Valentínusargjöf Star Wars-fíkilsins

Falleg og merkilega vel útfærð.
Falleg og merkilega vel útfærð. mbl.is/thinkgeek.com

Við virðumst hafa sérlegt dálæti á Star Wars-tengdum eldhúsvörum og við játum það fúslega. Það er nefnilega frekar sniðugt að fá útrás fyrir áhugamálið í eldhúsinu og við minnum í því samhengi á fleiri Star Wars-vörur sem við höfum samviskusamlega sagt ykkur frá.

Þessi kaffikanna er pressukanna í R2-D2-líki. Við sjáum fyrir okkur að kannan myndi sóma sér vel á hvaða huggulega morgunverðarborði sem er því hún er bara alls ekki ljót.

Kannan kostar tæpar 5 þúsund krónur og er uppseld sem stendur en væntanleg. Ef þú elskar Star Wars-fíkil er því sniðugt að panta könnuna hressu og gefa viðkomandi mynd af henni á Valentínusardaginn sem er á þriðjudaginn með loforði um að gripurinn góði sé væntanlegur á heimilið.

Hægt er að panta könnuna hér.

Eins og sjá má sómir hún sér vel á hvaða …
Eins og sjá má sómir hún sér vel á hvaða morgunverðarborði sem er. mbl.is/thinkgeek.com
Huggulegheitin ríða ekki við einteyming hér.
Huggulegheitin ríða ekki við einteyming hér. mbl.is/thinkgeek.com
Hliðarprófíllinn er glæsilegur. Eiginlega má kalla kaffikönnuna hönnunarmeistaraverk sem allir …
Hliðarprófíllinn er glæsilegur. Eiginlega má kalla kaffikönnuna hönnunarmeistaraverk sem allir Star Wars-aðdáendur verða að eignast. mbl.is/thinkgeek.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert