Matarklám í hæstu hæðum

Fólk er að tryllast yfir stórskemmtilegum og oft undarlegum myndböndum …
Fólk er að tryllast yfir stórskemmtilegum og oft undarlegum myndböndum á Foodie.tunes. Skjáskot af Instagram

Foodie.tunes er bráðskemmtileg rás á Instagram þar sem flestallir matarunnendur geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Síðan safnar saman skemmtilegum myndböndum af girnilegum og óvenjulegum uppskriftum og matartengdum tilraunum. Myndbandið hér að neðan sýnir fljótlega leið til að gera borgara úr beikoni, kjöti og avókadó í stað brauðs. Myndbandið hefur flogið um samfélagsmiðla og fólk hreinlega elskar þetta stutta en dramatíska myndskeið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert