Guðdómlegt eldhús og girnileg súpa

Guðbjörg Finnsdóttir er í hörkuformi.
Guðbjörg Finnsdóttir er í hörkuformi. Árni Sæberg

Guðbjörg Finnsdóttir er einn öflugasti líkamsræktarkennari landsins. Hún íþróttakennari að mennt og á og rekur líkamsræktarstöðina G fit í Garðabæ þar sem hún býr og galdrar gjarnan fram guðdómlega holla rétti í einstaklega fallegu eldhúsi.

„Ég stofnaði G fit heilsurækt og þar kenni ég bæði lífsstílsnámskeið sem er fjölbreytt þjálfun sem hver og einn nær að sníða eftir sínum þörfum og hins vegar vellíðunartímar þar sem má segja að grunnurinn sé djúpvöðvaæfingar, æfingar sem sjúkraþjálfarar mæla með en búið að poppa upp með ljúfri tónlist,“ segir Guðbjörg, en margir þekkja hana frá Hreyfingu þar sem hún kenndi við góðan orðstír um árabil. „Ég kenni ansi marga tíma á viku, hætti að telja þegar þeir eru komnir yfir 20, en á meðan ég hef gaman að grúska og liggja yfir æfingum, finna góða tónlist og sinna tímunum mínum vel held ég ótrauð áfram. Mætingin í G fit er frábær og það er eins gott að ég haldi þeim vel við efnið.“

Guðbjörg undirbýr hollustu morgundagsins.
Guðbjörg undirbýr hollustu morgundagsins. Árni Sæberg

Spurð um ráðleggingar til að borða heilsusamlegar á Guðbjörg nokkur skotheld ráð. „Ef þú þarft að bæta mataræði þitt mæli ég með að þú bætir við hollum venjum smátt og smátt, t.d. sendi ég á námskeiðunum mínum mikið af góðum og auðveldum uppskriftum sem ég er búin að elda og nota. Ég hvet fólkið mitt til að prófa eina nýja á viku, það safnar með því móti uppáhalds hollum réttum sínum. Allt sem fólk venur sig á verður einfalt, það er einfalt að undirbúa græna drykkinn á kvöldin og hafa hann kláran um morguninn.“

Ís með dýfu frekar en skyndibiti

Guðbjörg er í hrikalega góðu formi en lætur hún þá aldrei neitt eftir sér? „Ég er sælkeri og held að allir sem hreyfa sig mikið finni þörf til að fá sér stundum sætt. Ís í brauðformi með dýfu klikkar aldrei en skyndibitamatur heillar mig engan veginn. Þeim sem eru heilsumegin finnst heilsusamlegur matur bestur.“ Hollustan er því í fyrirrúmi og Guðbjörg elskar að grúska í eldhúsinu og prufukeyra nýjar uppskriftir. „Ég á mikið af hollustu-uppskriftabókum og finnst gaman að skoða þær og fá hugmyndir þótt ég fari sjaldnast nákvæmlega eftir þeim,“ segir kroppurinn knái, en hún heldur mest upp á bækur frá Sollu á Gló enda er hún sannkölluð rokkstjarna í hollmeti.

Guðdómlegt eldhús frá 1985

„Ég sé um að elda matinn á heimilinu en stundum þegar ég er að vinna á matartíma er heimilisfólkið búið að fá skýr fyrirmæli um hvað á að gera og stendur sig vel í því,“ segir Guðbjörg, en eldhúsið er er einn af uppáhaldsstöðum hennar á heimilinu.

„Eldhúsið er í uppáhaldi hjá mér, mér finnst æðislegt að nota bestu græjurnar við eldamennskuna og fer sjaldan í háttinn nema það sé hreint og fínt í eldhúsinu. Eldhúsið er nánast upprunalegt frá 1985 enda hannað af miklu smekkfólki sem bjó hér áður en við fluttum hér inn 2010,“ segir Guðbjörg og skellir í holla og góða vetrarsúpu sem hún mælir með fyrir þá sem vilja næringarríkan og bragðgóðan kvöldverð sem virkar einnig vel í hádeginu daginn eftir.

Girnileg grænmetissúpa með rauðum linsubaunum.
Girnileg grænmetissúpa með rauðum linsubaunum. Árni Sæberg

Girnileg grænmetissúpa Guðbjargar

2 dl rauðar linsubaunir (leggja í bleyti í 2 klst. og skola vel)
1½ 1 vatn 1-2 tsk. kókosolía eða önnur góð olía
1 rauðlaukur
3 hvítlauksgeirar
1 blaðlaukur
1 rautt chilli
1 stór sæt kartafla
2 sellerýstilkar
1 glerkrukka tómatgrunnur frá íslenskt grænmeti
1 msk. grænmetiskraftur
2 tsk. kúmmin
2 tsk. oregano 2 tsk. paprika salt og pipar
Kasjúhnetur
lúka af ferskri steinselju sett yfir í lokin

„Allur laukur fer í matvinnsluvél, steikt á pönnu með góðri olíu, vatni bætt út í ásamt tómatgrunni og krafti. Linsubaunun og sætri kartöflu í teningum bætt út í og soðið í 20-25 mín. Til þess að gera þetta enn fljótlegra set ég þetta allt saman í sérstakan Tupperware-örbylgjupott sem fer í örbylgju í 15 mínútur og bíður í 5 mínútur og útkoman er æði. Um leið og hún er borin fram er hún toppuð með steinselju og nokkrum kasjúhnetum.“ 

Guðbjörg í eldhúsinu sínu fallega.
Guðbjörg í eldhúsinu sínu fallega. Árni Sæberg
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert