl Sítrónusafi

Toppað með Sprite og sælgæti. 

Karamellupoppkornskokteill er hressandi nýjung.
Karamellupoppkornskokteill er hressandi nýjung.

Caramel popcorn

3cl Finlandia Vodka
3cl Candyman líkjör
1,5cl Millwood (Baileys virkar líka)
9cl poppkornsvatn (poppkorn látið liggja í vatni og vatninu helt af)
12cl Mjólk

Hrist saman og látið inn í lokað djúsbox með röri ofaní látið ofaní poppcornbox og fyllt upp með poppkorni. Passa bara að poppkornið og kokteilinn er aðskilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert