Myndir af Subway-samlokum vekja athygli á Facebook

Einar birti þessa myndir á facebook-síðu sinni í kvöld.
Einar birti þessa myndir á facebook-síðu sinni í kvöld. Skjáskot af facebook

Einar Örn Einarsson leikari og flugþjónn birti á facebook síðu sinni í kvöld mynd af tveimur Subway-samlokum af gerðinni BLT. Athygli vekur að sú sem er keypt hérlendis var bæði mun dýrari og minni, það er að segja með mun minna áleggi. 

Einar Örn er líklega ein þekktasta barnastjarna landsins en hann …
Einar Örn er líklega ein þekktasta barnastjarna landsins en hann lék Manna litla ansi eftirminnilega í Nonna og Manna.

Hér eru 2 Subway bátar, báðir B.L.T, annar keyptur í Reykjavík og hinn í New York. Þið megið giska hvor var keyptur hvar og hvor var ódýrari," segir Einar í færslu sinni. Einar segist ekkert vera æstur yfir þessu heldur sé þetta bara vinsamleg ábending til Subway á Íslandi. „Maður er bara að leita eftir samræmi," segir Einar og vísar í að Subway sé keðja sem gefi sig út fyrir að bjóða upp á fastmótaðan matseðil með sömu vöru um allan heim. 

Íslenska samlokan er hálf ræfilsleg.
Íslenska samlokan er hálf ræfilsleg.
Subway-samlokan keypt í New York er mun meira djúsí en …
Subway-samlokan keypt í New York er mun meira djúsí en þær eru báðar af gerðinni BLT.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert