Hægeldað gin með greip

Helgarkokteillinn er hægeldaður og dásamlega góður.
Helgarkokteillinn er hægeldaður og dásamlega góður. Tobba Marinós

Hægeldað gin hvað er nú það? Það er sum sé gin sem eimað er mun lengur en hefðbundið er. Bragðið er því mýkra ef svo má að orði komast. Maður drekkur það líka mun hægar – eða ekki!

3 cl af Beefeater 24 eða öðru hægelduðu gini 
Fullt glas af klökum
2 msk. ferskur greipsafi
1 tsk. agavesíróp
Fyllt upp með Indian Tonic

Öllu nema tónikinu er skellt í hristara og hrist vel. Hellt í glas með slatta af klökum og fyllt upp með tónik.

Skreytt með greipsneiðum. 

Brettið fagra er frá Borði fyrir tvo.
Brettið fagra er frá Borði fyrir tvo. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert